FESTI N1 Hf

Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunnar

Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunnar

Aðalfundur Festi hf., sem haldinn var 22. mars 2022, veitti stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Markmið áætlunarinnar er að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Stjórn Festi hf. hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar.  Áætlað er að kaupa að hámarki 3.000.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,96% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 650 milljónum króna að kaupverði.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 226.210 hlutir sem jafngildir um 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á Nasdaq OMX á Íslandi í desember 2022. Endurgjald fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq OMX á Íslandi, hvort sem er hærra.

Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist föstudaginn 6. janúar 2023 og standi fram til 22. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Arion banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlun verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. ( ).

 



EN
06/01/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on N1 Hf

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026 Enclosed are the results of the Annual General Meeting of Festi hf. held today, Thursday 5 March 2026. For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi -    Attachments

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður aðalfundar Festi hf. sem haldinn var í dag, fimmtudaginn 5. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi –   Viðhengi

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Annual Report 2025

Festi hf.: Annual Report 2025 Festi hf. 2025 Annual Report has been published in connection with the Company's Annual General Meeting, which will be held tomorrow, Thursday, March 5, 2026, at the Company's headquarters at Dalvegur 10 – 14, Kópavogur. The report also contains the Company‘s Sustainability Statement for 2025. The report is accessible on the following link:    For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi () 

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Ársskýrsla 2025

Festi hf.: Ársskýrsla 2025 Ársskýrsla Festi hf. fyrir árið 2025 hefur verið birt í tengslum við aðalfund félagsins sem verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 5. mars 2026 klukkan 10.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Í skýrslunni er einnig að finna sjálfbærniuppgjör samstæðunnar fyrir 2025. Skýrsluna má finna á meðfylgjandi slóð    Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi () 

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Buyback program week 10 - end of buyback

Festi hf.: Buyback program week 10 - end of buyback In week 10 2026, Festi purchased in total 250,000 own shares for total amount of 84,400,000 ISK as follows: WeekDateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceWeek 102.3.202612:53           50.000340,00    17.000.000Week 103.3.202611:36         100.000336,00    33.600.000Week 104.3.202613:27         100.000338,00    33.800.000 The execution of the buyback program is in accordance with the Act on Public Limited Companies No 2/1995, Article 5 of the Regulation of the European parliament and of the Council No. 596/2014, on market abuse, the...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch