Festi hf.: Endurkaup vika 30
Í 30. viku 2023 keypti Festi alls 32.887 eigin hluti fyrir 6.278.530 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
30 | 25.07.2023 | 13:34:54 | 30.000 | 191 | 5.730.000 |
30 | 27.07.2023 | 13:20:45 | 1.000 | 190 | 190.000 |
30 | 27.07.2023 | 15:13:21 | 1.887 | 190 | 358.530 |
32.887 | 6.278.530 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 8.000.000 hluti eða 2,56% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 32.887 eigin hluti fyrir 6.278.530 kr. og á í dag 8.032.887 hluti sem samsvarar 2,57% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,12% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónum króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. ().
