Kvika banki hf.: Tilkynning vegna samninga um viðskiptavakt
Kviku banka hf. hafa borist tilkynningar frá Íslandsbanka hf. og Arion banka hf. sem sinna viðskiptavakt með hlutabréf Kviku. Samkvæmt tilkynningunum munu báðir aðilar beita heimild í samningunum um að víkja frá skilyrðum þeirra í óviðráðanlegum aðstæðum er varðar verðbil og fjárhæðir á meðan slíkt ástand varir.