Festi hf.: Endurkaup vika 3
Í 3. viku 2026 keypti Festi alls 197.000 eigin hluti fyrir 67.066.500 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tími | Magn | Verð | Kaupverð |
| Vika 3 | 12.1.2026 | 13:39 | 35.000 | 336 | 11.760.000 |
| Vika 3 | 13.1.2026 | 14:00 | 46.500 | 335 | 15.577.500 |
| Vika 3 | 14.1.2026 | 15:00 | 25.500 | 338 | 8.619.000 |
| Vika 3 | 15.1.2026 | 14:48 | 30.000 | 339 | 10.170.000 |
| Vika 3 | 16.1.2026 | 14:37 | 60.000 | 349 | 20.940.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 3.775.000 hluti eða 1,21% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 1.225.774 eigin hluti fyrir 403.461.920 kr. og á í dag 3.972.000 hluti sem samsvarar 1,27% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 3. desember 2025 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 825 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ().
