KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Afkomutilkynning 2019

Kvika banki hf.: Afkomutilkynning 2019

Á stjórnarfundi þann 27. febrúar 2020 samþykktu stjórn og forstjóri ársreikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2019 til 31. desember 2019.

Helstu atriði úr ársreikningi

  • Hagnaður eftir skatta nam 2.660 milljónum króna
  • Hagnaður fyrir skatta nam 2.501 milljónum króna
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta nam 21,0%
  • Hagnaður á hlut nam 1,41 krónum
  • Hreinar rekstrartekjur námu 7.426 milljónum króna
  • Rekstrarkostnaður nam 5.059 milljónum króna
  • Heildareignir námu 105,6 milljörðum króna
  • Eigið fé samstæðunnar nam 15,5 milljörðum króna
  • Eiginfjárhlutfall í lok árs var 24,1%
  • Lausafjárþekja (LCR) var 246%
  • Heildareignir í stýringu námu 426 milljörðum króna
  • Starfsmenn í fullu starfi voru 132 í lok árs
  • Stjórn bankans leggur til að ekki verði greiddur arður á árinu 2020 vegna ársins 2019
  • Afkomuáætlun fyrir árið 2020 gerir ráð fyrir að hagnaður á árinu verði á bilinu 2.300 – 2.700 milljónir króna fyrir skatta

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn í höfuðstöðvum Kviku, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík kl. 16:15 fimmtudaginn 27. febrúar.

Mikill vöxtur í þóknanatekjum og góð arðsemi

Hagnaður Kviku fyrir skatta á árinu 2019 nam 2.501 milljónum króna, samanborið við 1.795 milljónir króna á árinu 2018 og jókst um 39%. Hagnaður eftir skatta nam 2.660 milljónum króna á árinu samanborið við 1.752 milljónir árið 2018. Arðsemi bankans eftir skatta var 21,0% og því vel umfram langtímamarkmið bankans um 15% arðsemi.

Góður tekjuvöxtur var á árinu og jukust hreinar rekstrartekjur um 30% á milli ára. Allir helstu tekjustofnar bankans jukust á milli ára en mestur var vöxturinn í þóknanatekjum. Hreinar þóknanatekjur jukust um 30%, fjárfestingatekjur jukust um 28% og hreinar vaxtatekjur jukust um 4%.

Rekstrarkostnaður nam 5.059 milljónum króna og jókst um 26% vegna aukinna umsvifa á árinu en var í samræmi við áætlun. Afskriftir vegna útlána námu 178 milljónum króna á árinu og voru undir áætlunum fyrir árið.  

Í lok árs námu heildareignir 105,6 milljörðum króna samanborið við 88,3 milljarða króna í lok árs 2018. Útlán til viðskiptavina námu 30,1 milljörðum króna í lok árs og jukust lítillega á árinu. Lausafjárstaða bankans er mjög sterk en handbært fé og innstæður í seðlabanka námu 26,8 milljörðum króna í lok árs 2019. Lausafjárhlutfall var 246%, langt umfram kröfur eftirlitsaðila um 100% lágmarksþekju. Eigið fé nam 15,5 milljörðum króna í árslok 2019 og var eiginfjárhlutfall 24,1%,  vel umfram eiginfjárkröfu eftirlitsaðila.

Afkomuáætlun Kviku fyrir árið 2020 gerir ráð fyrir að hagnaður á árinu verði á bilinu 2.300 – 2.700 milljónir króna fyrir skatta. Áætlunin samsvarar arðsemi eigin fjár á bilinu 15 - 18%.    

Marinó Örn Tryggvason forstjóri Kviku:

Rekstur Kviku gekk vel á árinu, mikill vöxtur var í þóknanatekjum og arðsemin var umfram langtímamarkmið. Ennfremur gekk vel að halda kostnaði á áætlun og skilaði bankinn sinni bestu afkomu frá upphafi.

Bankinn hefur skýra stefnu sem sérhæfður banki sem leggur áherslu á eignastýringu og fjárfestingastarfsemi. Á undanförnum árum hefur Kvika orðið til með kaupum og sameiningum á mörgum innlendum fjármálafyrirtækjum með það að markmiði að byggja upp fyrirtæki sem getur skilað árangri til lengri tíma. Það er ánægjulegt að grunnrekstur bankans hafi haldið áfram að batna sem endurspeglast í því að tekjur hafa verið að aukast en rekstarkostnaður verið í samræmi við áætlanir.

Aðstæður á fjármálamörkuðum eru krefjandi þessi misserin en Kvika er í góðri stöðu til þess að takast á við þær áskoranir sem fylgja nauðsynlegum breytingum á fjármálakerfinu meðal annars vegna nýrra tæknilausna og áframhaldandi hagræðingar. Það er áhyggjuefni hversu flókið rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja og annarra aðila á fjármálamarkaði er orðið. Fjármálakerfið er hluti af nauðsynlegum innviðum samfélagsins og það hefur ekki náð að þróast nægjanlega til að uppfylla hlutverk sitt.

Þrátt fyrir hátt sparnaðarstig á landinu hefur verið erfitt fyrir mörg fyrirtæki og frumkvöðla að afla fjármagns. Fjármagna þarf rekstur og fjárfestingar fyrirtækja til þess að viðhalda og auka verðmætasköpun sem er nauðsynleg forsenda lífskjara. Heilbrigður rekstur fyrirtækja er forsenda þess að þau ráði starfsmenn og greiði laun sem er forsenda fyrir því að hið opinbera fái skatttekjur, sem er forsenda fyrir því að hægt sé að halda uppi öflugri opinberri þjónustu. Uppbygging fjármálakerfisins kemur því öllum við og mikilvægt að það þróist í takt við þarfir hagkerfisins.

Viðhengi

EN
27/02/2020

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme In week 9 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 11,400,000 of its own shares at the purchase price ISK 215,260,000. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price23.2.202615:16:34         2.000.000    18,45                 36.900.000    24.2.202613:28:56         1.000.000    18,7                 18.700.000    24.2.202615:07:28         1.700.000    18,7                 31.790.000    25.2.202614:37:14         1.700.000    19,1                 32.470.000    25.2.20261...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræ...

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í viku 9 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.400.000 eigin hluti að kaupverði 215.260.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð23.2.202615:16:34         2.000.000    18,45                 36.900.000    24.2.202613:28:56         1.000.000    18,7                 18.700.000    24.2.202615:07:28         1.700.000    18,7                 31.790.000    25.2.202614:37:14         1.700.000    19,1                 32.470.000  ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Meeting announcement for Annual General Meeting on 18...

Kvika banki hf.: Meeting announcement for Annual General Meeting on 18 March 2026 The Annual General Meeting of Kvika banki hf., Reg. No. 540502-2930 (“Kvika”), will be held on Wednesday, 18 March 2026, at 4:00 pm, at Iceland Parliament Hotel by Austurvöllur, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, in meeting room A. The Agenda for the meeting is as follows: Report from the Company's Board of Directors on its activities during the past operating year.The Company's annual financial statements for 2025 along with a decision on the treatment of the Company's profit during the financial year. ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026 Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026, kl. 16:00, á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, í fundarsal A.  Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál: Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.Ársreikningur félagsins fyrir árið 2025 ásamt ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu. Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 0,36 á hlut. Tillaga um endurnýjun...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar

Kvika banki hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar Á aðalfundi Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) þann 21. mars 2024 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa allt að 10% af útgefnum hlutum í félaginu, m.a. í þeim tilgangi að stjórn gæti komið á formlegri endurkaupaáætlun. Heimild stjórnar Kviku til endurkaupa var endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26. mars 2025. Þá er vísað til tilkynningar frá 23. desember 2025 vegna fyrirhugaðra endurkaupa bankans. Á grundvelli framangreinds ákvað stjórn Kviku þann 11. febrúar 2026 að nýta hluta heimildar og koma á endurkaupaáætlun um framkvæmd k...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch