Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 25 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 170.950.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
16.6.2025 | 13:09:23 | 1.000.000 | 17,025 | 17.025.000 |
16.6.2025 | 15:19:15 | 1.000.000 | 17,175 | 17.175.000 |
18.6.2025 | 10:01:38 | 1.000.000 | 17,15 | 17.150.000 |
18.6.2025 | 13:28:35 | 1.000.000 | 17,15 | 17.150.000 |
18.6.2025 | 14:18:32 | 1.000.000 | 17,15 | 17.150.000 |
18.6.2025 | 15:16:15 | 1.000.000 | 17,10 | 17.100.000 |
19.6.2025 | 13:52:09 | 2.000.000 | 17,025 | 34.050.000 |
20.6.2025 | 12:36:26 | 2.000.000 | 17,075 | 34.150.000 |
Samtals | 10.000.000 | 170.950.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 22. maí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024 og endurnýjuð á aðalfundi Kviku þann 26. mars 2025.
Kvika hefur nú keypt samtals 63.450.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,370% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.088.647.500 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 197.860.410 hlutir eða sem nemur 4,273% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 236.409.591.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 22. maí 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu
