Festi hf.: Endurkaup vika 41
Í 41. viku 2023 keypti Festi alls 300.000 eigin hluti fyrir 54.192.500 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
41 | 9.okt | 14:11:43 | 70.000 | 180,25 | 12.617.500 |
41 | 10.okt | 10:44:15 | 30.000 | 181,5 | 5.445.000 |
41 | 11.okt | 13:30:18 | 70.000 | 180 | 12.600.000 |
41 | 12.okt | 14:53:46 | 70.000 | 181 | 12.670.000 |
41 | 13.okt | 12:15:46 | 60.000 | 181 | 10.860.000 |
300.000 | 54.192.500 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 9.703.286 hluti eða 3,11% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 2.003.286 eigin hluti fyrir 373.775.645 kr. og á í dag 10.003.286 hluti sem samsvarar 3,20% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,12% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.
Vakin er athygli á tilkynningu félagsins um lækkun hlutafjár sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 12. október sl. en lækkunin kemur til framkvæmda í dag.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. ().
