Festi hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunnar
Aðalfundur Festi hf., sem haldinn var 22. mars 2021, veitti stjórn félagsins heimild til næstu 12 mánaða, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Markmið áætlunarinnar er að lækka útgefið hlutafé félagsins.
Stjórn Festi hf. hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.090.623 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,65% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 430 milljónum króna að kaupverði.
Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 250.000 hlutir sem jafngildir 20% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á Nasdaq OMX á Íslandi í maí 2021. Endurgjald fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq OMX á Íslandi, hvort sem er hærra.
Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist mánudaginn 21. júní 2021 og standi fram til 30. júlí 2021, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Markaðsviðskipti Íslenskra fjárfesta hf. munu hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlun verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. ( ).