HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 1. júní 2022 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum frá samþykkt hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Endurkaupin munu að hámarki nema 99.330.330 hlutum í félaginu, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónir króna. Við endurkaup skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Samið hefur verið við Fossa fjárfestingarbanka hf. um að annast endurkaupin.  Kaupin hefjast með öfugu tilboðs fyrirkomulagi og samkvæmt hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæsta verði sem verður tekið. Ef ekki fæst þátttaka fyrir hámarksfjárhæð endurkaupanna munu regluleg endurkaup á markaði taka við. Allir hluthafar Haga hf. geta gert tilboð um að selja bréf sín til félagsins fyrir milligöngu Markaðsviðskipta Fossa fjárfestingarbanka hf. Hagar áskilja sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta.

Endurkaupin eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Tilboðum skal skila til Markaðsviðskipta Fossa fjárfestingarbanka hf., sem einnig svara fyrirspurnum, á netfangið  merkt „Hagar endurkaup“ eða í síma 522 4000 fyrir kl. 08:30, föstudaginn 3. mars 2023.

Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 9:30, föstudaginn 3. mars 2023. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er þriðjudagurinn 7. mars 2023.

Hagar hf. eiga 13.937.278 eigin hluti áður en endurkaupin samkvæmt tilboðsfyrirkomulaginu hefjast.



Nánari upplýsingar veita:

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á 

Markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka í gegnum netfangið



EN
02/03/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. nóvember 2025

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. nóvember 2025 Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA260527. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.240 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,65% - 7,90%. Tilboðum að fjárhæð 400 m.kr. var tekið á 7,80 % flötum vöxtum. Útgáfudagur og uppgjör viðskipta er 26. nóvember 2025. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Nánari upplýsingar veita: Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki h...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Útboð á víxlum 19. nóvember 2025

Hagar hf.: Útboð á víxlum 19. nóvember 2025 Hagar hf. efna til útboðs á víxlum miðvikudaginn 19. nóvember 2025. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA260527. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður út...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Staðfesting á skýrslum um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaf...

Hagar hf.: Staðfesting á skýrslum um fjárhagslegar kvaðir skuldabréfaflokka Meðfylgjandi má finna staðfestingu KPMG ehf. á skýrslum Haga hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu HAGA 021029, HAGA 120926 1 og HAGA161127. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar hálfsárs- og ársreiknings félagsins. Hálfsársuppgjör Haga var birt þann 16. október sl. Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Haga hf. og voru skýrslur félagsins um fjárhagslegar kvaðir því staðfestar. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gu...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Fjárfestakynning 2F 2025/26

Hagar hf.: Fjárfestakynning 2F 2025/26 Meðfylgjandi er fjárfestakynning Haga á uppgjöri 2. ársfjórðungs 2025/26 sem haldin verður fyrir markaðsaðila og hluthafa kl. 8:30 í dag, föstudaginn 17. október 2025, á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík. Á fundinum munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum. Fundinum verður einnig streymt og er skráning á hann hér: Viðhengi

 PRESS RELEASE

Hagar hf: Financial results for Q2 2025/26

Hagar hf: Financial results for Q2 2025/26 Strong performance and a new retail center in the Faroe Islands The interim financial statements of Hagar hf. for the second quarter of the 2025/26 financial year were approved by the company’s Board of Directors and CEO at a board meeting held on 16 October 2025. The statements cover the period from 1 March to 31 August 2025. The interim financial statements include the consolidated accounts of the company and its subsidiaries and have been prepared in accordance with International Financial Reporting Standards (IFRS). The statements have been re...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch