KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Kvika gengur að kauptilboði Landsbankans í TM tryggingar

Kvika banki hf.: Kvika gengur að kauptilboði Landsbankans í TM tryggingar

Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) hafa borist skuldbindandi tilboð um kaup á hlutafé TM trygginga hf. („TM“) en bankinn hefur verið með TM í söluferli í samræmi við tilkynningu þann 17. nóvember 2023 og síðari tilkynningar þess efnis.

Eftir að hafa metið tilboðin með ráðgjöfum sínum hefur stjórn Kviku ákveðið að taka tilboði Landsbankans hf. með það að markmiði að ljúka endanlegri áreiðanleikakönnun og undirrita kaupsamning milli bankanna um kaup og sölu 100% hlutafjár TM eins fljótt og auðið er, með hefðbundnum fyrirvörum, s.s. samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og Samkeppniseftirlitsins.

Kaupverð samkvæmt tilboðinu er 28,6 milljarðar króna og mun Landsbankinn greiða fyrir hlutaféð með reiðufé. Kaupverðið miðast við efnahagsreikning TM í lok árs 2023. Endanlegt kaupverð verður aðlagað miðað við breytingar á efnislegu eigin fé TM frá upphafi árs 2024 til afhendingardags en fjárhæð breytingarinnar mun bætast við eða dragast frá kaupverðinu í tilboðinu.

Samkvæmt rekstrarspá TM er gert ráð fyrir að hagnaður TM verði rúmlega 3 milljarðar króna á rekstrarárinu 2024. Eignarhlutur Kviku í TM í lok árs 2023 var bókfærður á samtals 26,8 milljarða króna.

Nánar verður upplýst um framvindu ferlisins tímanlega, um leið og ástæða er til og í samræmi við lögbundna upplýsingaskyldu bankans. 

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Við erum mjög ánægð með að söluferli Kviku á TM sé nú komið á þann stað að hægt sé að ganga að kauptilboði Landsbankans með það að markmiði að ljúka sölunni. Ef ferlið leiðir til undirritunar kaupsamnings verður það til hagsbóta fyrir alla aðila, Kviku, Landsbankann og TM, viðskiptavini þeirra, hluthafa og aðra hagaðila.

Ég hef fulla trú á því að TM, sem er vel rekið og verðmætt tryggingafélag með öflugan mannauð, muni áfram veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu og vaxa enn frekar með nýju eignarhaldi.“

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Magnús Þór Gylfason, forstöðumann samskipta og hagaðilatengsla, á netfanginu



EN
17/03/2024

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme In week 10 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 11,800,000 of its own shares at the purchase price ISK 219,795,000. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price2.3.202611:15:45 1,000,000    18.8 18,800,000    2.3.202613:50:32 1,700,000    18.8 31,960,000    3.3.202610:15:25 1,700,000    18.55 31,535,000    3.3.202614:34:54 1,000,000    18.35 18,350,000    4.3.202612:12:52 1,000,000    18.575 18,575,000    5.3.202614:23:02 2,000,000    18.6 37,200,000    5.3.2026...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræ...

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í viku 10 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.800.000 eigin hluti að kaupverði 219.795.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð2.3.202611:15:45 1.000.000    18,8 18.800.000    2.3.202613:50:32 1.700.000    18,8 31.960.000    3.3.202610:15:25 1.700.000    18,55 31.535.000    3.3.202614:34:54 1.000.000    18,35 18.350.000    4.3.202612:12:52 1.000.000    18,575 18.575.000    5.3.202614:23:02 2.000.000    18,6 37.200.000...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme

Kvika banki hf.: Transaction in relation to a share buy-back programme In week 9 Kvika banki hf. („Kvika“ or „the bank“) purchased 11,400,000 of its own shares at the purchase price ISK 215,260,000. See further details below: DateTimeNo. of shares purchasedShare price (rate)Purchase price23.2.202615:16:34         2.000.000    18,45                 36.900.000    24.2.202613:28:56         1.000.000    18,7                 18.700.000    24.2.202615:07:28         1.700.000    18,7                 31.790.000    25.2.202614:37:14         1.700.000    19,1                 32.470.000    25.2.20261...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræ...

Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun Í viku 9 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.400.000 eigin hluti að kaupverði 215.260.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð23.2.202615:16:34         2.000.000    18,45                 36.900.000    24.2.202613:28:56         1.000.000    18,7                 18.700.000    24.2.202615:07:28         1.700.000    18,7                 31.790.000    25.2.202614:37:14         1.700.000    19,1                 32.470.000  ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026

Kvika banki hf.: Fundarboð á aðalfund 18. mars 2026 Aðalfundur Kviku banka hf., kt. 540502-2930 („Kvika“), verður haldinn miðvikudaginn 18. mars 2026, kl. 16:00, á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll, Thorvaldsenstræti 2-6, 101 Reykjavík, í fundarsal A.  Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi mál: Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.Ársreikningur félagsins fyrir árið 2025 ásamt ákvörðun um meðferð hagnaðar félagsins á reikningsárinu. Stjórn Kviku leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa bankans sem nemi kr. 0,36 á hlut. Tillaga um endurnýjun...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch