FESTI N1 Hf

Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Aðalfundur Festi, sem haldinn var 22. mars 2023, veitti stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, til að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess.

Stjórn Festi hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu nema að hámarki 3.500.000 hlutum en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 600 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist föstudaginn 21. júlí 2023 og standi fram til 31. desember 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu nema að hámarki 70.000 hlutum, eða sem nemur um 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í júní 2023. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Markaðsviðskipti Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Festi á 8.000.000 hluti, eða sem nemur 2,56% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi ().



EN
21/07/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on N1 Hf

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026 Enclosed are the results of the Annual General Meeting of Festi hf. held today, Thursday 5 March 2026. For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi -    Attachments

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður aðalfundar Festi hf. sem haldinn var í dag, fimmtudaginn 5. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi –   Viðhengi

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Annual Report 2025

Festi hf.: Annual Report 2025 Festi hf. 2025 Annual Report has been published in connection with the Company's Annual General Meeting, which will be held tomorrow, Thursday, March 5, 2026, at the Company's headquarters at Dalvegur 10 – 14, Kópavogur. The report also contains the Company‘s Sustainability Statement for 2025. The report is accessible on the following link:    For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi () 

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Ársskýrsla 2025

Festi hf.: Ársskýrsla 2025 Ársskýrsla Festi hf. fyrir árið 2025 hefur verið birt í tengslum við aðalfund félagsins sem verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 5. mars 2026 klukkan 10.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Í skýrslunni er einnig að finna sjálfbærniuppgjör samstæðunnar fyrir 2025. Skýrsluna má finna á meðfylgjandi slóð    Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi () 

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Buyback program week 10 - end of buyback

Festi hf.: Buyback program week 10 - end of buyback In week 10 2026, Festi purchased in total 250,000 own shares for total amount of 84,400,000 ISK as follows: WeekDateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceWeek 102.3.202612:53           50.000340,00    17.000.000Week 103.3.202611:36         100.000336,00    33.600.000Week 104.3.202613:27         100.000338,00    33.800.000 The execution of the buyback program is in accordance with the Act on Public Limited Companies No 2/1995, Article 5 of the Regulation of the European parliament and of the Council No. 596/2014, on market abuse, the...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch