FLY PLAY HF

Fly Play hf.: Sterk bókunarstaða samhliða áherslu á sólarlandaáfangastaði

Fly Play hf.: Sterk bókunarstaða samhliða áherslu á sólarlandaáfangastaði



Flugfélagið Play flutti 117.199 farþega í liðnum maí, borið saman við 146.692 farþega í maí 2024, sem endurspeglar 14.0% mun á framboði milli ára sem er bein afleiðing af ákvörðun PLAY að leigja farþegaþotur til SkyUp í gegnum maltneska flugrekstrarleyfið og að leggja meiri áherslu á bein flug frá Íslandi.

Sætanýtingin í maí var 80.9%, borið saman við 86.4% í maí 2024, sem er aftur afleiðing af ákvörðun PLAY að auka framboð til sólarlandaáfangastaða í Suður-Evrópu. Sólarlandaáfangastaðir gefa af sér betri afkomu en þar sem um er að ræða beint flug frá Íslandi þar sem tengifarþegar eru ekki fyrir hendi, kemur það jafnan niður á sætanýtingu.

Af þeim farþegum sem flugu með PLAY í maí voru 39.0% á leið frá Íslandi, 29.3% á leið til Íslands og 31.7% voru tengifarþegar (VIA).

Stundvísi PLAY í maí var 92.3%, borið saman við 86.8% í maí 2024.

Horfur fyrir sumarið 2025 eru jákvæðar þar sem sjá má framfarir á bæði sætanýtingu og einingatekjum, borið saman við sama tímabil í fyrra. Það gefur til kynna að áhersla PLAY á að auka framboð til sólarlanda er að skila árangri og hefur PLAY sýnt í verki þær yfirlýsingar sínar um að leggja áherslu á slíka áfangastaði þar sem framboðið jókst um 26% á milli ára í maí.

PLAY býður beint flug til Agadir

PLAY mun fljúga vikulega á föstudögum til Agadír í Marokkó frá 19. desember fram í miðjan apríl 2026. Agadír er nýjast sólarlandaáfangastaður PLAY en flugið þangað er um fimm hálf klukkustund. Loftslagið í Agadir er svipað og á Tenerife en borgin nýtur sólskins um 300 daga á ári. Borgin er þekkt fyrir gylltar strendur, golfvelli á heimsmælikvarða og vinalegt viðmót. PLAY mun einnig fljúga tvisvar í viku til Marrakesh í Marokkó frá október til apríl 2026.

PLAY verður því með 16 sólarlandaáfangastaði í leiðkerfinu sínu í ár, þar á meðal átta á Spáni, fjóra í Portúgal, ásamt Split í Króatíu og Antalýu í Tyrklandi.

Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY:

„Við erum að fara inn í öflugt sumar þar sem sætanýting og einingatekjur eru yfir síðasta sumri. Það sýnir að ákvörðun okkar um að auka framboð til sólarlanda er að skila þeirri niðurstöðu sem við lögðum upp með að ná.

Við hófum formlega samstarf við SkyUp þegar tvær af farþegaþotum okkar fóru í leiguverkefni fyrir félagið í gegnum maltneska flugrekstrarleyfið nú í maí. Tvær þotur til viðbótar fara í verkefnið í sumar. Þetta verkefni er einn af hornsteinum nýs viðskiptalíkans PLAY sem skapar okkur meiri fyrirsjáanleika í rekstrinum.

Ég er einstaklega stoltur af stundvísinni félagsins í maí. Við náðum 92.3% sem er framúrskarandi árangur og sýnir þann mikla aga og fagmennsku sem býr í samstarfsfólki mínu hjá PLAY. Nú fara í hönd annasömustu mánuðir ársins og eins og áður munum við hjá PLAY leggja allt kapp á að bjóða upp á ódýr flugfargjöld og frábæra þjónustu fyrir farþega okkar.“



Viðhengi



EN
06/06/2025

Reports on FLY PLAY HF

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Impact of Potential Takeover on Company Operations

Fly Play hf.: Impact of Potential Takeover on Company Operations See the attached announcement from Fly Play hf. Attachment

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Áhrif mögulegrar yfirtöku á rekstur félagsins

Fly Play hf.: Áhrif mögulegrar yfirtöku á rekstur félagsins Sjá meðfylgjandi tilkynningu frá Fly Play hf.  Viðhengi

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Two of PLAY’s Largest Shareholders Seek to Acquire the C...

Fly Play hf.: Two of PLAY’s Largest Shareholders Seek to Acquire the Company Fly Play hf. has received a notification from the company BBL 212 hf. regarding a proposed voluntary takeover offer by BBL 212 hf. for all shares in Fly Play hf. The leading parties behind BBL 212 hf. are Einar Örn Ólafsson, investor and CEO of Fly Play hf., and Elías Skúli Skúlason, investor and Vice Chairman of the Board of Fly Play hf. The following documents are attached: Notification from BBL 212 hf. (in English)Press release about the plans of BBL 212 hf. (in Icelandic)Investor presentatio...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Tveir af stærstu hluthöfum Play vilja taka yfir félagið

Fly Play hf.: Tveir af stærstu hluthöfum Play vilja taka yfir félagið Fly Play hf. hefur borist tilkynning frá félaginu BBL 212 hf. um fyrirhugað valfrjálst yfirtökutilboð BBL 212 hf. í allt hlutafé Fly Play hf. Forvígismenn félagsins BBL 212 hf. eru Einar Örn Ólafsson, fjárfestir og forstjóri Fly Play hf, og Elías Skúli Skúlason, fjárfestir og varaformaður stjórnar Fly Play hf. Meðfylgjandi eru eftirfarandi skjöl: 1. Tilkynning félagsins BBL 212 hf. (á ensku). 2. Fréttatilkynning um fyrirtætlanir félagsins BBL 212 hf. (á íslensku). 3. Fjárfestakynning (á ensku). Nánari upplýsing...

 PRESS RELEASE

Fly Play hf.: Strong Bookings Signal Payoff from Leisure Strategy

Fly Play hf.: Strong Bookings Signal Payoff from Leisure Strategy PLAY carried 117,199 passengers in May 2025, compared to 146,692 passengers in May 2024, reflecting a 14.0% reduction in PLAY’s capacity for the month. This reduction is the result of the company’s decision to lease aircraft to SkyUp through its Maltese AOC and put more emphasis on the point-to-point leisure market out of Iceland. Load factor in May 2025 was 80.9%, compared to 86.4% in May 2024. Again, this aligns with PLAY's strategy to increase its focus on leisure destinations in Southern Europe. While these routes typ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch