HAMP Hampidjan Ltd

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 20. mars 2026 og hefst klukkan 16:00.

Á dagskrá fundarins verður:

   1.        Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2025.

   2.        Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2025.

   3.        Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.

   4.        Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.

   5.        Kosning stjórnar félagsins.

                a. Kosning formanns.

                b. Kosning fjögurra meðstjórnenda.

   6.        Tillaga stjórnar um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd.

   7.        Kosning endurskoðunarfélags.

   8.        Önnur mál, löglega upp borin.

Endanleg dagskrá fundarins, endanlegar tillögur ásamt ársreikningi félagsins er lögð verða fyrir aðalfundinn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins á hefðbundnum skrifstofutíma og heimasíðu þess (/fjarmal), hluthöfum til sýnis.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá klukkan 15:30 á fundardegi. Eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé í félaginu. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

Hluthafar sem eru nafnskráðir í hlutaskrá félagsins skv. hluthafakerfi félagsins þegar aðalfundur fer fram geta nýtt atkvæðaréttindi sín aðalfundi. Rétt er að benda á að uppgjör viðskipta hjá Nasdaq verðbréfamiðstöð tekur yfirleitt tvo daga. Er því mælst til þess að síðasti viðskiptadagur sé 18. mars vilji hluthafi nýta réttindi sín á fundinum.

Samkvæmt samþykktum félagsins og ákvæði 63. gr. a. í lögum um hlutafélög skulu þeir sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarkjörs tilkynna félagsstjórn um framboð sitt. Framboðum skal skila á skrifstofu félagsins Skarfagörðum 4 eða á netfangið . Framboðsfresti fyrir stjórnarkjör lýkur 5 dögum fyrir aðalfund eða kl. 16:00 sunnudaginn 15. mars. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða lagðar fram á skrifstofu félagsins og birtar heimasíðu þess eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund. Slík erindi skulu send á tölvupóstfangið . Hver hluthafi í félaginu á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar ef framangreind skilyrði eru uppfyllt.

Endanleg dagskrá aðalfundarins og gögn er lögð verða fyrir fundinn verða gerð aðgengileg á skrifstofu félagsins og heimasíðu þess (/fjarmal) föstudaginn 13. mars 2026.

Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega eða með rafrænum hætti og þannig að dagsetning komi fram. Form að slíku umboði er á heimasíðu Hampiðjunnar (). Tekið skal fram að umboð getur aldrei gilt lengur en í eitt ár frá dagsetningu þess.

Viðhengi



EN
26/02/2026

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hampidjan Ltd

 PRESS RELEASE

Hampiðjan – Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025

Hampiðjan – Ársreikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025 Lykilstærðir  Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga. Árið 2025 Rekstrartekjur ársins voru 359,7 m€ (311,0 m€)EBITDA af reglulegri starfsemi var 39,6 m€ (37,6 m€)Aðlöguð EBITDA fyrir einskiptiskostnaði nam 40,4 m€ (37,6 m€)Fjáreignatekjur námu 1,6 m€ (4,7 m€)Fjármagnsgjöld voru 12,7 m€ (13,5 m€)Gengismunur var 1,9 m€ til gjalda (2,1 m€ til tekna)Hagnaður ársins af áframhaldandi starfsemi nam 8,8 m€ (14,3 m€)Aflögð starfsemi eftir skatta nam 2,9 m€ til gjalda (0,3 m€ til gjalda)Heildareignir voru 547,5 m€ (509,5 m€ í lok 20...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars.

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur ársuppgjörs 2025 fimmtudaginn 5. mars. Hampiðjan hf. mun birta ársuppgjör 2025 eftir lokun markaða fimmtudaginn 5. mars 2026. Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið Ársreikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum. Nána...

 PRESS RELEASE

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn 20. mars 2026 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 20. mars 2026 og hefst klukkan 16:00. Á dagskrá fundarins verður:    1.        Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2025.   2.        Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar reikningsársins 2025.   3.        Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar.   4.        Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins.   5.        Kosning stjórnar félagsins.                a. Kosning formanns.                b. Kosni...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 undir ...

Hampiðjan hf. – Afkomuviðvörun: Afkoma fjórða ársfjórðungs 2025 undir væntingum Á vettvangi félagsins er nú unnið að uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2025 og gerð ársreiknings. Drög að uppgjöri benda til að velta samstæðu Hampiðjunnar hafi numið tæpum 360 m€ á árinu 2025 sem er aukning um 15% á milli ára. Félagið áætlar að EBITDA í ársreikningi félagsins fyrir árið 2025 nemi á bilinu 39 til 40 m€. EBITDA hefur því aukist um rúm 5% á milli ára sem er minni aukning en árshlutauppgjör Hampiðjunnar hafa sýnt til þessa. Sé leiðrétt fyrir einskiptisliðum þá hækkar ofangreind EBITDA um tæpar 0,8 m€....

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf.: Flöggun frá Almenna-Lífsverk lífeyrissjóði

Hampiðjan hf.: Flöggun frá Almenna-Lífsverk lífeyrissjóði Hampiðjunni hf. hefur borist meðfylgjandi tilkynning í tengslum við sameiningu Almenna lífeyrissjóðsins og Lífsverks lífeyrissjóðs, sem frá og með 1. janúar 2026 starfa undir heitinu Almenni-Lífsverk lífeyrissjóður. Við sameininguna fer eignarhald sjóðsins yfir 5% af heildarhlutafé Hampiðjunnar hf. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch