Kvika banki hf.: Framkvæmdastjóri áhættustýringar lætur af störfum
Thomas Skov Jensen, framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“), hefur sagt starfi sínu lausu. Hann mun starfa áfram hjá bankanum þar til gengið hefur verið frá ráðningu eftirmanns.
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:
„Thomas hefur starfað hjá Kviku og forvera bankans frá árinu 2007 og sem forstöðumaður og síðar framkvæmdastjóri áhættustýringar frá árinu 2008 þar sem hann hefur byggt upp öfluga deild og reynst farsæll leiðtogi í gegnum þær miklu breytingar sem félagið hefur farið í gegnum á undanförnum árum. Ég vil þakka Thomasi fyrir frábært samstarf í gegnum árin og vel unnin störf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.“
