HAMP Hampidjan Ltd

Hampiðjan – samandreginn þriggja mánaða árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025

Hampiðjan – samandreginn þriggja mánaða árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025

Lykilstærðir 

Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga.

  • Rekstrartekjur ársfjórðungsins voru 91,9 m€ (78,3 m€).
  • EBITDA af reglulegri starfsemi á ársfjórðungnum var 11,2 m€ (8,3 m€).
  • Hagnaður tímabilsins nam 2,8 m€ (2,7 m€).
  • Heildareignir voru 551,9 m€ (509,5 m€ í lok 2024).
  • Vaxtaberandi skuldir voru 184,3 m€ (178,6 m€ í lok 2024).
  • Handbært fé var 38,8 m€ (41,4 m€ í lok 2024).
  • Eiginfjárhlutfall var 49,6% (53,6% í lok 2024).



Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 91,9 m€ og hækkuðu um 17,4% frá fyrstu þremur mánuðum fyrra árs.

EBITDA félagsins hækkaði um 34,5% á milli tímabila eða úr 8,3 m€ á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 í 11,2 m€ á fyrstu þremur mánuðum þessa árs.

Gengistap fyrstu þriggja mánaða ársins nam 1,0 m€ samanborið við gengishagnað að fjárhæð 0,8 m€ á sama tímabili í fyrra. Ástæðan er einkum langtímakröfur innan Morenot í USD en USD veiktist frá áramótum gegn norsku krónunni um rúm 7%.

Hagnaður tímabilsins var 2,8 m€ en var 2,7 m€ fyrir fyrstu þremur mánuði ársins 2024.

Efnahagur

Heildareignir voru 551,9 m€ og hafa hækkað úr 509,5 m€ í árslok 2024.

Eigið fé nam 273,9 m€, en af þeirri upphæð eru 14,5 m€ hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga.

Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok tímabilsins 49,6% af heildareignum samstæðunnar en var 53,6% í árslok 2024. Búið að færa til skuldar ógreiddan arð til hluthafa að fjárhæð 4,9m€ sem einnig kemur til lækkunar á heildar eigin fé samstæðunnar.

Vaxtaberandi skuldir námu í lok tímabils 184,3 m€ samanborið við 178,6 m€ í árslok 2024.

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir í lok tímabilsins nema 83,5 m€ en námu 46,7 m€ í árslok 2024. Af þessari hækkun er ógreitt kaupverð á 75,1% hluta í Kohinoor að fjárhæð 22,1 m€ og ógreiddur arður til hluthafa 4,9 m€. Önnur hækkun liggur einkum í hærri stöðu birgða samstæðunnar einkum vegna stórra verkefna í fiskeldi.

Samandregni árshlutareikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar hf., .

Í dag verður haldinn fjárfestakynning kl. 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og er streymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins,

Hjörtur Erlendsson, forstjóri:

„Rekstur Hampiðjunnar á fyrsta ársfjórðungi 2025 gekk vel og jókst bæði velta og rekstrarhagnaður félagsins umtalsvert samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. Velta fjórðungsins nam 91,9 m€ samanborið við 78,3 m€ árið áður eða sem samsvarar aukningu um 17,4%.

Hluti af aukningunni er tilkominn vegna innkomu norska félagsins Fiizk sem varð hluti af samstæðunni frá 1. september 2024 og neta- og kaðlafyrirtækinu Kohinoor sem kemur inn í samstæðuuppgjörið frá 1. febrúar í ár. Ef einungis eru tekin þau félög sem fyrir voru í samstæðunni þá var söluaukning þeirra 7,3% þannig að hér fer saman innri og ytri vöxtur samstæðunnar.

EBITDA samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi fyrra árs var 8,3 m€ en hækkaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs í 11,2 m€ sem er aukning um 2,9 m€ sem samsvarar 35% hækkun EBITDA. Hlutfall EBITDA af sölu varð 12,2% en var 10,6% á sama tímabili í fyrra.

Fjármagnskostnaður varð hins vegar hærri á fjórðungnum og það ásamt miklum gengismun dregur niður hagnað á fjórðungnum. Í fyrra var gengishagnaður sem nam 0,8 m€ en í ár gengistap upp á 1,0 m€ sem má að mestu rekja til veikingar dollars gagnvart norskri krónu um 7% fram til loka mars.

Hagnaður eftir skatta varð 2,8 m€ í ár samanborið við 2,7 m€ í fyrra eða hækkun um 3%.

Ef samsetning sölunnar er skoðuð þá má sjá að samdráttur er í sölu á veiðarfærum í Bandaríkjunum. Það er aðallega tilkomið vegna rekstrarerfiðleika fiskvinnslufyrirtækja í Alaska sem keppa við innfluttan alaskaufsa sem Rússar veiða og unninn er í Kína og seldur á lágum verðum inn á Ameríkumarkað. Á Írlandi virðast áhrif Brexit enn vera að koma fram, aðallega í uppsjávarveiðum en einnig í botnfiskveiðum en á móti því kemur aukning í sölu í Skotlandi. Í Noregi gætir töluverðra áhrifa af minnkun þorskkvótans í Barentshafi en þar minnkar kvótinn um 25% milli ára. Í Grænlandi litar léleg rekstrarafkoma einstakra stærri útgerða enn innkaup á veiðarfærum. Á öðrum mörkuðum hefur sala á veiðarfærum hins vegar orðið meiri þannig ef litið er á heildarsölu veiðarfæra þá hefur hún aukist dálítið umfram samdráttinn. Hér sýnir sig kostur þess að starfa á mörgum markaðssvæðum þar sem það jafnar sveiflur og þótt veiðarfærasala minnki á einhverjum mörkuðum vega önnur landsvæði það upp.

Sala á vörum og þjónustu fyrir fiskeldið var um þriðjungur af veltu Hampiðjunnar á síðasta ári. Þrátt fyrir að það ár hafi byrjað afar hægt þá rættist úr þegar leið á sumarið og haustið. Sú þróun hefur haldið áfram og sala til fiskeldis hefur verið virkilega góð og nú er öll núverandi framleiðslugeta fullnýtt og verkefnalistar ná fram á haust. Samningar hafa náðst um stór verkefni í Miðausturlöndum til viðbótar við hefðbundnar sölur til fiskeldisfyrirtækja á N-Atlantshafi og við erum að byggja upp sterka markaðsstöðu á því svæði.

Fyrir utan veiðar og fiskeldi þá er sala á ofurtógum, köðlum og lyftistroffum úr plastofurefnum, til útsjávariðnaðar mikilvægur og vaxandi hluti af starfsemi Hampiðjunnar. Í fyrra nam sala til útsjávariðnaðar um 5% af veltu samstæðunnar eða sem nam um 16 m€ samsvarandi 2,3 milljörðum króna. Í vor hafa orðið tímamót á þessu sviði því við höfum, í samstarfi við hollenska fyrirtækið Dutch Heavy Lift, sett upp slitbekk sem er 104 m langur og getur álagsprófað með 2.000 tonna átaki. Næststærsti slitbekkur fyrir tóg í Evrópu er 1.400 tonn og getur einungis tekið um 26 m langt tóg eða stroffu. Nýi slitbekkurinn gefur Hampidjan Baltic í Litháen mikið samkeppnisforskot því nú er hægt að stilla nákvæmar lengdir á lyftistroffum með forstrekkingu og eftir að frágangi stroffunnar er lokið er hægt að álagsprófa og votta stroffuna og senda beint til viðtakanda. Áður þurfti að flytja stroffur fram og til baka til Hollands með tilheyrandi tímatapi og kostnaði fyrir utan að álagsprófun á stroffum yfir 26 m var tæpast möguleg. Fyrsta stóra verkefninu er að ljúka í þessari viku en það er framleiðsla á 24 ofurstroffum og söluverðmætið er um 1,0 m€.

Á fjórðungnum náðist að ljúka samningum um kaup á 75,1% hluta í indverska kaðla- og netafyrirtækinu Kohinoor á Indlandi og var skrifað undir samninginn í byrjun febrúar og gengið frá greiðslum nokkrum vikum seinna. Kohinoor kemur inn í samstæðuna frá og með febrúarbyrjun og er því hluti af uppgjörinu fyrir fyrsta ársfjórðunginn á þessu ári. Rekstur félagsins á síðasta ári gekk vel og nam veltan um 27 m€ og EBITDA var um 4,4 m€.

Eins og áður hefur verið nefnt þá fylgja kaupunum á Kohinoor afar miklir hagræðingar- og stækkunarmöguleikar og aukin samkeppnishæfni vegna hagstæðs rekstrarumhverfis á Indlandi. Búið er að tryggja og greiða inn á 12 hektara land á iðnaðarsvæðinu Auric. Það svæði er aðeins fyrir austan borgina Aurangabad og þar verður hægt að byggja a.m.k. 65.000 m². Nú er unnið að skipulagningu á svæðinu en í ár er fyrirhugað að byggja um 24.000 m² verksmiðjubyggingu ásamt skrifstofum og aðstöðu fyrir starfsmenn. Þessi bygging mun taka við framleiðslu á netaverkstæði Kohinoor í Jalna en þar er starfsemi á 5.600 m² í eigin húsnæði og í 7.000 m² húsnæði sem er leigt til skemmri tíma. Þá verður framleiðsla á fiskeldiskvíum, sem eru nú framleiddar í Póllandi, flutt til Indlands og einnig hluti framleiðslunnar sem er í Litháen. Þar verða áfram framleiddar fiskeldiskvíar því nauðsynlegt er að geta boðið stuttan afgreiðslutíma því oft koma pantanir í fiskeldiskvíar, þar sem þörf er á skjótum afhendingum, fyrir fiskeldið við N-Atlantshaf .

Fyrstu skrefin hafa þegar verið tekin í flutningi véla og framleiðslu frá Litháen og hafa tvær fyrstu kaðlavélarnar fyrir snúna kaðla verið sendar af stað til Indlands og fyrsta sending af saumavélum fer af stað innan skamms. Nú er háannatími í framleiðslu fiskeldiskvía og efni í þær og þegar háannatímanum lýkur í haust þá verður byrjað á að flytja 4 vefstóla sem framleiða hnútalaust net frá Noregi til Kohinoor. Samhliða því verða sérhæfðar saumavélar og annar búnaður fluttur frá Póllandi og Litháen til Indlands.

Í Danmörku, hjá félaginu Mørenot Denmark, hefur starfsfólki verið fækkað úr tólf í fimm og í lok árs fækkar enn frekar og eftir verða 2 starfandi sölustjórar sem sinna sölu á alþjóðamörkuðum. Starfsemin sem hefur verið í Danmörku á vegum Mørenot verður framvegis í Noregi en þar er til staðar aðstaða og starfsmenn sem geta sinnt því sem áður var gert í Danmörku og einungis þarf að bæta við starfsmönnum á lager í Søvik norður af Álasundi.

Í Póllandi er undirbúningur hafinn að lokun framleiðslufyrirtækisins Poldan en þar starfa nú 48 manns. Þar hefur verið unnið að framleiðslu fiskeldiskvía og sportneta ásamt áfellingu neta á flot- og blýtóg fyrir danskar útgerðir sem gera út minni báta á netaveiðar. Hluti af framleiðsluvélunum hefur verið fluttur til Hampidjan Baltic í Litháen og það sem eftir er verður fært á milli í sumar. Verið er að ljúka samningum um starfslok 45 starfsmanna og er fyrirhugað að fyrirtækinu verði lokað í lok ágúst. Verksmiðjubyggingin með skrifstofum er 3.200 m² ásamt 760 m² vöruhúsi og 9.425 m² landrými. Fyrirhugað er að selja þessa eign á næstu mánuðum.

Af öðrum hagræðingaraðgerðum má nefna að fléttivélar og framleiðsla á ofurtógi í verksmiðju Mørenot í Hildre í Noregi var flutt til ofurtógadeildar Hampidjan Baltic í vor og uppsetningu þeirra er nú að mestu lokið. Hagræðingin felst í lægri vinnulaunum og að nýta betur vélakostinn sem hefur verið í Noregi en þær vélar hafa ekki verið nýttar að fullu. Starfstöðinni í Hildre verður lokað í haust en þar hafa starfað um 13 starfsmenn en 3 af þeim færast á aðrar starfstöðvar Mørenot í Søvik.

Árið í ár verður því mikið umbreytingarár því verið er að loka nokkrum starfstöðvum í Evrópu, flytja til framleiðslu á völdum vörum til Hampidjan Baltic í Litháen og framleiðslu á fiskeldiskvíum til Kohinoor á Indlandi og efla starfsemina þar ásamt því að byggja fyrsta hlutann af nýju verksmiðjuhúsnæði í Auric. Hagræðingaraðgerðirnar byrja að skila sér í auknum mæli eftir því sem líður á árið og koma inn að mestu leyti á næsta ári.“

Viðhengi



EN
28/05/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Hampidjan Ltd

 PRESS RELEASE

Hampiðjan – samandreginn þriggja mánaða árshlutareikningur samstæðu Ha...

Hampiðjan – samandreginn þriggja mánaða árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar 2025 Lykilstærðir  Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga. Rekstrartekjur ársfjórðungsins voru 91,9 m€ (78,3 m€).EBITDA af reglulegri starfsemi á ársfjórðungnum var 11,2 m€ (8,3 m€).Hagnaður tímabilsins nam 2,8 m€ (2,7 m€).Heildareignir voru 551,9 m€ (509,5 m€ í lok 2024).Vaxtaberandi skuldir voru 184,3 m€ (178,6 m€ í lok 2024).Handbært fé var 38,8 m€ (41,4 m€ í lok 2024).Eiginfjárhlutfall var 49,6% (53,6% í lok 2024). Rekstur Rekstrartekjur samstæðunnar voru 91,9 m€ og hækkuðu um 17,4% frá...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025...

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 miðvikudaginn 28. maí. Hampiðjan hf. mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. maí. Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn. Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið Árshlutareikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig að...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - uppgjör vegna kaupa á indverska félaginu Kohinoor

Hampiðjan hf. - uppgjör vegna kaupa á indverska félaginu Kohinoor Þann 7. febrúar í ár var tilkynnt um kaup Hampiðjunnar á 75,1% hlut í inverska félaginu Kohinoor. Áreiðanleikakönnunum, rekstrar-, skatta- og lagalegum ásamt úttekt á umhverfismálum, félagslegum þáttum og stjórnarháttum er að fullu lokið og allir fyrirvarar vegna kaupanna eru uppfylltir og því ekkert til fyrirstöðu til að ganga frá uppgjöri vegna kaupanna. Uppgjörið var á svipuðum nótum og lagt var upp með og varð greiðslan 21,7 m€ og hefur greiðslan verið móttekin af banka seljenda. Forsendur fyrir uppgjöri verða síðan staðf...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf - Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.

Hampiðjan hf - Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf. Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 21. mars 2025, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2024 samþykkt samhljóða. Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnar Vilhjálmur Vilhjálmsson Meðstjórnendur Auður Kristín ÁrnadóttirKristján LoftssonLoftur Bjarni GíslasonSigrún Þorleifsdóttir Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar:   Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024 verði greiddar 1,10 kr. á hlut í arð til hluthafa, eð...

 PRESS RELEASE

Hampiðjan hf. - Framboð til stjórnar

Hampiðjan hf. - Framboð til stjórnar Eftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í stjórn og til stjórnarformennsku á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður 21. mars 2025. Stjórnarformaður: Vilhjálmur Vilhjálmsson Meðstjórnendur: Auður Kristín Árnadóttir Kristján Loftsson Loftur Bjarni Gíslason Sigrún Þorleifsdóttir Þar sem frambjóðendur eru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem á að kjósa á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll er sjálfkjörið í stjórnarsætin fimm. Nánari upplýsingar um frambjóðendur liggja frammi á skrifs...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch