Kaldalón hf.: Kaupsamningar undirritaðir
Vísað er til tilkynningar Kaldalóns hf.: dags. 22. desember sl.
Kaupsamningur hefur verið undirritaður milli Kaldalóns hf. og Fasteignastýring ehf., dótturfélags Kaldalóns, annarsvegar og Skel fjárfestingafélags hf. og Löður ehf. hinsvegar vegna kaupa á 13 þjónustustöðvum í eigu Skel fjárfestingafélags hf. og Löðurs ehf.
Kaupverð fasteignanna er óbreytt frá því sem tilgreint var í fyrri tilkynningu og greiðist annars vegar með krónum 3.593.400.000 í reiðufé og 1.287.956.989 nýjum hlutum að nafnvirði í Kaldalóni á genginu 1,86 sem var meðalgengi síðustu tveggja vikna fyrir samkomulag milli aðila. Kaupsamningarnir eru háðir óverulegum fyrirvörum sem ráðgert er að verði uppfylltir á næstu vikum.
Samhliða kaupsamningum eru undirritaðir langtíma leigusamningar við Orkan IS, dótturfélag Skel fjárfestingarfélags ehf. Leigusamningar njóta móðurfélagsábyrgðar frá Skel fjárfestingarfélagi hf. til 30 mánaða auk leigu- og umhverfistrygginga þegar móðurfélagsábyrgð lýkur. Leigusamningar eru byggðir upp með þeim hætti að helsti rekstrarkostnaður s.s viðhald, endurnýjun, umhirða o.fl. er á ábyrgð leigutaka. Leigutekjur nema um kr. 416 m.kr. árlega. Áætlað er að rekstrarhagnaður (NOI) Kaldalóns hækki um 360 m.kr við kaupin.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi í kaupunum.
Þá hefur kaupsamningur vegna kaupa á Víkurhvarfi 1 ehf. verið undirritaður og mun greiðsla með útgáfu hlutfjár í Kaldalón hf. nema að markaðsvirði 381.000.000 eða 202.659.574 nýjum hlutum að nafnvirði. Helsta eign Víkurhvarfs 1 ehf. er vöruhúsnæði að Víkurhvarfi 1 í fullri útleigu.
Nánari upplýsingar veitir Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
