KALD Kaldalon hf

Kaldalón hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Kaldalón hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Hluthafafundur Kaldalóns hf. var haldinn 2. júlí 2024. Á fundinum var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að félagið, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, eigi allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 1.119.568.483 eða 111.956.848 hluti (hver að nafnvirði tíu krónur), í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Heimild þessi gildir til 2. júlí 2026.

Áætlað er nú að kaupa allt að 17.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri kr. 300.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hefst miðvikudaginn 3. júlí 2024 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2024.

Acro verðbréf hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. 

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 889.295 hlutir á dag sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í júní 2024. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.

Nánari upplýsingar veitir

Jón Þór Gunnarsson, forstjóri





EN
02/07/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kaldalon hf

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025 Kaldalón hf. will publish its financial results and trading updates as per the following schedule: 2024 Annual Financial Statement:March 7, 2025Annual General MeetingApril 3, 2025Q1 2025 Trading updateMay 22, 2025H1 2025 Half-year ResultsAugust 28, 2025Q3 2025 Trading updateNovember 20, 2025 All financial information will be released after market close. Please note that the dates are subject to change. For further information, please contact:Jón Þór Gunnarsson, CEO of Kaldalón hf.Email:

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025 Eftirfarandi dagsetningar eru áætlanir Kaldalóns hf. um birtingu uppgjöra, tilkynninga og aðalfund félagsins: Ársuppgjör 20247. mars 2025Aðalfundur 20253. apríl 2025Tilkynning 2025 1F22. maí 2025Hálfsársuppgjör 202528. ágúst 2025Tilkynning 2025 3F20. nóvember 2025 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.  Nánari upplýsingar veitir;Jón Þór Gunnarsson, forstjóri 

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024 Vísað er til tilkynningar félagsins frá 3. desember 2024. Í tilkynningunni kom fram að stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu.  Meðfylgjandi er tilkynning frá Kaldalón hf. vegna fyrstu níu mánaða ársins 2024.  Viðhe...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga Samkvæmt fjárhagsdagatali Kaldalóns birtir félagið hálfsárs- og ársuppgjör félagsins opinberlega. Stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu. Regluleg birting viðbótar upplýsinga er gerð með það að markmiði að veita hluthöfum og fjárf...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf.

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf. Vísað er til tilkynningar frá 22. október sl. þar sem tilkynnt var um kaup Kaldalóns  á öllu hlutafé í annars vegar IDEA ehf. („IDEA“) og hinsvegar K190 hf. („K190“). Fyrirvarar í kaupsamningum vegna beggja félaga hafa nú verið uppfylltir. Uppgjör og afhending IDEA hefur nú farið fram en aðilar komust að samkomulagi um að fasteignirnar Leirukrókur 2-3 yrðu undanskildar viðskiptunum. Uppgjör og afhending K190 verður þriðjudaginn 3. desember nk. Endanlegt heildarvirði ofangreindra félaga í viðskiptunum er 7.855 m.kr. Lei...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch