HAGA Hagar HF

Leiðrétting: Hagar hf.: Útboð á víxlum 6. desember 2023

Leiðrétting: Hagar hf.: Útboð á víxlum 6. desember 2023

Í fréttatilkynningu sem birt var 30. nóvember sl. kom fram að þátttaka í útboðinu væri aðeins heimil fjárfestum sem teldust hæfir fjárfestar og hefðu verið flokkaðir sem fagfjárfestar eða teldust viðurkenndir gagnaðilar. Það á ekki við en útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli stærðar nafnverðseiningar. Sjá leiðrétta tilkynningu fyrir neðan.

Hagar hf. efna til útboðs á víxlum miðvikudaginn 6. desember 2023. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA240612.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða og er útboðið undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020 um sama efni. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: 

Skila skal inn tilboðum á netfangið fyrir klukkan 17:00 miðvikudaginn 6. desember 2023. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 13. desember 2023.

Nánari upplýsingar veita:

Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki, sími: 522 4000, 

Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf. 

Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, 



EN
05/12/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hagar HF

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyr...

Hagar hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi Á aðalfundi Haga hf. sem haldinn var þann 27. maí 2025 var samþykkt að heimila félaginu að kaupa á næstu 18 mánuðum, frá samþykkt, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun. Stjórn Haga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hám...

 PRESS RELEASE

Hagar hf: Uppgjör Haga á 1. ársfjórðungi 2025/26

Hagar hf: Uppgjör Haga á 1. ársfjórðungi 2025/26 Bætt afkoma og sterk byrjun á rekstrarárinu Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2025/26 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 26. júní 2025. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2025. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf. Helstu lykiltölur* Vö...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 1. ársfjórðungs 2025/26

Hagar hf.: Upplýsingar um birtingu uppgjörs 1. ársfjórðungs 2025/26 Hagar hf. birta uppgjör 1. ársfjórðungs, þ.e. fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2025, eftir lokun markaða, fimmtudaginn 26. júní nk. Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn sama dag, þann 26. júní kl. 16:00 þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins, ásamt því að svara fyrirspurnum. Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið og verður þeim svarað ein...

 PRESS RELEASE

Hagar hf.: Niðurstöður aðalfundar hf. 27. maí 2025

Hagar hf.: Niðurstöður aðalfundar hf. 27. maí 2025 Meðfylgjandi má sjá niðurstöður aðalfundar Haga hf. sem haldinn var á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík þann 27. maí 2025. Fundurinn hófst kl. 15:00. Tillögur fundarins voru samþykktar svohljóðandi: Ársreikningur (dagskrárliður 2) Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, var lagður fram og samþykktur samhljóða. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3) Tillaga stjórnar Haga hf. um greiðslu arðs sem nemur 50,0% hagnaðar ársins, án áhrifa matsbreytinga og afkomu hlutdeildarfélaga, eða 2,28 krónur á hlu...

 PRESS RELEASE

Leiðrétting: Hagar hf.: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 komin út

Leiðrétting: Hagar hf.: Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 komin út Við birtingu upplýsinga um árs- og sjálfbærniskýrslu 2024/25 fyrr í dag reyndust undirliggjandi upplýsingar í link við skýrsluna ekki vera réttar og leiðréttist það því hér með. Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024/25 Árs- og sjálfbærniskýrsla Haga fyrir árið 2024/25 er komin út. Skýrslan er aðgengileg á stafrænu formi og má nálgast hana hér:  eða á heimasíðu félagsins . Aðalfundur Haga 27. maí 2025 Aðalfundur Haga hf. verður haldinn þriðjudaginn 27. maí 2025 og hefst hann kl. 15:00 á Nauthól, Nauthólsvegi 106 í Reykjavík....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch