FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Metmánuður hjá PLAY sem flutti 110.000 farþega með 87,9% sætanýtingu

Fly Play hf.: Metmánuður hjá PLAY sem flutti 110.000 farþega með 87,9% sætanýtingu

Metmánuður hjá PLAY sem flutti 110.000 farþega með 87,9% sætanýtingu

PLAY flutti 109.937 farþega í júlí, sem er 25 prósenta aukning frá mánuðinum áður þegar 87.932 farþegar flugu með PLAY. Fjöldi farþega í júlí 2022 er meiri en samanlagður fjöldi allra farþega sem PLAY flutti á árinu 2021. Sætanýting nam 87,9 prósentum í júlí samanborið við 78,2 prósent í júní og 69,6 prósent í maí.

Þessi hagfellda þróun helgast að mestu leyti af tengiflugi PLAY yfir Atlantshafið á milli stórborga í Evrópu og Bandaríkjunum. Félagið hefur rutt sér til rúms á nýjum mörkuðum með afgerandi hætti í vor og í sumar og styrkt stöðu sína enn frekar þar sem starfsemi var hafin. Júlímánuður markaði þau tímamót að hann var fyrsti mánuðurinn þar sem PLAY flaug á alla áfangastaði sem höfðu verið boðaðir í ár. Flogið var á sex Airbus-þotum til að þjónusta þessa 25 staði beggja vegna Atlantshafs.

PLAY var með 79 prósenta stundvísi í júlí sem telst mjög ásættanlegt sé litið til þess hve mörgum nýjum mörkuðum hefur verið bætt við og vegna krefjandi aðstæðna sem víða eru uppi vegna manneklu á flugvöllum erlendis.

Sex þotur í rekstri og tíu á næsta ári

Sjötta þota PLAY, Airbus A320neo, kom til Íslands um síðustu mánaðamót og flutti sína fyrstu farþega í júlí. PLAY er nú með þrjár Airbus A321neo og þrjár Airbus A320neo í rekstri, sem er í samræmi við rekstraráætlun og flotastefnu félagsins. PLAY fær fjórar A320/321 til viðbótar næsta vetur, sem mun gera fjölda Airbus-þota hjá félaginu tíu talsins vorið 2023.

„Það er frábært að sjá svona marga nýja áfangastaði og tengiflugið okkar yfir Atlantshafið á fullum afköstum. Leiðakerfið okkar er komið á fullan skrið og flytur sögulegan fjölda ánægðra viðskiptavina í hverjum mánuði. Í júlí vorum við á mjög góðri leið með stundvísina þrátt fyrir bagalegar aðstæður á flugvöllum. Við lítum á það sem afrek. Hver kostnaðareining (án eldsneytis) er enn undir fjórum bandarískum sentum, eldsneytisverð fer lækkandi, tekjueiningin fer hækkandi og bókunarstaðan er afar góð. Það hefur verið virkilega hvetjandi að fá að taka þátt í þessu ferli og verða vitni að þeim mikla liðsanda og fagmennsku sem einkennir alla mína samstarfsmenn. Allt þetta fyllir mig af eldmóði og eftirvæntingu fyrir komandi mánuðum og framtíð PLAY. Hún er björt,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY."



Viðhengi



EN
08/08/2022

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Strong Bookings Signal Payoff from Leisure Strategy

Fly Play hf.: Strong Bookings Signal Payoff from Leisure Strategy PLAY carried 117,199 passengers in May 2025, compared to 146,692 passengers in May 2024, reflecting a 14.0% reduction in PLAY’s capacity for the month. This reduction is the result of the company’s decision to lease aircraft to SkyUp through its Maltese AOC and put more emphasis on the point-to-point leisure market out of Iceland. Load factor in May 2025 was 80.9%, compared to 86.4% in May 2024. Again, this aligns with PLAY's strategy to increase its focus on leisure destinations in Southern Europe. While these routes typ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Sterk bókunarstaða samhliða áherslu á sólarlandaáfangast...

Fly Play hf.: Sterk bókunarstaða samhliða áherslu á sólarlandaáfangastaði Flugfélagið Play flutti 117.199 farþega í liðnum maí, borið saman við 146.692 farþega í maí 2024, sem endurspeglar 14.0% mun á framboði milli ára sem er bein afleiðing af ákvörðun PLAY að leigja farþegaþotur til SkyUp í gegnum maltneska flugrekstrarleyfið og að leggja meiri áherslu á bein flug frá Íslandi. Sætanýtingin í maí var 80.9%, borið saman við 86.4% í maí 2024, sem er aftur afleiðing af ákvörðun PLAY að auka framboð til sólarlandaáfangastaða í Suður-Evrópu. Sólarlandaáfangastaðir gefa af sér betri afkomu ...

 PRESS RELEASE

Passenger Increase Tied to Point-to-Point Success

Passenger Increase Tied to Point-to-Point Success PLAY carried 128,119 passengers in April 2025, compared to 122,217 passengers in April 2024. This represents a 5% increase in passenger numbers year-over-year. This growth reflects continued demand in PLAY’s core markets and a well-aligned route network for the early summer season. The load factor in April 2025 was 82.6%, compared to 85.1% in April 2024. This change is largely due to shift toward more leisure-oriented destinations, which historically see lower load factors due to reduced VIA feed but typically deliver higher yields. The net...

 PRESS RELEASE

Farþegum fjölgar milli ára

Farþegum fjölgar milli ára PLAY flutti 128.119 farþega í apríl 2025, samanborið við 122.217 farþega í apríl 2024, sem jafngildir 5% aukningu milli ára. Þessi vöxtur endurspeglar áframhaldandi eftirspurn á kjarnamörkuðum PLAY og að breytingar á leiðakerfinu, þar sem aukin áhersla er á sólarlandaflug, er að skila árangri.  Sætanýting í apríl 2025 var 82,6%, samanborið við 85,1% í apríl 2024. Þessi breyting skýrist að mestu ákvörðun PLAY að leggja aukna áherslu á sólarlandaflug frá Íslandi til Suður-Evrópu. Slíkar leiðir eru jafnan með lægri sætanýtingu þar sem ekki er sama tengifarþegaflæði ...

 PRESS RELEASE

Correction: Fly Play hf.: Financial Results Q1 2025

Correction: Fly Play hf.: Financial Results Q1 2025 Fly Play hf.: Financial Results Q1 2025 PLAY’s business plan continues to progress, with a clear focus on our most stable and profitable business segments: leisure and ACMI operations. Cash position strengthened to USD 21.1 million at the end of Q1 2025, up from USD 17.2 million. Operating costs in Q1 2025 were USD 58 million, compared to USD 66 million in Q1 2024. PLAY carried 286 thousand passengers in Q1 2025, compared to 349 thousand in Q1 2024. Load factor in Q1 2025 was 77.2%, compared to 81.8% in Q1 2024. These fi...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch