Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 36 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 8.000.000 eigin hluti að kaupverði 200.630.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð |
| 6.9.2021 | 10:02:44 | 1.700.000 | 25,20 | 42.840.000 |
| 6.9.2021 | 15:02:28 | 300.000 | 25,30 | 7.590.000 |
| 7.9.2021 | 10:03:55 | 200.000 | 25,30 | 5.060.000 |
| 7.9.2021 | 10:09:47 | 1.500.000 | 25,30 | 37.950.000 |
| 7.9.2021 | 13:49:50 | 300.000 | 25,30 | 7.590.000 |
| 8.9.2021 | 09:44:36 | 2.000.000 | 24,80 | 49.600.000 |
| 10.9.2021 | 09:48:25 | 2.000.000 | 25,00 | 50.000.000 |
| Samtals | 8.000.000 | 200.630.000 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021.
Kvika átti 67.500.000 hluti fyrir viðskiptin og hefur því keypt samtals 75.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,58% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 1.818.687.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið áti við sameiningu TM hf. og Kviku.
Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.
