FESTI N1 Hf

Festi hf.: Útgáfa á nýju skuldabréfi

Festi hf.: Útgáfa á nýju skuldabréfi

Festi hf. lauk í dag sölu á nýjum almennum skuldabréfaflokki FESTI 050331, sem gefinn er út undir kr. 8.000.000.000 útgáfuramma félagsins. Seld voru verðtryggð skuldabréf að nafnvirði 4.200.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,95.

Skuldabréfaflokkurinn er til 5 ára með jöfnun afborgunum tvisvar á ári.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður 20. febrúar 2026 og í kjölfarið verður sótt um að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Afrakstri skuldabréfaflokksins verður varið til endurfjármögnunar á hluta af skuldum félagsins.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsing útgáfuramma, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu skuldabréfaflokksins og töku skuldabréfanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins:

Ekki var um almennt útboð að ræða. Útboðið var sömuleiðis undanþegið gerð lýsingar á grundvelli a, c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. lög nr. 14/2020 um sama efni.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ().



EN
13/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on N1 Hf

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026 Enclosed are the results of the Annual General Meeting of Festi hf. held today, Thursday 5 March 2026. For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi -    Attachments

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður aðalfundar Festi hf. sem haldinn var í dag, fimmtudaginn 5. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi –   Viðhengi

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Annual Report 2025

Festi hf.: Annual Report 2025 Festi hf. 2025 Annual Report has been published in connection with the Company's Annual General Meeting, which will be held tomorrow, Thursday, March 5, 2026, at the Company's headquarters at Dalvegur 10 – 14, Kópavogur. The report also contains the Company‘s Sustainability Statement for 2025. The report is accessible on the following link:    For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi () 

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Ársskýrsla 2025

Festi hf.: Ársskýrsla 2025 Ársskýrsla Festi hf. fyrir árið 2025 hefur verið birt í tengslum við aðalfund félagsins sem verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 5. mars 2026 klukkan 10.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Í skýrslunni er einnig að finna sjálfbærniuppgjör samstæðunnar fyrir 2025. Skýrsluna má finna á meðfylgjandi slóð    Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi () 

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Buyback program week 10 - end of buyback

Festi hf.: Buyback program week 10 - end of buyback In week 10 2026, Festi purchased in total 250,000 own shares for total amount of 84,400,000 ISK as follows: WeekDateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceWeek 102.3.202612:53           50.000340,00    17.000.000Week 103.3.202611:36         100.000336,00    33.600.000Week 104.3.202613:27         100.000338,00    33.800.000 The execution of the buyback program is in accordance with the Act on Public Limited Companies No 2/1995, Article 5 of the Regulation of the European parliament and of the Council No. 596/2014, on market abuse, the...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch