KALD Kaldalon hf

Kaldalón hf.: Boðun hluthafafundar

Kaldalón hf.: Boðun hluthafafundar

Stjórn Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík („félagið“), boðar til hluthafafundar í félaginu fimmtudaginn 2. nóvember 2023 kl. 16:30. Fundurinn verður haldinn á Grand hótel, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:

1.         Tillaga stjórnar um öfuga skiptingu hluta miðað við hlutfallið 10:1

2.         Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins til að endurspegla öfuga skiptingu hluta auk fyrirhugaðra breytinga er snúa að undirbúningi félagsins til skráningar á aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Aðrar upplýsingar:

Ekki verður boðið upp á rafræna þátttöku á fundinum en hluthöfum gefst kostur á að senda umboðsmann á fundinn sem greiðir atkvæði fyrir þeirra hönd. Umboðsmaður skal leggja fram dagsett og skriflegt umboð við upphaf fundar eða rafrænt umboð. Óskað er eftir að umboð berist tímanlega fyrir dagsetningu hluthafafundar á netfangið og skal það vera undirritað af hluthafa eða prókúruhafa. Einnig er fundarmanni heimilt að framvísa umboði við mætingu á hluthafafund en þá skal þess gætt að mæta tímanlega til að hægt sé að yfirfara umboðið með tilliti til gildis þess. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins.

Allar nánari upplýsingar um hluthafafundinn má finna á .

Reykjavík, 26. október 2023

F.h. stjórnar Kaldalóns hf.

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason

stjórnarformaður



EN
26/10/2023

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kaldalon hf

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025 Kaldalón hf. will publish its financial results and trading updates as per the following schedule: 2024 Annual Financial Statement:March 7, 2025Annual General MeetingApril 3, 2025Q1 2025 Trading updateMay 22, 2025H1 2025 Half-year ResultsAugust 28, 2025Q3 2025 Trading updateNovember 20, 2025 All financial information will be released after market close. Please note that the dates are subject to change. For further information, please contact:Jón Þór Gunnarsson, CEO of Kaldalón hf.Email:

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025 Eftirfarandi dagsetningar eru áætlanir Kaldalóns hf. um birtingu uppgjöra, tilkynninga og aðalfund félagsins: Ársuppgjör 20247. mars 2025Aðalfundur 20253. apríl 2025Tilkynning 2025 1F22. maí 2025Hálfsársuppgjör 202528. ágúst 2025Tilkynning 2025 3F20. nóvember 2025 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.  Nánari upplýsingar veitir;Jón Þór Gunnarsson, forstjóri 

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024 Vísað er til tilkynningar félagsins frá 3. desember 2024. Í tilkynningunni kom fram að stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu.  Meðfylgjandi er tilkynning frá Kaldalón hf. vegna fyrstu níu mánaða ársins 2024.  Viðhe...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga Samkvæmt fjárhagsdagatali Kaldalóns birtir félagið hálfsárs- og ársuppgjör félagsins opinberlega. Stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu. Regluleg birting viðbótar upplýsinga er gerð með það að markmiði að veita hluthöfum og fjárf...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf.

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf. Vísað er til tilkynningar frá 22. október sl. þar sem tilkynnt var um kaup Kaldalóns  á öllu hlutafé í annars vegar IDEA ehf. („IDEA“) og hinsvegar K190 hf. („K190“). Fyrirvarar í kaupsamningum vegna beggja félaga hafa nú verið uppfylltir. Uppgjör og afhending IDEA hefur nú farið fram en aðilar komust að samkomulagi um að fasteignirnar Leirukrókur 2-3 yrðu undanskildar viðskiptunum. Uppgjör og afhending K190 verður þriðjudaginn 3. desember nk. Endanlegt heildarvirði ofangreindra félaga í viðskiptunum er 7.855 m.kr. Lei...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch