FESTI N1 Hf

Festi - Kaup á öllu hlutafé í Íslenskri orkumiðlun

Festi - Kaup á öllu hlutafé í Íslenskri orkumiðlun

Fréttatilkynning                                                                              Kópavogur 01.03.2020

FESTI HF. KAUPIR ALLT HLUTAFÉ Í ÍSLENSKRI ORKUMIÐLUN EHF.

FESTI hf. hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Íslenskri Orkumiðlun ehf.  (ÍOM). Íslensk Orkumiðlun ehf. var stofnuð í janúar 2017 og fékk leyfi til að stunda raforkuviðskipti 16. febrúar. Raforkusala hófst síðan 1. júlí 2017.

Allt það rafmagn sem ÍOM selur kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum, annað hvort vatnsafli eða jarðvarma.  Markaðshlutdeild félagsins er tæplega 7% þó félagið hafi aðeins verið með starfsemi í þrjú ár og sýnir það sterka stöðu fyrirtækisins.  Af því rafmagnsmagni sem skipti um orkusala á árinu 2018 fóru 42% til Íslenskrar orkumiðlunar og 75% af því orkumagni sem flutti sig árið 2019.  Félagið hafði rekstrartekjur uppá tæplega 1,4 milljarða á síðasta ári og jukust rekstrartekjur um ríflega 45% á milli ára. Viðskiptavinir í sjávarútvegi eru stærstu viðskiptavinir félagsins.

N1 er orkusali FESTI samstæðunnar og mun starfsemi Íslenskrar Orkumiðlunar færast undir N1. N1 bætir þannig við þá sölu sem fyrir er, annars vegar jarðefnaeldsneytis og hins vegar endurnýjanlegra orkugjafa, bæði til fyrirtækja og almennings,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri FESTI.

Kaupverð hlutafjárins nemur alls 850 m.kr., en FESTI átti fyrir 15% í félaginu. Því er fjárfestingin upp á 722,5 m.kr.. Verður kaupverðið greitt með hlutum í FESTI annars vegar og hins vegar með reiðufé við afhendingu. Seljendur skuldbinda sig jafnframt til að selja hvorki né framselja þá hluti sem þeir fá afhenta í 12 mánuði frá afhendingu.

„N1 ætlar sér að vera leiðandi í orkuskiptum í samgöngum á Íslandi.  Við sjáum mikil tækifæri í sölu á raforku til heimila og fyrirtækja og viljum halda áfram okkar vegferð að einfalda lífið fyrir viðskiptavini N1.  N1 keypti Hlöðu á síðasta ári og með kaupum á ÍOM erum við komnir með alla innviði til að taka fullan þátt í raforkusölu og getum t.a.m. þjónustað rafbílaeigendur bæði með búnað og raforku “ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1.

„Þetta er búið að vera spennandi vegferð undanfarin ár, að byggja upp orkusölufyrirtæki til íslenskra fyrirtækja og heimila.  Með N1 sem eiganda og innan þeirra raða stóraukast möguleikar á sölu til heimila og viðskiptavina N1. Margir hafa ekki horft á rafmagn sem vöru sem hægt er að kaupa af mismunandi aðilum.  En það er hægt og fyrirtæki og heimilin í landinu geta sparað sér peninga.  Ég hlakka til að halda áfram virkri samkeppni á þessum markaði og starfa með öflugu og skemmtilegu fólki til framtíðar.“ Segir Magnús Júlíusson, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Íslenskrar orkumiðlunar.

Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, samþykki hluthafafundar fyrir aukningu hlutafjár og samþykki Samkeppniseftirlitsins.  Gangi þeir fyrirvarar eftir má gera ráð fyrir að gengið verði endanlega frá viðskiptunum síðar á árinu.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri FESTI ( )

Sjá nánar:

Viðhengi

EN
01/03/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on N1 Hf

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026

Festi hf.: Results of the Annual General Meeting 5 March 2026 Enclosed are the results of the Annual General Meeting of Festi hf. held today, Thursday 5 March 2026. For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi -    Attachments

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026

Festi hf.: Niðurstöður aðalfundar 5. mars 2026 Meðfylgjandi eru niðurstöður aðalfundar Festi hf. sem haldinn var í dag, fimmtudaginn 5. mars 2026. Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi –   Viðhengi

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Annual Report 2025

Festi hf.: Annual Report 2025 Festi hf. 2025 Annual Report has been published in connection with the Company's Annual General Meeting, which will be held tomorrow, Thursday, March 5, 2026, at the Company's headquarters at Dalvegur 10 – 14, Kópavogur. The report also contains the Company‘s Sustainability Statement for 2025. The report is accessible on the following link:    For further information, please contact Ásta S. Fjeldsted, CEO of Festi () 

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Ársskýrsla 2025

Festi hf.: Ársskýrsla 2025 Ársskýrsla Festi hf. fyrir árið 2025 hefur verið birt í tengslum við aðalfund félagsins sem verður haldinn á morgun, fimmtudaginn 5. mars 2026 klukkan 10.00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Í skýrslunni er einnig að finna sjálfbærniuppgjör samstæðunnar fyrir 2025. Skýrsluna má finna á meðfylgjandi slóð    Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi () 

 PRESS RELEASE

Festi hf.: Buyback program week 10 - end of buyback

Festi hf.: Buyback program week 10 - end of buyback In week 10 2026, Festi purchased in total 250,000 own shares for total amount of 84,400,000 ISK as follows: WeekDateTimePurchased sharesShare pricePurchase priceWeek 102.3.202612:53           50.000340,00    17.000.000Week 103.3.202611:36         100.000336,00    33.600.000Week 104.3.202613:27         100.000338,00    33.800.000 The execution of the buyback program is in accordance with the Act on Public Limited Companies No 2/1995, Article 5 of the Regulation of the European parliament and of the Council No. 596/2014, on market abuse, the...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch