FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Jarðhræringar hafa áhrif á eftirspurn til skamms tíma  

Fly Play hf.: Jarðhræringar hafa áhrif á eftirspurn til skamms tíma  

Jarðhræringar hafa áhrif á eftirspurn til skamms tíma  



Jarðhræringarnar og líkur á eldgosi á Reykjanesskaga síðustu vikur hafa rataði í fyrirsagnir um víða veröld. Jarðhræringarnar hafa ekki haft áhrif á flugáætlun PLAY og Ísland er líkt og áður öruggur áfangastaður fyrir ferðamenn að heimsækja.   

Þessir atburðir hafa þó haft þau áhrif að eftirspurnin eftir ferðum til Íslands, sem bókaðar eru með skömmum fyrirvara, hefur verið minni og mun það hafa áhrif á afkomu félagsins.  

Þessir þættir gera það að verkum að afkomuspá ársins, sem birt var í september og aftur í þriðja ársfjórðungs uppgjöri félagsins í október, á ekki lengur við.  Lausafjárstaða félagsins verður ívið lægri en búist var við en verður engu að síður heilbrigð.   

PLAY hefur ráðist í ýmsar aðgerðir til að takmarka framangreind neikvæð áhrif á rekstur félagsins og lausafjárstöðu og aðlagast þessum breyttu aðstæðum, þar á meðal með því að breyta flugáætlun og framboði til að mæta minni eftirspurn á komandi vikum og mánuðum.   

 



Birgir Jónsson, forstjóri:  

„Við munum nota sveigjanleikann í okkar rekstri til að mæta þessum nýju áskorunum og starfsmenn PLAY hafa þegar hafið þá vinnu. Á síðustu tveimur vikum höfum við séð fyrirferðarmikinn fréttaflutning á heimsvísu þar sem hlutir hafa á köflum verið teknir úr samhengi. Þetta hefur haft áhrif á eftirspurn, og sérstaklega á eftirspurn eftir flugferðum til Íslands á aðventunni og á nýju ári.    

Það hafa þó verið skýr teikn á síðustu dögum dögum sem gefa til kynna að eftirspurnin sé að taka við sér á ný. Aukningin mun þó ekki reynast nægjanleg til að bæta upp þau áhrif sem atburðir síðustu vikna hafa haft til skamms tíma.   

Á þessum óvissutímum er hugur okkar hjá Grindvíkingum sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Margir af starfsmönnum PLAY eiga heimili í Grindavík eða rætur þangað að rekja og hefur PLAY boðið þeim starfsmönnum aðstoð til að bregðast við þessum erfiðu tímum. Við vonum að þessi staða leysist sem allra fyrst svo Grindvíkingar geti andað léttar og horft fram á veginn.   





 



EN
28/11/2023

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Impact of Potential Takeover on Company Operations

Fly Play hf.: Impact of Potential Takeover on Company Operations See the attached announcement from Fly Play hf. Attachment

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Áhrif mögulegrar yfirtöku á rekstur félagsins

Fly Play hf.: Áhrif mögulegrar yfirtöku á rekstur félagsins Sjá meðfylgjandi tilkynningu frá Fly Play hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Two of PLAY’s Largest Shareholders Seek to Acquire the C...

Fly Play hf.: Two of PLAY’s Largest Shareholders Seek to Acquire the Company Fly Play hf. has received a notification from the company BBL 212 hf. regarding a proposed voluntary takeover offer by BBL 212 hf. for all shares in Fly Play hf. The leading parties behind BBL 212 hf. are Einar Örn Ólafsson, investor and CEO of Fly Play hf., and Elías Skúli Skúlason, investor and Vice Chairman of the Board of Fly Play hf. The following documents are attached: Notification from BBL 212 hf. (in English)Press release about the plans of BBL 212 hf. (in Icelandic)Investor presentatio...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Tveir af stærstu hluthöfum Play vilja taka yfir félagið

Fly Play hf.: Tveir af stærstu hluthöfum Play vilja taka yfir félagið Fly Play hf. hefur borist tilkynning frá félaginu BBL 212 hf. um fyrirhugað valfrjálst yfirtökutilboð BBL 212 hf. í allt hlutafé Fly Play hf. Forvígismenn félagsins BBL 212 hf. eru Einar Örn Ólafsson, fjárfestir og forstjóri Fly Play hf, og Elías Skúli Skúlason, fjárfestir og varaformaður stjórnar Fly Play hf. Meðfylgjandi eru eftirfarandi skjöl: 1. Tilkynning félagsins BBL 212 hf. (á ensku). 2. Fréttatilkynning um fyrirtætlanir félagsins BBL 212 hf. (á íslensku). 3. Fjárfestakynning (á ensku). Nánari upplýsing...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Strong Bookings Signal Payoff from Leisure Strategy

Fly Play hf.: Strong Bookings Signal Payoff from Leisure Strategy PLAY carried 117,199 passengers in May 2025, compared to 146,692 passengers in May 2024, reflecting a 14.0% reduction in PLAY’s capacity for the month. This reduction is the result of the company’s decision to lease aircraft to SkyUp through its Maltese AOC and put more emphasis on the point-to-point leisure market out of Iceland. Load factor in May 2025 was 80.9%, compared to 86.4% in May 2024. Again, this aligns with PLAY's strategy to increase its focus on leisure destinations in Southern Europe. While these routes typ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch