Marel: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 16 keypti Marel hf. 523.750 eigin hluti að kaupverði 313.763.000 kr. eins og nánar er tilgreint hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr) |
14.4.2020 | 10:47 | 2.500 | 589 | 1.472.500 |
14.4.2020 | 11:10 | 7.000 | 593 | 4.151.000 |
14.4.2020 | 14:36 | 1.500 | 593 | 889.500 |
15.4.2020 | 10:29 | 150.000 | 598 | 89.700.000 |
15.4.2020 | 11:10 | 2.500 | 593 | 1.482.500 |
15.4.2020 | 11:44 | 20.000 | 603 | 12.060.000 |
15.4.2020 | 14:24 | 20.000 | 599 | 11.980.000 |
15.4.2020 | 15:24 | 1.562 | 598 | 934.076 |
16.4.2020 | 11:14 | 50.000 | 598 | 29.900.000 |
16.4.2020 | 13:00 | 20.000 | 600 | 12.000.000 |
16.4.2020 | 13:05 | 20.000 | 600 | 12.000.000 |
17.4.2020 | 11:05 | 10.000 | 600 | 6.000.000 |
17.4.2020 | 11:26 | 238 | 598 | 142.324 |
17.4.2020 | 11:55 | 7.270 | 598 | 4.347.460 |
17.4.2020 | 12:33 | 270 | 598 | 161.460 |
17.4.2020 | 14:20 | 1.910 | 598 | 1.142.180 |
17.4.2020 | 14:34 | 10.000 | 600 | 6.000.000 |
17.4.2020 | 14:36 | 100.000 | 600 | 60.000.000 |
17.4.2020 | 15:01 | 50.000 | 600 | 30.000.000 |
17.4.2020 | 15:02 | 49.000 | 600 | 29.400.000 |
Samtals | 523.750 | 313.763.000 |
Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 10. mars 2020 og var gerð í samræmi við þágildandi heimild aðalfundar Marel hf. þann 6. mars 2019 til kaupa á eigin bréfum, sem endurnýjuð var á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2020.
Marel hf. átti 16.206.502 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 16.730.252 eigin hluti eða sem nemur 2,17% af útgefnum hlutum í félaginu.
Marel hf. hefur keypt samtals 5.956.438 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,77% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 3.121.331.850 kr.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið: og í síma .
Um Marel
Marel er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa um 6.300 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti um 1,3 milljarði evra árið 2019 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam í júní 2019.