FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Niðurstöður aðalfundar og fyrirhugað almennt útboð

Fly Play hf.: Niðurstöður aðalfundar og fyrirhugað almennt útboð



 

Aðalfundur Fly Play hf. („PLAY“ eða „félagið“) var haldinn fimmtudaginn 21. mars 2024 og fór fram á Setrinu, Grand Hótel, Reykjavík. Meðfylgjandi í viðhengi er að finna helstu niðurstöður frá aðalfundinum.

Aðalfundur samþykkti heimild til stjórnar að hækka hlutafé félagsins um allt að 1.200.000.000 hluti að nafnvirði, í þeim tilgangi að efna áður tilkynnt áskriftarloforð, ásamt því að efna til almenns útboðs. Eins og fram kemur hér að neðan mun verður heimildin ekki að fullu nýtt. 

Upplýst var á fundinum að stjórn félagsins mun nýta framangreinda heimild þannig:

  • 1.000.000.000 hlutum á áskriftargenginu kr. 4,5 á hvern hlut verður ráðstafað til að efna skuldbindingu félagsins samkvæmt þegar mótteknum áskriftarloforðum að samanlagðri fjárhæð 4.500.000.000 krónum frá fjárfestum úr hópi núverandi hluthafa og annarra fjárfesta.
  • Allt að 111.111.112 hlutir á áskriftargenginu kr. 4,5 á hvern hlut að nafnverði að samanlagðri fjárhæð allt að 500.000.004 krónur, verða boðnir í almennu útboði sem mun fara fram dagana 9. apríl 2024 til 11. apríl 2024.  
  • Ónýttur hluti heimildarinnar mun falla niður.

Aðrar tillögur stjórnar sem voru lagðar fyrir fundinn voru einnig samþykktar.

Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund var Sigurður Kári Kristjánsson kjörinn formaður stjórnar og Elías Skúli Skúlason varaformaður stjórnar.

Þá var sjálfbærniskýrsla félagsins einnig birt að morgni fundardags á .

Almennt útboð dagana 9. til 11. apríl 2024

Til viðbótar við framangreind áskriftarloforð mun PLAY efna til almenns útboðs á allt að 111.111.112 nýjum hlutum að nafnverði í PLAY á áskriftargenginu 4,5 krónur á hvern hlut, að jafnvirði allt að 500.000.004 krónum.. Til að tryggja jafnræði hluthafa munu núverandi hluthafar, aðrir en þeir sem hafa nú þegar skráð sig fyrir nýjum hlutum, njóta forgangs til áskriftar ef til umframáskriftar kemur.

Útboðið hefst kl. 10:00 (GMT) þriðjudaginn 9. apríl 2024 og lýkur fimmtudaginn 11. apríl 2024 kl. 16:00 (GMT). Útgefandi og umsjónaraðili áskilja sér rétt til að framlengja áskriftartímabilið. Tekið verður við áskriftum fjárfesta á sérstöku rafrænu áskriftarformi sem fjárfestar geta nálgast á vefslóðinni .

Opinn kynningarfundur verður haldinn kl. 10:00 þriðjudaginn 9. apríl 2024 á skrifstofum PLAY að Suðurlandsbraut 14. Vefstreymið verður aðgengilegt á vefslóðinni og á .

Fyrirhugað er að samandregnar niðurstöður útboðsins liggi fyrir og verði tilkynntar opinberlega þann 11. apríl 2024 og niðurstöður úthlutunar tilkynntar áskrifendum þann 15. apríl 2024. Gjalddagi greiðsluseðla vegna útboðsins er fyrirhugaður þann 23. apríl 2024.

Fjárfestar geta nálgast upplýsingar um útboðið og aðstoð við skráningu áskrifta hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance á tölvupóstfanginu eða í síma 513-3300 og Fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingarbanka á tölvupóstfanginu  eða í síma 522-4000, milli kl 09:00 og 16:00 dagana 9. apríl 2024 til 11. apríl 2024.

Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 14/2020, um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.

Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu, útgáfu og töku hinna nýju hlutabréfa til viðskipta ásamt því að annast innheimtu og uppgjör viðskiptanna í tengslum við útboðið. Arctica Finance hf. og Fossar fjárfestingarbanki hf. eru sameiginlegir söluaðilar í útboðinu og hefur Greenhill (Mizuho) veitt félaginu ráðgjöf.



 

Viðhengi



EN
21/03/2024

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings

Fly Play hf.: Petition for bankruptcy proceedings Following PLAY’s announcement earlier today that the company had ceased operations, the company’s Board of Directors submitted a petition to the Reykjavik District Court earlier today for the company to be placed into bankruptcy proceedings. A ruling is expected to be issued tomorrow.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum

Fly Play hf.: Óskað eftir gjaldþrotaskiptum Í framhaldi á tilkynningu PLAY frá því fyrr í dag um að félagið hefði hætt starfsemi þá lagði stjórn félagsins fram beiðni fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur um að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þess er vænst að úrskurður verði kveðinn upp á morgun.

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations

Fly Play hf.: Fly Play hf. ceases operations The Board of Fly Play hf. has decided to cease operations. All of the company’s flights have been canceled. The company will work closely with authorities and employees to implement necessary measures to wind down operations. There are several reasons for this decision, including: the company’s performance has long been weaker than expected, ticket sales have been poor in recent weeks and months following negative media coverage of its operations, and there has been discontent among some employees due to changes in the company’s strategy. Great...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi

Fly Play hf.: Fly Play hf. hættir starfsemi Stjórn Fly Play hf. hefur tekið þá ákvörðun að hætta starfsemi og hafa öll flug félagsins verið felld niður. Unnið verður náið með yfirvöldum og starfsfólki við að innleiða þær aðgerðir sem nauðsynlegar eru til þess að leggja niður starfsemi félagsins.Ástæður þessarar ákvörðunar eru margar, þ.m.t.; rekstur félagsins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flugmiðasala hefur ekki gengið vel síðustu vikur og mánuði í kjölfar neikvæðrar fjölmiðlaumfjöllunar um reksturinn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfsmanna félagsins vegna breytinga ...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August

Fly Play hf.: Unit revenue reached a record high for August PLAY carried 124,286 passengers in August 2025, compared to 187,960 passengers in August 2024. The difference year-on-year is primarily driven by the airline’s strategic shift in fleet deployment, with fewer aircraft operating within PLAY’s own route network due to ACMI leasing agreements with other operators. Despite the reduced capacity, the load factor was 89.6%, compared to 91.6% in August 2024. This slight decrease is a natural reflection of PLAY’s transition from a VIA-focused network, which typically achieves higher load fa...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch