ICEAIR Icelandair Group Holding

Icelandair: Góð sætanýting og stundvísi í febrúar

Icelandair: Góð sætanýting og stundvísi í febrúar



Heildarfjöldi farþega Icelandair var 234 þúsund í febrúar, 17% aukning frá febrúar 2023. Í mánuðinum voru 41% farþega á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 30% voru tengifarþegar og 8% ferðuðust innanlands. Sætanýting var 76,6% og stundvísi var 84,6%. Stundvísi jókst umtalsvert á milli ára eða um 12,6 prósentustig.  

Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 26% og fraktflutningar voru svipaðir og í febrúar 2023.  

„Við náðum mjög góðum árangri í febrúar og farþegum fjölgaði umtalsvert á milli ára, bæði í millilanda og innanlandflugi. Þá er ánægjulegt að sjá aukna sætanýtingu  þrátt fyrir 23% aukningu á sætaframboði. Við nýttum sveigjanleika leiðakerfisins til að mæta aukinni eftirspurn á Atlantshafsmarkaðnum og á flugi frá Íslandi og náðum góðum árangri í sölu á þessum mörkuðum. Þannig bættum við upp fyrir lítið eitt minni eftirspurn á markaðnum til Íslands í febrúar. Á sama tíma náðum við bestu stundvísi fyrir febrúarmánuð um árabil. Þessi árangur er ekki síst að þakka frábærri frammistöðu starfsfólks okkar sem náði að halda uppi skilvirkri flugstarfsemi í mánuðinum, og það þrátt fyrir heita- og kaldavatnsleysi í kjölfar síðasta eldgoss.“  





Nánari upplýsingar

Fjárfestar: Íris Hulda Þóridsóttir, Forstöðumaður Fjárfestatengsla. Netfang:

Media: Ásdís Pétursdóttir, Forstöðumaður Samskipta og sjálfbærni. Netfang:



Viðhengi



EN
06/03/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Icelandair Group Holding

 PRESS RELEASE

Icelandair: Considerable increase on the via market, improved load fac...

Icelandair: Considerable increase on the via market, improved load factor and on-time performance In March 2024, Icelandair transported 298 thousand passengers, which represents a 25% increase in passenger traffic as measured by Revenue Passenger Kilometers (RPK) on a capacity increase of 22% compared to March 2023. During the month, 39% of passengers were traveling to Iceland, 19% from Iceland, 34% were via passengers, and 8% were traveling within Iceland. Load factor was 83.1% and on-time performance was 88.5%, increasing by 4.7 ppt from the already solid performance in March 2023. Bogi ...

 PRESS RELEASE

Icelandair: Mikil aukning tengifarþega, betri sætanýting og stundvísi

Icelandair: Mikil aukning tengifarþega, betri sætanýting og stundvísi Heildarfjöldi farþega Icelandair var 298 þúsund í mars. Farþegaflutningar hjá félaginu jukust um 25%, mældir í tekjufarþegakílómetrum (e. Revenue Passenger Kilometer) og framboð jókst um 22% frá mars 2023. Í mánuðinum voru 39% farþega á leið til Íslands, 19% frá Íslandi, 34% voru tengifarþegar og 8% ferðuðust innanlands. Sætanýting var 83,1% og stundvísi var 88,5%, 4,7 prósentustigum hærri en stundvísi í mars 2023 sem var þó mjög góð. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair: „Við sjáum áframhaldandi góðar farþeg...

 PRESS RELEASE

Icelandair: Net profit is expected to increase between years with EBIT...

Icelandair: Net profit is expected to increase between years with EBIT ratio of 2-4% Icelandair is issuing financial guidance for the full year 2024. Uncertainty in the operating environment, as reported in the 2023 results announcement on 1 February 2024, has decreased with diminishing impact of inaccurate international media coverage of the volcanic activity in Southwest Iceland on bookings and the conclusion of the collective bargaining agreements in the private sector in Iceland.   Capacity in 2024, as measured in Available Seat Kilometers (ASK), is expected to increase by 10% year-on...

 PRESS RELEASE

Icelandair: Gert ráð fyrir auknum hagnaði á milli ára og að EBIT hlutf...

Icelandair: Gert ráð fyrir auknum hagnaði á milli ára og að EBIT hlutfall verði 2-4% Icelandair gefur nú út afkomuspá fyrir árið 2024. Óvissa í rekstrarumhverfinu, sem fjallað var um í tilkynningu með uppgjöri ársins 2023 hinn 1. febrúar síðastliðinn, hefur minnkað. Bæði hafa áhrif af ónákvæmum fréttum af eldsumbrotum á Reykjanesi á bókanir minnkað ásamt því að nýgerðir langtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði skapa meiri stöðugleika.   Gert er ráð fyrir að flugframboð, í sætiskílómetrum, aukist um 10% frá fyrra ári. Áherslan verður á að auka framboð inn á markaði sem hafa mikla te...

 PRESS RELEASE

Icelandair: New Market Making Agreements

Icelandair: New Market Making Agreements Icelandair Group hf. (“Icelandair”) has entered into an agreement with Íslandsbanki hf. for market making of shares issued by the Company traded on the Nasdaq Iceland Regulated Market. The purpose of the agreement is to maintain the liquidity of Icelandair's shares, create a market price and the price formation of the shares in the most efficient and transparent manner.   The agreement stipulates that Íslandsbanki shall submit daily bids and offers to buy and sell Icelandair’s shares in the trading system of the Icelandic stock exchange. Each bid a...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch