FLY PLAY HF

Farþegum fjölgar milli ára

Farþegum fjölgar milli ára

PLAY flutti 128.119 farþega í apríl 2025, samanborið við 122.217 farþega í apríl 2024, sem jafngildir 5% aukningu milli ára. Þessi vöxtur endurspeglar áframhaldandi eftirspurn á kjarnamörkuðum PLAY og að breytingar á leiðakerfinu, þar sem aukin áhersla er á sólarlandaflug, er að skila árangri. 

Sætanýting í apríl 2025 var 82,6%, samanborið við 85,1% í apríl 2024. Þessi breyting skýrist að mestu ákvörðun PLAY að leggja aukna áherslu á sólarlandaflug frá Íslandi til Suður-Evrópu. Slíkar leiðir eru jafnan með lægri sætanýtingu þar sem ekki er sama tengifarþegaflæði (VIA) inn á leiðirnar, en skila að jafnaði hærri tekjum. Leiðakerfið inniheldur nú fleiri beinar flugferðir til Suður-Evrópu þar sem flestir farþegar ferðast beint milli áfangastaða.

Hlutfall farþega sem ferðuðust frá Íslandi jókst í 36,9% í apríl 2025, úr 30,0% árið áður. Sama þróun sést í farþegum til Íslands, þar sem hlutfallið fór úr 27,0% í 31,8%. Hlutfall tengifarþega (VIA) lækkaði hins vegar í 31,3%, samanborið við 43,0% í apríl 2024. Þessi þróun endurspeglar breytta áherslu PLAY á að þjónusta hinn mikilvæga markað farþega til Íslands og vaxandi markað frá Íslandi.

Stundvísi PLAY var 92,7% í apríl 2025, samanborið við 89,4% í apríl 2024. Þessi niðurstaða undirstrikar áherslu félagsins á stundvísi og áreiðanleika.

Horfur fyrir sumarið 2025 eru jákvæðar, þar sem sjá má framfarir á sætanýtingu og einingatekjum, borið saman við sama tímabil í fyrra. Bókunarstaða farþega á leið til og frá Íslandi er góð og eykur PLAY enn úrvalið til sólarlandaáfangastaða með því að bjóða upp á tvo nýja áfangastaði í sumar, Antalya í Tyrklandi og Faro í Portúgal.

Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY:

„Frammistaðan í apríl sýnir að nýja stefnan okkar er að skila árangri og á samstarfsfólk mitt hjá PLAY allt lof skilið fyrir að láta nýja viðskiptalíkanið okkar verða að veruleika. Við sjáum mikla eftirspurn á lykil mörkuðum og áherslan á flug til sólarlanda er vel tekið. Þó að þessar leiðir séu jafnan með aðeins lægri sætanýtingu, eru þær með hærri tekjur og aukna arðsemi. Bókunarstaðan er góð fyrir komandi mánuði og við sjáum fram á gott sumar þar sem við munum leggja okkur öll fram við að veita farþegum okkar frábæra þjónustu á góðu verði.”



Viðhengi



EN
07/05/2025

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Sonja Arnórsdóttir (CCO) Departs from PLAY

Fly Play hf.: Sonja Arnórsdóttir (CCO) Departs from PLAY   Sonja Arnórsdóttir (Chief Commercial Officer) has departed from PLAY. Her responsibilities will be transferred to the CEO’s office and will fall under the supervision of the company’s CEO, Einar Örn Ólafsson. “Sonja has overseen the implementation of our sales and service processes. Today, we have robust sales systems in place that will serve the company well going forward. In addition, strong service standards have been established, which are clearly reflected in the customer satisfaction scores we receive. Our NPS score has in...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Sonja lætur af störfum

Fly Play hf.: Sonja lætur af störfum   Sonja Arnórsdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri tekna- og þjónustusviðs (CCO).  Verkefni sem heyrðu undir Sonju munu færast yfir á skrifstofu forstjóra og heyra þá undir forstjóra fyrirtækisins, Einar Örn Ólafsson. „Sonja hefur haft yfirumsjón með að leiða inn sölu- og þjónustuferla innan fyrirtækisins. Í dag stöndum við uppi með kröftug sölukerfi sem munu reynast fyrirtækinu vel. Þar að auki hafa verið innleidd öflug þjónustuviðmið sem sést hvað best í þeirri einkunn sem við fáum í þjónustukönnunum. NPS-skorið okkar hefur hækkað hra...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Notice of Shareholders’ Meeting

Fly Play hf.: Notice of Shareholders’ Meeting Shareholders’ Meeting of Fly Play hf. The Board of Directors of Fly Play hf. hereby convenes a shareholders’ meeting on August 15, 2025, at 16:00, at the company’s headquarters at Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík. Agenda of the meeting: Proposal to authorize the Board of Directors to issue convertible bonds with an initial principal amount of up to ISK 2,425,000,000 and to authorize the Board to issue new share capital with a nominal value of up to ISK 3,500,000,000 to fulfill conversion rights of bondholders. Proposal to amend the Arti...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fundarboð

Fly Play hf.: Fundarboð Hluthafafundur Fly Play hf. Stjórn Fly Play hf. boðar til hluthafafundar félagsins 15. ágúst 2025 kl. 16:00, á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík. Dagskrá fundarins: Tillaga um að veita stjórn félagsins heimild til að gefa út skuldabréf með breytirétti að upphaflegri höfuðstólsfjárhæð allt að kr. 2.425.000.000 og heimild stjórnar til að gefa út nýtt hlutafé að nafnverði allt kr. 3.500.000.000 til að mæta breytirétti skuldabréfaeigenda.Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins í samræmi við framangreinda heimild.Önnur mál löglega fram bo...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Afkomuviðvörun

Fly Play hf.: Afkomuviðvörun Undirbúningur árshlutauppgjörs fyrir 2. ársfjórðung 2025 bendir til þess að afkoma verði lakari en á sama tímabili í fyrra og undir væntingum. Fyrirtækið gerir ráð fyrir tapi upp á um það bil 16 milljónir Bandaríkjadala á 2. ársfjórðungi 2025, samanborið við tap upp á 10 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Frávik frá væntingum má að mestu leiti rekja til eftirfarandi þátta sem félagið hefur ekki áhrif á: • Neikvæð gengisáhrif upp á um það bil 2,5 milljónir dala vegna styrkingar íslensku krónunnar, sem hafði aðallega áhrif á laun, afgreiðslu- og flugval...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch