Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 3 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 2.600.000 eigin hluti að kaupverði 51.157.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
| 16.1.2026 | 09:50:53 | 1.000.000 | 19,73 | 19.725.000 |
| 16.1.2026 | 13:43:43 | 800.000 | 19,65 | 15.720.000 |
| 16.1.2026 | 14:42:06 | 500.000 | 19,65 | 9.825.000 |
| 16.1.2026 | 15:03:51 | 300.000 | 19,63 | 5.887.500 |
| Samtals | 2.600.000 | 51.157.500 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 22. maí 2025 og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024 og endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26 Mars 2025. Gert var hlé á endurkaupaáætlun sbr. tilkynningu þann 07.07.2025 og hún endurvakin sbr. tilkynningu þann 15.01.2026.
Kvika hefur nú keypt samtals 82.400.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,779% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.425.950.000 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 216.810.410 hlutir eða sem nemur 4,682% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 236.409.591.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 22. maí 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu
