HAMP Hampidjan Ltd

Hampiðjan hf. – Niðurstöður hluthafafundar 25. nóvember 2022.

Hampiðjan hf. – Niðurstöður hluthafafundar 25. nóvember 2022.

Á hluthafafundi Hampiðjunnar, sem fram fór í dag, var eftirfarandi tillaga um heimild til hækkunar hlutafjár samþykkt:

Hluthafafundur Hampiðjunnar hf. haldinn 25.11.2022 samþykkir að veita stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé félagsins að nafnvirði um allt að kr. 145.000.000, úr kr. 500.000.000 að nafnvirði í allt að kr. 645.000.000  að nafnvirði, svo sem nánar greinir hér að neðan:

  1. Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé, í einu lagi, um allt að kr. 50.981.049, að nafnverði, í tengslum við kaup Hampiðjunnar á Holding Cage I AS, sem er eigandi 100% hlutafjár í Mørenot AS og öðrum dótturfélögum innan Mørenot samstæðunnar. Áskriftargengi hinna nýju hluta verður 112 fyrir hvern nafnverðshlut í samræmi við ákvæði í kaupsamningi um kaup Hampiðjunnar á Holding Cage I AS þar sem gert er ráð fyrir að greitt verði fyrir hina nýju hluti með skuldajöfnuði.
  2. Stjórn félagsins er heimilt að óska eftir töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ á Íslandi, en hlutabréf félagsins eru nú til viðskipta á First North markaði NASDAQ, og auka hlutafé félagsins samhliða, í einu lagi eða áföngum, um allt að kr. 94.018.951 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta, í því skyni að greiða niður skuldir Mørenot og  fjármagna fjárfestingar félagsins þannig að samlegðaráhrif vegna kaupanna séu nýtt. Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi hlutanna og sölureglur hverju sinni. Skal áskrift í einu og öllu fara fram samkvæmt ákvæðum samþykkta félagsins og V. kafla laga um hlutafélög.

Hluthafar falla frá forgangsrétti til áskriftar á hinu nýja hlutafé.

Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju hluti. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi, þó skulu hinir nýju hlutir sem tilkomnir eru vegna greiðslu fyrir hlutaféð í Holding Cage I AS njóta arðsréttinda og forgangsréttar til áskriftar að nýjum hlutum í félaginu, til jafns við hluthafa, frá þeim degi sem kaupsamningur sá sem vísað er til í a-lið 1. mgr. hér að framan er orðinn skuldbindandi. Heimildir þessar skal stjórnin nýta innan 18 mánaða frá samþykkt hennar.

Stjórn félagsins er heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins í tengslum við nýtingu heimildarinnar.

Fleira gerðist ekki.



EN
25/11/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hampidjan Ltd

 PRESS RELEASE

Hampiðjan – samandreginn þriggja mánaða árshlutareikningur samstæðu Ha...

Hampiðjan – samandreginn þriggja mánaða árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025 Lykilstærðir  Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga. Rekstrartekjur ársfjórðungsins voru 91,9 m€ (78,3 m€).EBITDA af reglulegri starfsemi á ársfjórðungnum var 11,2 m€ (8,3 m€).Hagnaður tímabilsins nam 2,8 m€ (2,7 m€).Heildareignir voru 551,9 m€ (509,5 m€ í lok 2024).Vaxtaberandi skuldir voru 184,3 m€ (178,6 m€ í lok 2024).Handbært fé var 38,8 m€ (41,4 m€ í lok 2024).Eiginfjárhlutfall var 49,6% (53,6% í lok 2024). Rekstur Rekstrartekjur samstæðunnar voru 91,9 m€ og hækkuðu um 17,4% frá...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025...

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 miðvikudaginn 28. maí. Hampiðjan hf. mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. maí. Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið Árshlutareikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig að...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - uppgjör vegna kaupa á indverska félaginu Kohinoor

Hampiðjan hf. - uppgjör vegna kaupa á indverska félaginu Kohinoor Þann 7. febrúar í ár var tilkynnt um kaup Hampiðjunnar á 75,1% hlut í inverska félaginu Kohinoor. Áreiðanleikakönnunum, rekstrar-, skatta- og lagalegum ásamt úttekt á umhverfismálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum er að fullu lokið og allir fyrirvarar vegna kaupanna eru uppfylltir og því ekkert til fyrirstöðu til að ganga frá uppgjöri vegna kaupanna. Uppgjörið var á svipuðum nótum og lagt var upp með og varð greiðslan 21,7 m€ og hefur greiðslan verið móttekin af banka seljenda. Forsendur fyrir uppgjöri verða síðan staðf...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf - Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.

Hampiðjan hf - Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf. Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 21. mars 2025, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2024 samþykkt samhljóða. Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnar Vilhjálmur Vilhjálmsson Meðstjórnendur Auður Kristín ÁrnadóttirKristján LoftssonLoftur Bjarni GíslasonSigrún Þorleifsdóttir Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar:   Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 verði greiddar 1,10 kr. á hlut í arð til hluthafa, eð...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - Framboð til stjórnar

Hampiðjan hf. - Framboð til stjórnar Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í stjórn og til stjórnarformennsku á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður 21. mars 2025. Stjórnarformaður: Vilhjálmur Vilhjálmsson Meðstjórnendur: Auður Kristín Árnadóttir Kristján Loftsson Loftur Bjarni Gíslason Sigrún Þorleifsdóttir Þar sem frambjóðendur eru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem á að kjósa á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll er sjálfkjörið í stjórnarsætin fimm. Nánari upplýsingar um frambjóðendur liggja frammi á skrifs...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch