HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Niðurstöður aðalfundar Haga hf. 1. júní 2023

Hagar hf.: Niðurstöður aðalfundar Haga hf. 1. júní 2023

Meðfylgjandi má sjá niðurstöður aðalfundar Haga hf. sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica þann 1. júní 2023. Fundurinn hófst kl. 15:00. Tillögur fundarins voru samþykktar svohljóðandi:



  1. Ársreikningur (dagskrárliður 2)

Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, var lagður fram og samþykktur samhljóða.



  1. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3)

Tillaga stjórnar Haga hf. um greiðslu arðs sem nemur 50,0% hagnaðar ársins, eða 2,24 krónur á hlut útistandandi hlutafjár, samtals 2.475 milljónir króna, var samþykkt samhljóða. Arðsréttindadagur verður 5. júní 2023, arðleysisdagur 2. júní 2023 og arðgreiðsludagur 13. júní 2023.



  1. Tillaga um lækkun hlutafjár og breytingar á samþykktum (dagskrárliður 4)

Tillaga stjórnar Haga hf. um lækkun hlutafjár til ógildingar á eigin hlutum að nafnverði kr. 26.247.219 var samþykkt samhljóða. Felur það í sér breytingu á grein 2.1 í samþykktum félagsins þar sem hlutafé félagsins verður lækkað úr kr. 1.132.676.082 að nafnverði í kr. 1.106.428.863 að nafnverði. Þá var einnig samþykkt tillaga stjórnar um breytingu á 2. lið í grein 3.18 í samþykktum félagsins, þar sem fram kemur nú að bæði ársreikningur og samstæðureikningur félagsins verði lagðir fram til samþykktar.



  1. Þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda (dagskrárliður 5)

Tillaga stjórnar Haga hf. um 5% hækkun stjórnarlauna var samþykkt, þ.e. stjórnarformaður fær greitt kr. 772.000,- á mánuði, varaformaður kr. 568.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr. 386.000,- á mánuði. Samþykkt var að laun í undirnefndum stjórnar verði óbreytt, eða kr. 90.000,- á mánuði og að laun formanns verði tvöföld upphæð. Þá var samþykkt að nefndarmönnum tilnefningarnefndar verði greitt skv. reikningi 25 þús. kr. pr./klst.



  1. Starfskjarastefna (dagskrárliður 6)

Fyrir fundinum lá tillaga stjórnar að óbreyttri starfskjarastefnu félagsins, ásamt skýrslu starfskjaranefndar fyrir nýliðið starfsár. Var tillaga stjórnar samþykkt.



  1. Breyting á starfsreglum tilnefningarnefndar (dagskrárliður 7)

Tillaga stjórnar að breytingu á grein 2.3 og 2.4 í starfsreglum tilnefningarnefndar var samþykkt.



  1. Kosning tilnefningarnefndar (dagskrárliður 8)

Samþykkt var samhljóða tillaga stjórnar Haga að þrír eftirtaldir fulltrúar verðir kjörnir í tilnefningarnefnd félagsins.

  • Björg Sigurðardóttir, endurskoðandi
  • Björn Ágúst Björnsson, verkfræðingur
  • Kristjana Milla Snorradóttir, mannauðsstjóri



  1. Kosning stjórnar og endurskoðanda (dagskrárliður 9)

Eftirtaldir aðilar voru kosnir í stjórn félagsins til næsta aðalfundar:

  • Davíð Harðarson, f. 1976
  • Eiríkur S. Jóhannsson, f. 1968
  • Eva Bryndís Helgadóttir, f. 1972
  • Jensína Kristín Böðvarsdóttir, f. 1969
  • Sigríður Olgeirsdóttir, f. 1960

Fimm voru í framboði til stjórnar félagsins og var því sjálfkjörið. Allir frambjóðendur skipuðu áður stjórn félagsins.

Samþykkt var samhljóða að endurskoðunarskrifstofan PricewaterhouseCoopers ehf., kt. 690681-0139, verði endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár.



  1. Ákvörðun um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum (dagskrárliður 10)

Fyrir aðalfundi lá tillaga frá stjórn Haga hf. um að félaginu verði heimilt að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af heildarhlutafé félagsins, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu í skilningi laga um markaði fyrir fjármálagerninga eða vegna endurkaupaáætlana eða verðjöfnunar í skilningi reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum. Tillagan var samþykkt samhljóða.



EN
01/06/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Birting grunnlýsingar

Hagar hf.: Birting grunnlýsingar Hagar hf., kt. 670203-2120, Holtavegi 10, 104 Reykjavík hafa birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma víxla og skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 2. mars 2026 og hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Grunnlýsingin er gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins . Nánari upplýsingar um Haga hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu og á vefsíðu félagsins. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar. Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsingun...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Financial calander 2026/27

Hagar hf.: Financial calander 2026/27 Below is Hagar’s planned schedule for the publication of its annual and interim financial statements for the 2026/27 financial year, as well as the company’s Annual General Meeting. Please note that the publication date of the 2025/26 annual financial statements has been changed. Accounting period 2025/26WeekdayPublication dayQ4 management report1 March to 28 FebruaryThursday16 April 2026Q4 financial statements1 March to 28 FebruaryWednesday29 April 2026AGM 2026Thursday21 May 2026 Accounting period 2026/27WeekdayPublication dayQ1 – 1 March to 31 MayTu...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Fjárhagsdagatal fyrir rekstrarárið 2026/27

Hagar hf.: Fjárhagsdagatal fyrir rekstrarárið 2026/27 Hér á eftir má sjá áætlun Haga hf. um birtingu árs- og árshlutauppgjöra á rekstrarárinu 2026/27 ásamt aðalfundum félagsins. Athygli er vakin á að birtingu ársuppgjörs 2025/26 hefur verið breytt. Viðburður 2025/26VikudagurBirtingardagur4F stjórnendauppgjör1. mars til 28. febFimmtudagur16. apríl 20264F ársreikningur1. mars til 28. febMiðvikudagur29. apríl 2026Aðalfundur 2026Fimmtudagur21. maí 2026 Viðburður 2026/27VikudagurBirtingardagur1F – 1. mars til 31. maíÞriðjudagur30. júní 20262F – 1. mars til 31. ágústFimmtudagur15. október 20263...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. febrúar 2026

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. febrúar 2026 Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA260826. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.100 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,65% - 7,90%. Tilboðum að fjárhæð 840 m.kr. var tekið á 7,75% flötum vöxtum. Útgáfudagur og uppgjör viðskipta er 26. febrúar 2026. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Nánari upplýsingar veita: Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf.,...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við...

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun (vika 8) og lok endurkaupaáætlunar Í viku 8 keyptu Hagar hf. 1.928.991 eigin hluti að kaupverði kr. 231.793.683 eins og hér segir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti16.2.202609:31200.000120,00024.000.00016.110.02316.2.202614:11250.000120,00030.000.00016.360.02316.2.202614:43219.940120,00026.392.80016.579.96317.2.202613:43500.000120,00060.000.00017.079.96318.2.202611:35500.000120,50060.250.00017.579.96319.2.202615:24259.051120,25031.150.88317.839.014  1.928...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch