HAGA Hagar HF

Hagar hf.: Vörusala á 1F jókst um 19% og hagnaður nam 926 m.kr

Hagar hf.: Vörusala á 1F jókst um 19% og hagnaður nam 926 m.kr

Uppgjör Haga hf. á 1. ársfjórðungi 2022/23

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2022/23 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 30. júní 2022. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2022. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.



Helstu lykiltölur:

  • Vörusala 1F nam 38.213 m.kr. (19,3% vöxtur frá 1F 2021/22). [1F 2021/22: 32.034 m.kr.]
  • Framlegð 1F nam 7.564 m.kr. (19,8%). [1F 2021/22: 6.849 m.kr. (21,4%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 1F nam 2.668 m.kr. eða 7,0% af veltu. [1F 2021/22: 2.278 m.kr. (7,1%)]
  • Hagnaður 1F nam 926 m.kr. eða 2,4% af veltu. [1F 2021/22: 727 m.kr. (2,3%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 1F var 0,82 kr. [1F 2021/22: 0,63 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 1F var 0,81 kr. [1F 2021/22: 0,63 kr.]
  • Eigið fé nam 27.152 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 40,2%. [Árslok 2021/22: 26.726 m.kr. og 41,0%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2022/23 var nýlega uppfærð og gerir ráð fyrir að EBITDA verði 10.200-10.700 m.kr., án áhrifa vegna viðskipta með Klasa.



Helstu fréttir af starfsemi:

  • Rekstur á fyrsta ársfjórðungi gekk vel, með 19% veltuaukningu milli ára og heildarhagnaði 27% yfir fyrra ári.
  • Seldum stykkjum í dagvöruverslunum fjölgar milli ára og heimsóknum viðskiptavina fjölgar auk þess um rúm 10% á fjórðungnum. Magnaukning í eldsneytis­lítrum á 1F er rúm 17%. 
  • Framlegð í krónum talið eykst um 10,4% milli ára en framlegðarhlutfallið lækkar um 1,6%-stig, einkum vegna aukinnar sölu eldsneytis til stórnotenda og hækkunar á heimsmarkaðs­verði. 
  • Lengri afgreiðslutími verslana Bónus skilar áfram fjölgun viðskiptavina og aukinni sölu.
  • Áhrif COVID-19 hafa minnkað en ýmissa hnökra gætir í framleiðslu matvöru og í aðfangakeðjunni, vegna eftirstöðva farsóttar og vegna stríðsátaka í Úkraínu – hefur leitt til hækkandi aðfangaverðs og aukið líkur á vöruskorti einstaka vöruflokka.
  • Í mars 2022 var gengið frá samningum um kaup Haga á öllu hlutfé í Eldum rétt ehf.  Kaupin eru háð samþykki SE.  
  • Í júní 2022 undirrituðu Hagar sátt við Samkeppniseftirlitið vegna kaupa félagsins á nýju hlutafé í Klasa ehf.



Finnur Oddsson, forstjóri:

Starfsemi Haga á fyrsta fjórðungi rekstrarársins 2022/23 gekk heilt yfir vel og einkenndist m.a. af áframhaldandi tekjuvexti og ágætri afkomu. Vörusala jókst um 19% miðað við sama tímabil á fyrra  ári og nam 38,2 ma. kr. EBITDA nam 2.668 m.kr. og hagnaður var 926 m.kr. 

Eftirstöðvar COVID-19 og stríðsátök í Úkraínu höfðu nokkur áhrif á reksturinn og skýra hækkanir aðfangaverðs, bæði í dagvöru og eldsneyti, og tekjuvöxt að einhverju leyti. Bætta afkomu Haga á milli fjórðunga má að stórum hluta rekja til starfsemi Olís sem skilaði umtalsvert betri afkomu en í fyrra. Þar raungerist ávinningur vegna nokkurra þátta, þ.e. hagræðingar í rekstri Olís á síðustu misserum, breyttum áherslum í rekstri þjónustustöðva, fjölgun erlendra ferðamanna og mikið auknum umsvifum hjá stórnotendum, m.a. í útgerð og ferðaþjónustu. Framlegð vörusölu hjá Olís jókst í krónum talið í takti við aukið magn, en lækkar sem hlutfall af tekjum.  Helstu áhrifaþættir eru mikil hækkun á heimsmarkaðsverði olíu og umtalsverð söluaukning til stórnotenda.

Tekjur vegna sölu á dagvöru í Bónus og Hagkaup jukust um tæp 6% á fjórðungnum, seldum stykkjum fjölgaði lítillega og heimsóknum viðskiptavina töluvert. Tekjuaukningu má að hluta rekja til aukningar hjá Bónus og að hluta til hærra vöruverðs, en verð á aðföngum frá framleiðendum og birgjum hélt áfram að hækka á fjórðungnum, af fyrrgreindum ástæðum. Afkoma í dagvörusölu var svipuð á milli ára. 

Vinna við breyttar áherslur í starfsemi Haga hélt áfram á fjórðungnum og gekk vel.  Þar má m.a. nefna breytingar á vörumerki Olís og umbreytingu á starfsemi smásölusviðs, einföldun á fyrirtækjasviði Olís og stofnun nýrrar rekstrareiningar, Stórkaups, í maí. Nýjar áherslur og lengri opnunartími hjá Bónus hafa einnig gefist vel, náðu til fleiri verslana og endurspeglast ágætlega í nýrri og glæsilegri verslun sem opnuð var á Akureyri í maí.  Kaup Haga á hlut í Klasa voru samþykkt af Samkeppniseftirlitinu, en kaupin eru liður í því að auka fókus stjórnenda Haga í sölu á dagvöru og eldsneyti og treysta um leið verðmætasköpun á grunni þróunareigna félagsins. Gengið var frá samningum um kaup Haga á Eldum rétt ehf., sem einkum eru hugsuð til að bregðast við breyttum neysluvenjum og aukinni áherslu á hollar og einfaldar lausnir fyrir viðskiptavini. Vinnu við stafræn verkefni miðar vel, annars vegar til að tryggja betur grunnrekstur upplýsingakerfa og hins vegar til að efla þjónustu við viðskiptavini, m.a. með áframhaldandi þróun netverslana fyrir Hagkaup og Stórkaup.

Við erum ánægð með árangur Haga á þessum fyrsta fjórðungi rekstrarársins. Heilt yfir þá gekk vel og eins og síðustu fjórðunga þá njótum við nú góðs af aðgerðum til að auka skilvirkni rekstrar. Vegna hækkandi aðfangaverðs sem meðal annars hlýst af átökum í Úkraínu er ljóst að það eru ögrandi tímar framundan í smásölu. Sem fyrr verður okkar mikilvægasta viðfangsefni að tryggja framboð á nauðsynjum og gæta sérstaklega að hagkvæmni í allri okkar starfsemi, einkum til að vega upp á móti verðhækkunum á nauðsynjum sem nú gætir bæði hérlendis og erlendis.  

Nýlega uppfærð afkomuspá gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar á yfirstandandi rekstrarári verði á bilinu 10.200 – 10.700 m.kr., án áhrifa vegna viðskipta með Klasa.



Rafrænn kynningarfundur föstudaginn 1. júlí 2022

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 1. júlí kl. 8:30. Fundinum verður varpað í gegnum netið, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér:

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, , við upphaf fundar.



Frekari upplýsingar um uppgjörið má finna í meðfylgjandi fréttatilkynningu og árshlutareikningi.

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins () og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (), í síma 530-5500 eða tölvupósti.

Viðhengi



EN
30/06/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Birting grunnlýsingar

Hagar hf.: Birting grunnlýsingar Hagar hf., kt. 670203-2120, Holtavegi 10, 104 Reykjavík hafa birt grunnlýsingu í tengslum við útgáfuramma víxla og skuldabréfa. Grunnlýsingin er dagsett 2. mars 2026 og hefur verið staðfest af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Grunnlýsingin er gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins . Nánari upplýsingar um Haga hf. og útgáfurammann má finna í framangreindri grunnlýsingu og á vefsíðu félagsins. Grunnlýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu tíu ár frá staðfestingu hennar. Fossar fjárfestingarbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá grunnlýsingun...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Financial calander 2026/27

Hagar hf.: Financial calander 2026/27 Below is Hagar’s planned schedule for the publication of its annual and interim financial statements for the 2026/27 financial year, as well as the company’s Annual General Meeting. Please note that the publication date of the 2025/26 annual financial statements has been changed. Accounting period 2025/26WeekdayPublication dayQ4 management report1 March to 28 FebruaryThursday16 April 2026Q4 financial statements1 March to 28 FebruaryWednesday29 April 2026AGM 2026Thursday21 May 2026 Accounting period 2026/27WeekdayPublication dayQ1 – 1 March to 31 MayTu...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Fjárhagsdagatal fyrir rekstrarárið 2026/27

Hagar hf.: Fjárhagsdagatal fyrir rekstrarárið 2026/27 Hér á eftir má sjá áætlun Haga hf. um birtingu árs- og árshlutauppgjöra á rekstrarárinu 2026/27 ásamt aðalfundum félagsins. Athygli er vakin á að birtingu ársuppgjörs 2025/26 hefur verið breytt. Viðburður 2025/26VikudagurBirtingardagur4F stjórnendauppgjör1. mars til 28. febFimmtudagur16. apríl 20264F ársreikningur1. mars til 28. febMiðvikudagur29. apríl 2026Aðalfundur 2026Fimmtudagur21. maí 2026 Viðburður 2026/27VikudagurBirtingardagur1F – 1. mars til 31. maíÞriðjudagur30. júní 20262F – 1. mars til 31. ágústFimmtudagur15. október 20263...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. febrúar 2026

Hagar hf.: Niðurstaða víxlaútboðs 19. febrúar 2026 Hagar hf. luku í dag útboði á nýjum 6 mánaða víxlaflokki HAGA260826. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 1.100 m.kr. að nafnvirði á flötu vöxtunum 7,65% - 7,90%. Tilboðum að fjárhæð 840 m.kr. var tekið á 7,75% flötum vöxtum. Útgáfudagur og uppgjör viðskipta er 26. febrúar 2026. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland. Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu víxlanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Nánari upplýsingar veita: Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf.,...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við...

Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun (vika 8) og lok endurkaupaáætlunar Í viku 8 keyptu Hagar hf. 1.928.991 eigin hluti að kaupverði kr. 231.793.683 eins og hér segir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti16.2.202609:31200.000120,00024.000.00016.110.02316.2.202614:11250.000120,00030.000.00016.360.02316.2.202614:43219.940120,00026.392.80016.579.96317.2.202613:43500.000120,00060.000.00017.079.96318.2.202611:35500.000120,50060.250.00017.579.96319.2.202615:24259.051120,25031.150.88317.839.014  1.928...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch