FLY PLAY HF

Fly Play hf. - Aðalfundur 6. apríl 2022

Fly Play hf. - Aðalfundur 6. apríl 2022

Aðalfundur Fly Play hf.

Aðalfundur Fly Play hf. verður haldinn miðvikudaginn 6. apríl 2022 kl. 16:00 í Iðnó, menningarhúsi við Tjörnina, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík.

DRÖG AÐ DAGSKRÁ:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi liðins starfsárs
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýringum endurskoðanda, lagður fram til samþykktar
  3. Atkvæðagreiðsla um hvernig fara skuli með rekstrarniðurstöðu félagsins á árinu
  4. Kosning í stjórn félagsins
  5. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu
  6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og undirnefnda stjórnar
  7. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins
  8. Önnur mál, löglega upp borin

Þátttaka á fundinum verður bundin við þá sem mæta á staðinn en vefstreymi verður frá fundinum af vefsíðu félagsins:

Reglur um þátttöku og atkvæðagreiðslu á fundinum

Eitt atkvæði er fyrir hvern einnar krónu hlut. Á hluthafafundi ræður afl atkvæða nema öðruvísi sé fyrir mælt í landslögum eða samþykktum.

Hluthöfum sem ekki sækja aðalfund stendur til boða að kjósa um dagskrármál bréflega. Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa um slíka atkvæðagreiðslu að berast félaginu á netfangið .

Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá og leggja fram ályktunartillögur. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en fyrir kl. 12:00 þann 23. mars 2022.

Hluthafi getur veitt umboðsmanni skriflegt umboð sem skal dagsett. Umboð gildir aldrei lengur en eitt ár frá dagsetningu þess. Umboð má hvenær sem er afturkalla. Slík umboð skulu berast félaginu áður en aðalfundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Umboðseyðublöð verða aðgengileg á vefsíðu félagsins.

Aðrar upplýsingar

Endanleg dagskrá, tillögur stjórnar og fundarskjöl verða birt eigi síðar en 21. mars á vefsíðu félagsins: .  

Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík, virka daga milli kl. 9:00 og 16:00.

Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar a.m.k. þremur dögum fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá.

Samkvæmt 63. gr. a. laga nr. 2/1995 um hlutafélög skal tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm dögum fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 þann 1. apríl 2022. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Fundargögn verða afgreidd frá kl. 15:00 á aðalfundardegi.

Reykjavík, 11. mars 2022

Stjórn Fly Play  hf.

Viðhengi



EN
11/03/2022

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings Following PLAY’s announcement earlier today that the company had ceased operations, the company’s Board of Directors submitted a petition to the Reykjavik District Court earlier today for the company to be placed into bankruptcy proceedings. A ruling is expected to be issued tomorrow.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Í framhaldi á tilkynningu PLAY frá því fyrr í dag um að félagið hefði hætt starfsemi þá lagði stjórn félagsins fram beiðni fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur um að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þess er vænst að úrskurður verði kveðinn upp á morgun.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations The Board of Fly Play hf. has decided to cease operations. All of the company’s flights have been canceled. The company will work closely with authorities and employees to implement necessary measures to wind down operations. There are several reasons for this decision, including: the company’s performance has long been weaker than expected, ticket sales have been poor in recent weeks and months following negative media coverage of its operations, and there has been discontent among some employees due to changes in the company’s strategy. Great...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August PLAY carried 124,286 passengers in August 2025, compared to 187,960 passengers in August 2024. The difference year-on-year is primarily driven by the airline’s strategic shift in fleet deployment, with fewer aircraft operating within PLAY’s own route network due to ACMI leasing agreements with other operators. Despite the reduced capacity, the load factor was 89.6%, compared to 91.6% in August 2024. This slight decrease is a natural reflection of PLAY’s transition from a VIA-focused network, which typically achieves higher load fa...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch