FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Hærri farþegatölur og sætanýting í maí samhliða auknu framboði

Fly Play hf.: Hærri farþegatölur og sætanýting í maí samhliða auknu framboði



 

Hærri farþegatölur og sætanýting í maí samhliða auknu framboði

Flugfélagið flutti 146.692 farþega í maí 2024, sem er 14% aukning frá maí á síðasta ári þegar PLAY flutti 128.847 farþega. Sætanýting hjá PLAY í nýliðnum maí var 86,4%, samanborið við 84,8% í maí í fyrra. PLAY heldur því áfram að auka farþegafjölda og sætanýting samhliða aukningu í framboðnum sætiskílómetrum (ASK), en framboðið jókst um 11% á milli ára. Tekjur á hvern seldan sætiskílómetra (RPK) jukust jafnframt um 13% á milli ára.

Af þeim farþegum sem flugu með PLAY í maí 2024, voru 29,9% á leið frá Íslandi, 22,4% voru á leið til Íslands og 47,7% voru tengifarþegar (VIA). Í maí var því mikið um ferðalög frá Íslandi og stöðug eftirspurn eftir tengiflugi yfir Atlantshafið. Eftirspurn eftir flugi til Íslands er jafnan minni í maí en niðurstöður mánaðarins sýna sveigjanleikann í leiðakerfi PLAY til að bregðast við árstíðarbundnum sveiflum.

Stundvísi PLAY í maí var 86,8%, sem er ofar en ársmarkmið PLAY um 85% stundvísi.

Nýtt samkomulag við GDS og aukið samstarf við Dohop

PLAY hefur aukið samstarf sitt við flugleitarvefinn Dohop með opnun PLAY Connect. Þannig mun markaðssvæði PLAY stækka enn frekar þegar farþegar PLAY geta keypt tengiflug frá áfangastöðum PLAY með öðrum flugfélögum í einni bókun. Fyrst flugfélögin til að ganga í þetta samstarf við PLAY eru Norwegian, Azores Airlínes og Sky Express, en von er á samstarfi við fleiri flugfélög. Þetta gerir PLAY kleift að bjóða farþegum sínum hundruð tenginga til viðbótar um víða veröld frá áfangastöðum PLAY.



PLAY hefur einnig náð samkomulagi við GO7, sem er leiðandi tæknifyrirtæki í flugbransanum, um að stækka til muna dreifingu á vöruframboði PLAY. Flugferðir PLAY verða því aðgengilegar í dreifikerfinu GDS í gegnum GO7, sem gerir ferðaskrifstofum um allan heim kleift að bóka ferðir með PLAY í gegnum GDS.

Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY:

„Við náðum mjög viðunandi niðurstöðu í maí. Enn sjáum við farþegatölur hækka og sætanýtingu aukast hjá okkur þrátt fyrir aukið framboð. Þetta eru jákvæð teikn en við viljum gera betur á komandi mánuðum sem er sumarvertíðin sjálf, og við erum staðráðin í að gera það.

Við sjáum töluverða eftirspurn eftir ferðum frá Íslandi og tengiflugið yfir Atlantshafið gefur okkur möguleika á að halda uppi sætanýtingu þrátt fyrir að eftirspurn eftir ferðum til Íslands hafi örlítið gefið eftir. Fyrir því eru ýmsar ástæður, þar á meðal umfjöllun erlendra fjölmiðla um eldsumbrotin á Reykjanesskaga. En það sem við höfum einnig séð er stórsókn nágrannaríkja í markaðssetningu sem virðist vera að skila umtalsverðum árangri. Til að örva eftirspurnina eftir ferðum til Íslands þarf samhent átak allra ferðaþjónusta aðila og ekki síður yfirvalda. Ég trúi því að ef allir leggjast á eitt getum við sem samfélag aftur náð eyrum og augum erlendra ferðamanna og fengið þá til að upplifa okkar magnaða land.

Flugrekstur PLAY í maí mánuði gekk afar vel og sést það hvað best á stundvísishlutfalli félagsins sem var 86.8%. Það er afrakstur þrotlausrar vinnu samstarfsfólks míns hjá PLAY og eiga þau allt lof fyrir að skila hlutfallinu í maí hærra en ársmarkmiði okkar um 85% stundvísi.

Þá eru nýir samningar við Dohop og GO7 mikið framfaraskref fyrir PLAY sem mun stækka flugfélagið okkar enn frekar í Norður Ameríku og Evrópu. Með auknu samstarfi við Dohop munu farþegar okkar hafa aukið úrval tenginga sem gerir þeim kleift að komast á draumaáfangastaðinn sinn á viðráðanlegu verði. Samkomulagið við GO7 kemur okkur á alþjóðlegt markaðstorg ferðaskrifstofa, sem mun auka hróður félagsins enn frekar á þeim mörkuðum sem við störfum nú þegar á sem og nýjum markaðssvæðum.“



 

Viðhengi



EN
07/06/2024

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: PLAY issues a convertible bond amounting to ISK 2.4 bill...

Fly Play hf.: PLAY issues a convertible bond amounting to ISK 2.4 billion Fly Play hf. has secured binding, conditional subscription commitments from investors for the purchase of a convertible bond totaling ISK 2.4 billion, or approximately USD 20 million. Among the participants in this financing round are the company’s largest shareholders as well as new Icelandic investors. Attached is a company announcement providing further details on these plans.Also attached is a press release sent to the media on the same topic. Attachments ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: PLAY gefur út breytanlegt skuldabréf upp á 2,4 milljarða...

Fly Play hf.: PLAY gefur út breytanlegt skuldabréf upp á 2,4 milljarða króna Fly Play hf. hefur tryggti sér bindandi skilyrt áskriftarloforð um kaup fjárfesta á breytanlegu skuldabréfi að samanlögðu andvirði 2.425 milljónir króna, eða um USD 20 milljónir. Á meðal þeirra sem taka þátt í þessari fjármögnun eru stærstu eigendur félagsins og nýir íslenskir fjárfestar.  Í viðhengi er tilkynning frá félaginu þar sem nánar er greint frá þessum fyrirætlunum félagsins. Í viðhengi er einnig fréttatilkynning sem send er til fjölmiðla um sama efni. Viðhengi ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Plans of Takeover Withdrawn

Fly Play hf.: Plans of Takeover Withdrawn The Board of Directors of Fly Play hf. has received a notification from BBL 212 ehf. stating that it has withdrawn its plans to make a takeover bid for all shares in Fly Play hf. Attached is a document containing the notification from BBL 212 ehf. Attachment

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fallið frá áformum um yfirtöku

Fly Play hf.: Fallið frá áformum um yfirtöku Stjórn Fly Play hf. hefur borist tilkynning frá BBL 212 ehf. þess efnis að fallið er frá áformum um yfirtökutilboð á öllu hlutafé Fly Play hf. Meðfylgjandi er fylgiskjal sem inniheldur tilkynningun frá BBL 212 ehf. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: PLAY’s Strategic Shift Drives Improved load

Fly Play hf.: PLAY’s Strategic Shift Drives Improved load   PLAY airlines carried 116,023 passengers in June 2025, compared to 173,109 in June 2024. This reduction reflects the company's decision to change its business model and split it between scheduled operations in Iceland and leasing operations.Despite the decrease in total passengers and available seat kilometers (ASK), the load factor rose to 86.8% in June 2025, up from 86.0% in June 2024. This is particularly notable given PLAY’s shift toward leisure destinations in Southern Europe, which historically yield higher fares but often ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch