KVIKA Kvika banki hf

Kvika banki hf.: Ársreikningur 2024

Kvika banki hf.: Ársreikningur 2024

Á stjórnarfundi þann 12. febrúar 2025 samþykktu stjórn og forstjóri ársreikning samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir árið 2024.

Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs (4F 2024)

  • Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 1.601 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 363 m.kr. á 4F 2023 og eykst um 1.238 m.kr. eða 340%.
  • Hagnaður samstæðunnar í heild eftir skatta nam 3.447 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 1.578 m.kr. á 4F 2023 og eykst um 1.869 m.kr. eða 118%.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 2.498 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 2.331 m.kr. á 4F 2023 og hækkuðu því um 167 m.kr. frá fyrra ári eða 7,1%.
  • Vaxtamunur var 3,8% á 4F 2024, samanborið við 3,9% á 4F 2023.
  • Hreinar þóknanatekjur voru 1.601 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 1.578 m.kr. á 4F 2023 og hækkuðu því um 23 m.kr. frá fyrra ári eða 1,5%.
  • Aðrar rekstrartekjur námu 567 m.kr. á 4F 2024 samanborið við 94 m.kr. á 4F 2023 og hækkuðu því um 473 m.kr. frá fyrra ári eða 503%.
  • Rekstrarkostnaður nam 2.864 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 2.779 m.kr. á 4F 2023 og eykst um 85 m.kr. frá fyrra ári eða 3%.
  • Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi var 18,5%.
  • Hagnaður á hlut nam 0,74 kr. á 4F 2024, samanborið við 0,33 kr. á 4F 2023.

Afkoma af eignum haldið til sölu:

  • Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta, sem samanstendur eingöngu af rekstri dótturfélagsins TM, er samandregin í einni línu í rekstrareikningi og nam 1.919 m.kr. á 4F 2024, samanborið við 990 m.kr. á 4F 2023.
  • Samsett hlutfall trygginga nam 87,8%, samanborið við 92,5% á fjórða ársfjórðungi 2023.

Helstu atriði efnahags:

  • Innlán frá viðskiptavinum námu 163 ma.kr. í lok árs 2024, samanborið við 143 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 15% á árinu.
  • Útlán til viðskiptavina voru 150 ma.kr. í lok árs 2024, samanborið við 136 ma.kr. í lok árs 2023 og jukust um 10% á árinu.
  • Heildareignir námu 355 ma.kr. í lok árs 2024, samanborið við 335 ma.kr. í lok árs 2023.
  • Eigið fé samstæðunnar var 90 ma.kr. í lok árs 2024, samanborið við 82 ma.kr. í lok árs 2023.
  • Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 22,8% í lok árs 2024, samanborið við 22,6% í lok árs 2023 og var gjaldþolshlutfall fjármálasamsteypunnar 1,33 í lok ársins.
  • Heildar lausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 360% í lok árs 2024, samanborið við 247% í lok árs 2023.
  • Heildareignir í stýringu námu 456 ma.kr., samanborið við 470 ma.kr. í lok árs 2023.

Helstu atriði ársreiknings og afkomu 2024:

  • Hagnaður fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 5.817 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 3.009 m.kr. árið 2023 og eykst um 2.808 m.kr. eða 93,3%.
  • Hagnaður samstæðunnar í heild eftir skatta nam 8.150 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 4.033 m.kr. árið 2023 og eykst um 4.117 m.kr. eða 102%.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 9.681 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 8.021 m.kr. árið 2023 og hækkuðu um 1.660 m.kr. frá fyrra ári eða 21%.
  • Vaxtamunur var 3,9% á árinu 2024, samanborið við 3,8% árið 2023.
  • Hreinar þóknanatekjur námu 6.137 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 5.916 m.kr. árið 2023 og hækkuðu um 220 m.kr. frá fyrra ári eða 3,7%.
  • Aðrar rekstrartekjur námu 1.367 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 915 m.kr. árið 2023 og hækkuðu um 452 m.kr. frá fyrra ári eða 49%.
  • Rekstrarkostnaður nam 10.608 m.kr. á árinu 2024, samanborið við 10.785 m.kr. árið 2023 og lækkar um 177 m.kr. frá fyrra ári eða 1,6%.
  • Arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi nam 18,8% á árinu 2024, samanborið við 10,2% árið 2023.
  • Hagnaður á hlut nam 1,73 kr. á árinu 2024, samanborið við 0,84 kr. árið 2023.

Afkoma af eignum haldið til sölu:

  • Afkoma eigna haldið til sölu eftir skatta, sem samanstendur eingöngu af rekstri dótturfélagsins TM tryggingar, er samandregin í einni línu í rekstrareikningi og nam 3.460 milljónum króna á árinu 2024, samanborið við 1.730 m.kr.  árið 2023.
  • Samsett hlutfall trygginga nam 93,9%, samanborið við 93,6% árið 2023.

Stjórn bankans leggur til að greiddur verði 0,44 króna arður á hlut eða 2.050 milljónir króna, að teknu tilliti til eigin bréfa, á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024. Arðgreiðslan nemur 25% af hagnaði samstæðu Kviku eftir skatta sem er til samræmis við arðgreiðslustefnu bankans. Ennfremur mun stjórn leggja til sérstaka arðgreiðslu í kjölfar viðtöku á söluverði TM auk þess að hefja kaup á eigin hlutum sem bankinn hefur fengið heimild til frá Seðlabanka Íslands að uppfylltu því skilyrði að sala á hlutum bankans í TM sé lokið.

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Það er ekki annað hægt að segja en að árið 2024 hafi verið umbreytingarár hjá félaginu. Mikill viðsnúningur varð í rekstri Kviku, eftir talsverðar áskoranir síðastliðin tvö ár, og stór skref voru stigin við stefnumörkun og straumlínulögun félagsins með sölu á TM til Landsbankans, sem við vonumst til þess að hljóti endanlegt samþykki á næstu vikum.

Afkoma áframhaldandi starfsemi fyrir skatta stóreykst milli ára, eða um rúmlega 90%, og eykst arðsemi efnislegs eiginfjár úr 10,2% í 18,8%, sem er örlítið undir langtímamarkmiði bankans. Mestu munar um aukningu vaxtatekna á tímabilinu, sem aukast um 21%, en einnig aukast fjárfestingatekjur og þóknanatekjur á tímabilinu. Það var þó ekki aðeins tekjuhliðin sem skilaði þessum góða árangri. Fækkun starfsfólks og aðhald í almennum rekstrarkostnaði skilaði sér í 1,6% samdrætti í rekstrarkostnaði milli ára, á tímabili þar sem verðbólga var um 6% og launahækkanir í samfélaginu umtalsverðar.

Rekstur TM var einnig stórgóður á síðasta ári og rekstrarniðurstaða Kviku samstæðunnar í heild mjög góð. Hagnaður samstæðu eftir skatta nam rúmlega 8 milljörðum árið 2024, sem er um tvöföldun frá fyrra ári.

Horfur á nýju ári eru prýðilegar. Markaðsaðstæður virðast talsvert betri en fyrir ári síðan, vextir eru byrjaðir að lækka og Kvika stendur frammi fyrir margvíslegum tækifærum, bæði á Íslandi og í Bretlandi. Við söluna á TM gefst okkur bæði tækifæri til þess að greiða umtalsverða fjármuni til hluthafa og nýta það eigið fé sem eftir situr til að stækka lánabækur félagsins. Með stærri lánabók nýtum við innviði okkar betur og aukum stöðugar tekjur án samsvarandi kostnaðaraukningar, auk þess að styrkja enn frekar stoðir bankans með dreifðara eignasafni.

Við stefnum jafnframt að því að efla starfsemi okkar á sviði fjárfestingabankastarfsemi og eignastýringar með það að markmiði að auka þóknana- og fjárfestingatekjur.“

Kynningarfundur og fjárfestakynning

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 13. febrúar kl. 08:30 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á íslensku á eftirfarandi vefslóð:

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á eða í gegnum Slido appið

Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku.

Viðhengi



EN
12/02/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Kvika banki hf

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Financial Results for Q2 2025

Kvika banki hf.: Financial Results for Q2 2025 At a board meeting on 13 August 2025, the Board of Directors and the CEO approved the interim financial statements of the Kvika banki hf. (“Kvika” or “the bank”) for the second quarter and first six months of 2025. Highlights of performance in the second quarter (Q2 2025) Post-tax profit from continuing operations of the Kvika group amounted to ISK 1,439 million in Q2 2025, compared to ISK 777 million in Q2 2024, an increase of ISK 662 million or 85.2%.Profit before tax amounted to ISK 2,025 million, compared to ISK 1,189 million in Q2 2024, ...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á öðrum ársfjórðungi 2025

Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á öðrum ársfjórðungi 2025 Á stjórnarfundi þann 13. ágúst 2025 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir annan ársfjórðung og fyrstu sex mánuði ársins 2025. Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs (2F 2025) Hagnaður af áframhaldandi starfsemi samstæðunnar eftir skatta nam 1.439 m.kr. á 2F 2025, samanborið við 777 m.kr. á 2F 2024 og hækkaði um 662 m.kr. eða 85,2%.Hagnaður fyrir skatta nam 2.025 m.kr., samanborið við 1.189 m.kr. á 2F 2024 og hækkaði því um 836 m.kr. eða 70,3%.Hreinar vaxtatekjur námu 2.962 m...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Publication of Q2 financial results on Wednesday 13 A...

Kvika banki hf.: Publication of Q2 financial results on Wednesday 13 August The Board of Directors of Kvika banki hf. is set to approve the financial statements of the Group for the second quarter and first six months of 2025 at a board meeting on Wednesday 13 August. The financial statements will subsequently be published after the domestic market has closed. A meeting to present the results to shareholders and market participants will be held the next day, at 08:30 on Thursday 14 August, at the bank's headquarters on the 9th floor at Katrínartún 2, where Ármann Þorvaldsson, CEO of Kvika,...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs miðvikudaginn 13...

Kvika banki hf.: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs miðvikudaginn 13. ágúst Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir annan ársfjórðung og fyrstu 6  mánuði ársins 2025 á stjórnarfundi miðvikudaginn 13. ágúst og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn daginn eftir, fimmtudaginn 14. ágúst kl. 08:30, í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2. Þar munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri, fara yfir uppgjör félagsins.  Fundinum v...

 PRESS RELEASE

Kvika banki hf.: Joint press release from Kvika and Arion

Kvika banki hf.: Joint press release from Kvika and Arion Next steps in the merger process Kvika banki and Arion Bank announced on 6 July that the boards of directors of the companies had decided to initiate discussions on merging the companies and have signed a letter of intent to that effect. The aim of the merger is to combine the companies’ strengths and to create a robust financial institution which offers comprehensive services for its customers. One of the largest mergers on the Icelandic financial market This represents one of the largest mergers undertaken on the Icelandic fina...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch