KALD Kaldalon hf

Kaldalón hf.: Tilkynning vegna aðalfundar

Kaldalón hf.: Tilkynning vegna aðalfundar

TILKYNNING VEGNA  AÐALFUNDAR

Vísað er til tilkynningar Kaldalóns frá 31. mars 2021 um boðun aðalfundar Kaldalóns hf., kt. 490617-1320, sem haldinn verður mánudaginn 19. apríl 2021, kl. 16:00, að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík,  9.hæð.

Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi liðir:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2020 og ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á reikningsárinu.
  3. Kosning og skipun stjórnar og varastjórnar.
  4. Kjör endurskoðanda félagsins.
  5. Starfskjarastefna félagsins.
  6. Ákvörðun þóknunar til stjórnarmanna og endurskoðanda.
  7. Samantekt stjórnar um hlutafjáreign og samstæðutengsl.
  8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.

Aðilar í framboði til stjórnar Kaldalóns hf.

Eftirfarandi aðilar eru í framboði til stjórnar Kaldalóns hf.:

Aðalmenn       

Jón Skaftason

Jón Skaftason er fæddur árið 1983.  Hann er framkvæmdastjóri Strengs Holding ehf., Strengs hf. og framkvæmdastjóri fjárfestinga hjá 365. Jón er stjórnarformaður danska húsgagnaframleiðandans Nor11 og breska smásölufélagsins Sleep Solutions Limited. Jón starfaði áður sem lögmaður hjá LOGOS Legal Services í London. Jón er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og LL.M. í Corporate Law frá University College í London. Þá hefur hann réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi.

Helen Neely

Helen Neely er fædd árið 1972.  Hún hefur setið í stjórn Kaldalóns frá árinu 2019. Hún er framkvæmdastjóri og eigandi Konkrit ehf. sem hún stofnaði árið 2016. Áður var hún eigandi, fjármála- og rekstrarstjóri og stjórnarmaður í ÞG Verktökum ehf., Einingaverksmiðjunni ehf., Arcus ehf. og Sp/f Tgverk og Sp/f Lövebetong í Færeyjum. Helen útskrifaðist með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011

Gunnar Hendrik Gunnarsson

Gunnar Hendrik Gunnarsson er fæddur árið 1974.  Hann hefur setið í stjórn Kaldalóns frá árinu 2020 og í varastjórn félagsins frá árinu 2019. Hann er stjórnarmaður í GG optic ehf. Smárahvammi ehf., A.M.W ehf., Auganu ehf., Prooptik ehf., Trausttaki ehf., Investar ehf. og RES ehf,

Varamenn

Steinþór Ólafsson

Steinþór Ólafsson er fæddur árið 1960. Hann hefur setið í stjórn eða varastjórn Kaldalóns frá árinu 2019. Hann starfar sem sjálfstæður fjárfestir og ráðgjafi.  Hann var áður framkvæmdastjóri Sæplasts ehf. og einn af eigendum Slippstöðvarinnar á Akureyri.  Steinþór er verkfræðingur frá University of Southern California.

Sóttvarnarreglur

Vegna sóttvarnarreglna getur þurft að takmarka aðgang að fundarsal og því verður boðið upp á streymi af fundinum og geta hluthafar tekið rafrænt þátt í fundinum. Þeir hluthafar sem þess óska eru beðnir um að senda póst á netfangið og tilgreina nafn og kennitölu og þeim verður veittur aðgangur að fundinum.

Reykjavík 16. apríl 2021

Stjórn Kaldalóns

 

Viðhengi



EN
16/04/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kaldalon hf

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025

Kaldalón hf.: Financial Calendar 2025 Kaldalón hf. will publish its financial results and trading updates as per the following schedule: 2024 Annual Financial Statement:March 7, 2025Annual General MeetingApril 3, 2025Q1 2025 Trading updateMay 22, 2025H1 2025 Half-year ResultsAugust 28, 2025Q3 2025 Trading updateNovember 20, 2025 All financial information will be released after market close. Please note that the dates are subject to change. For further information, please contact:Jón Þór Gunnarsson, CEO of Kaldalón hf.Email:

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025

Kaldalón hf.: Fjárhagsdagatal 2025 Eftirfarandi dagsetningar eru áætlanir Kaldalóns hf. um birtingu uppgjöra, tilkynninga og aðalfund félagsins: Ársuppgjör 20247. mars 2025Aðalfundur 20253. apríl 2025Tilkynning 2025 1F22. maí 2025Hálfsársuppgjör 202528. ágúst 2025Tilkynning 2025 3F20. nóvember 2025 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.  Nánari upplýsingar veitir;Jón Þór Gunnarsson, forstjóri 

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024

Kaldalón hf.: Tilkynning eftir 3. ársfjórðung 2024 Vísað er til tilkynningar félagsins frá 3. desember 2024. Í tilkynningunni kom fram að stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu.  Meðfylgjandi er tilkynning frá Kaldalón hf. vegna fyrstu níu mánaða ársins 2024.  Viðhe...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga

Kaldalón hf.: Birting fjárhagsupplýsinga Samkvæmt fjárhagsdagatali Kaldalóns birtir félagið hálfsárs- og ársuppgjör félagsins opinberlega. Stjórn Kaldalóns hefur tekið ákvörðun um að birta viðbótar upplýsingar úr rekstri félagsins sem birtar verða milli árs- og hálfsársuppgjöra félagsins. Þær upplýsingar sem félagið hyggst birta verða óendurskoðaðar stjórnendaupplýsingar fyrir fyrsta og þriðja ársfjórðung sem sýna rekstur félagsins, stöðu á efnahagsreikningi og helstu áfanga félagsins á tímabilinu. Regluleg birting viðbótar upplýsinga er gerð með það að markmiði að veita hluthöfum og fjárf...

 PRESS RELEASE

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf.

Kaldalón hf.: Frágangur viðskipta vegna kaupa á Idea ehf. og K190 hf. Vísað er til tilkynningar frá 22. október sl. þar sem tilkynnt var um kaup Kaldalóns  á öllu hlutafé í annars vegar IDEA ehf. („IDEA“) og hinsvegar K190 hf. („K190“). Fyrirvarar í kaupsamningum vegna beggja félaga hafa nú verið uppfylltir. Uppgjör og afhending IDEA hefur nú farið fram en aðilar komust að samkomulagi um að fasteignirnar Leirukrókur 2-3 yrðu undanskildar viðskiptunum. Uppgjör og afhending K190 verður þriðjudaginn 3. desember nk. Endanlegt heildarvirði ofangreindra félaga í viðskiptunum er 7.855 m.kr. Lei...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch