Hagar hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi
Hagar hf. ákváðu að taka tilboðum fyrir 1.000.000 hluti á genginu 103 í endurkaupum sem tilkynnt var um föstudaginn 27. júní 2025. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er miðvikudagurinn 2. júlí 2025.
Endurkaupin eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Hagar hf. eiga 9.075.867 hluti eða sem nemur 0,82% af útgefnu hlutafé að loknum kaupum á þeim bréfum sem um ræðir hér að ofan.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á
