KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á fyrsta ársfjórðungi 2024

Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á fyrsta ársfjórðungi 2024

Á stjórnarfundi þann 2. maí 2024 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir fyrsta ársfjórðung 2024.

Í árshlutareikningi samstæðu Kviku fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024 er tryggingafélagið TM tryggingar hf. („TM“) flokkað sem eign haldið til sölu. Þar af leiðandi og í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla færir samstæðan tekjur af tryggingastarfsemi sinni í einni línu í rekstrarreikningi sem hagnað eftir skatta af aflagðri starfsemi. Samanburðartölur við rekstur ársins 2023 hafa verið uppfærðar til samræmis.

Helstu atriði fyrsta ársfjórðungs 2024:

  • Hagnaður fyrir skatta, án afkomu TM, nam 1.215 milljónum króna, samanborið við 895 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkar því um 36% frá árinu áður.
  • Hagnaður samstæðunnar eftir skatta nam 1.083 milljónum króna, samanborið við 1.167 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og lækkar um 7% frá árinu áður.
  • Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta var 12,1%, samanborið við 13,1% á sama tímabili árið 2023. Arðsemi efnislegs eiginfjár af áframhaldandi starfsemi nam 15,5% á fyrsta ársfjórðungi 2024.
  • Hagnaður á hlut nam 0,23 kr. á fyrstu þrem mánuðum ársins 2024, samanborið við 0,24 kr. á sama tímabili árið 2023.

Helstu tekjuliðir af banka- og eignastýringarstarfsemi:

  • Hreinar vaxtatekjur námu 2.326 milljónum króna, samanborið við 1.985 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkuðu um 17% frá fyrra ári.
  • Vaxtamunur var 3,8% á fyrstu þrem mánuðum ársins 2024.
  • Hreinar þóknanatekjur námu 1.633 milljónum króna, samanborið við 1.488 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækkuðu um 10% frá fyrra ári.
  • Aðrar rekstrartekjur námu 110 milljónum króna, samanborið við 16 m.kr. á sama tímabili árið 2023.

Afkoma af eignum haldið til sölu:

  • Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta, sem samanstendur eingöngu af rekstri dótturfélagsins TM tryggingar, er samandregin í einni línu í rekstrareikningi og nam 96 milljónum króna á tímabilinu, samanborið við 428 m.kr. á sama tímabili árið 2023.
  • Samsett hlutfall trygginga nam 100,5%, samanborið við 99,8% á sama tímabili árið 2023.

Helstu atriði efnahags:

  • Innlán frá viðskiptavinum námu 137 milljörðum króna, samanborið við 134 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 2,5% á tímabilinu.
  • Útlán til viðskiptavina voru 146 milljarðar króna, samanborið við 136 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 7% á tímabilinu.
  • Heildareignir námu 351 milljarði króna, samanborið við 335 ma.kr. í lok árs 2023.
  • Eigið fé samstæðunnar var 83 milljarðar króna í lok tímabilsins, samanborið við 82 ma.kr. í lok árs 2023.
  • Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 22,1%, samanborið við 22,6% í lok árs 2023 og var gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar 1,18 í lok tímabilsins. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar fjórðungsins en eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 21,7% í lok mars..
  • Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 286%, samanborið við 247% í lok árs 2023
  • Heildareignir í stýringu námu 474 milljörðum króna, samanborið við 470 ma.kr. í lok árs 2023.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Rekstur bankastarfsemi Kviku var prýðilegur á fyrsta ársfjórðungi og ánægjulegt að sjá umtalsverða hagnaðaraukningu af starfseminni milli ára. Hagnaður fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi, án afkomu TM, nam 1.215 milljónum króna, samanborið við 895 milljónir króna á sama tímabili árið 2023 og hækkar því um 36% frá árinu áður.

Nær allir tekjuliðir jukust milli ára á sama tíma og vel gekk að halda aftur af kostnaði. Þrátt fyrir þráláta verðbólgu og umtalsverðar launahækkanir náðist að halda rekstrarkostnaði nánast óbreyttum milli ára. Allar viðskiptaeiningar bankans gengu vel á fyrsta ársfjórðungi og ánægjulegt er að sjá viðsnúninginn sem hefur verið í rekstri bankans í Bretlandi eftir krefjandi umhverfi undanfarin tvö ár.

Arðsemi af efnislegu eigin fé bankastarfseminnar var 15,5%, sem er nokkuð undir langtímamarkmiði okkar en við sjáum þess merki að við munum nálgast það markmið á næstu misserum.

Tryggingarekstur TM var í takt við áætlanir og keimlíkur fyrsta fjórðungi síðasta árs, en fyrsti fjórðungur ársins er að öllu jöfnu sá þyngsti í rekstri tryggingafélaga. Markaðsaðstæður voru hins vegar óhagstæðar á tímabilinu og fjárfestingatekjur félagsins voru því talsvert undir væntingum.

Hagnaður fyrir skatta, að meðtalinni afkomu TM, nam 1.345 milljónum króna. Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta var 12,1%.

Vinna við lúkningu endanlegrar áreiðanleikakönnunar og undirritun kaupsamnings við Landsbankann vegna sölu TM hefur gengið ágætlega og mun bankinn halda markaðnum upplýstum eftir því sem mál þróast.“

Kynningarfundur og fjárfestakynning

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 2. maí kl. 16.15 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:



Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.

Viðhengi



EN
02/05/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á fyrsta ársfjórðungi 2024

Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á fyrsta ársfjórðungi 2024 Á stjórnarfundi þann 2. maí 2024 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir fyrsta ársfjórðung 2024. Í árshlutareikningi samstæðu Kviku fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024 er tryggingafélagið TM tryggingar hf. („TM“) flokkað sem eign haldið til sölu. Þar af leiðandi og í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla færir samstæðan tekjur af tryggingastarfsemi sinni í einni línu í rekstrarreikningi sem hagnað eftir skatta af aflagðri starfsemi. Samanburðartölur við rekstur ársins 202...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Financial Results for Q1 2024

Kvika banki hf.: Financial Results for Q1 2024 At a board meeting on 2 May 2024, the Board of Directors and the CEO approved the interim financial statements of the Kvika banki hf. (“Kvika” or “the bank”) group for the period 1 January to 31 March 2024. In Kvika’s financial statements for the period the insurance subsidiary TM tryggingar hf. (“TM”) is classified as held for sale. As a result, and in accordance with international financial reporting standards, the Group reports income from its insurance operations in a single line in the consolidated income statement as profit after tax fr...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Publication of Q1 financial results on Thursday 2 May

Kvika banki hf.: Publication of Q1 financial results on Thursday 2 May The Board of Directors of Kvika banki hf. is set to approve the financial statements of the Group for the first three months of 2024 at a board meeting on Thursday 2 May. The financial statements will subsequently be published after domestic markets have closed. A meeting to present the results to shareholders and market participants will be held the same day, at 16:15 on Thursday 2 May, at the bank's headquarters on the 9th floor at Katrínartún 2, 105 Reykjavík. Ármann Þorvaldsson, CEO of Kvika, and Eiríkur Magn...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Birting þriggja mánaða uppgjörs fimmtudaginn 2. maí

Kvika banki hf.: Birting þriggja mánaða uppgjörs fimmtudaginn 2. maí Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024 á stjórnarfundi fimmtudaginn 2. maí og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 2. maí kl. 16.15, í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Á fundinum munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri, fara yfir uppgjör félagsins og helstu þróun á l...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár

Kvika banki hf.: Tilkynning um lækkun hlutafjár Á aðalfundi Kviku sem haldinn var þann 21. mars 2024 var samþykkt að lækka hlutafé félagsins um 58.952.375 kr. að nafnvirði, eða sem nemur 58.952.375 hlutum, úr 4.781.025.715 kr. í 4.722.073.340 kr. að nafnvirði, með niðurfellingu eigin hluta félagsins að framangreindri fjárhæð. Um er að ræða hluti sem voru keyptir samkvæmt formlegri endurkaupaáætlun á árinu 2023. Hlutafjárlækkunin hefur nú verið skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins og hlutafé félagsins stendur í kr. 4.722.073.340. Eftir lækkun á bankinn enga eigin hluti. Fyrir frekari ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch