MAREL Marel hf.

Marel: Ársskýrsla 2020

Marel: Ársskýrsla 2020

Ársskýrsla Marel fyrir árið 2020 er komin út.

Nýsköpun til áhrifa

Í gegnum starfsmenn okkar um heim allan tengjumst við viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum, hluthöfum og samfélaginu öllu sterkum böndum. Þegar heimsfaraldur skall á með fullum þunga lögðum við höfuðáherslu á að styrkja þessi sambönd og efla samskipti. Í krefjandi aðstæðum tryggðum við öryggi starfsfólks okkar og samstarfsaðila og lögðum okkar lóð á  vogarskálarnar til að halda matvælakeðjunni gangandi, en hún er ein mikilvægasta virðiskeðja í heimi. Í því stóra verkefni voru sambönd, samskipti og samheldni lykillinn að árangri.  

Alþjóðlegt sölu- og þjónustunet Marel í yfir 30 löndum gerði það að verkum að við gátum stutt við viðskiptavini okkar og tryggt stöðugt framboð af vörum og þjónustu í krefjandi aðstæðum. Snjallar framleiðslulausnir okkar tryggja aukna sjálfvirkni og betri nýtingu á verðmætu hráefni. Stafrænar lausnir okkar veita viðskiptavinum mikilvæga innsýn og upplýsingar sem gera þeim kleift að umbylta og aðlaga framleiðslu sína að breyttum þörfum neytenda í heimsfaraldri.

Í ársskýrslunni má finna yfirgripsmikla umfjöllun um Marel sem er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á alifuglum, kjöti og fiski. Ársskýrslan er aðgengileg á stafrænu formi, þar sem meðal annars er að finna margmiðlunarefni, gagnvirkar töflur og gröf, og einnig sem PDF skjal á .

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið  og í síma 563 8001.

Samskiptasvið

Fjölmiðlafyrirspurnir skulu sendar á samskiptasvið Marel í gegnum netfangið og í síma 563 8200.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 6.800 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.



EN
17/03/2021

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Marel hf.

Martijn Den Drijver
  • Martijn Den Drijver

MAREL HF : A solid quarter, 2024 guidance to be met, slight delay in J...

>Beats on order intake and EBIT (margin), sales a miss, ND/EBITDA down - MAREL beat css on order intake which is encouraging, also because order intake is up both QoQ and YoY (+3%). Sales of €387m missed css by 4%, primarily because of 1/ weak ad-hoc orders as order intake has been weak for a few quarters now and 2/weak sales in Poultry and Fish. Adjusted EBIT came in at €36.2m or a margin of 9.4% versus css of €33.4m or a margin of 8.3%. That is a beat of 8% on adj....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch