MAREL Marel hf.

Marel: Ársskýrsla Marel 2021 – 360° heildarsýn

Marel: Ársskýrsla Marel 2021 – 360° heildarsýn

Ársskýrsla Marel fyrir árið 2021 er komin út.

Þar er leitast við að gefa lesendum innsýn í starfsemi Marel, stefnu og tækifæri til vaxtar. Árangur Marel byggir á stöðugri nýsköpun og öflugu neti starfsmanna hringinn í kringum hnöttinn. Við getum öll haft áhrif. Í hringrásarhagkerfinu skiptir hver gráða máli og 360° heildarsýn okkar snýst um að auka sjálfbærni í matvælaframleiðslu með betri nýtingu á hráefni, orku og vatni. Þannig höldum við ótrauð áfram að umbylta matvælaframleiðslu á heimsvísu.

Ársskýrslan er aðgengileg á stafrænu formi, þar sem meðal annars er að finna yfirgripsmikla umfjöllun um Marel sem er í fararbroddi í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á alifuglum, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú yfir 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti 1,4 milljörðum evra árið 2021, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu.

Kynntu þér ársskýrslu Marel 2021 á .

Rafrænn aðalfundur Marel

Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í dag 16. mars 2022 klukkan 16:00. Fundurinn er eingöngu rafrænn og fer fram á ensku. Nánari upplýsingar og fundargögn má nálgast á aðalfundarvef Marel, á .

Fyrirspurnir um skráningu eða fyrirkomulag fundarins má senda á eða hringja í 563 8205 milli 9:00-16:00.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið  og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú yfir 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti 1,4 milljörðum evra árið 2021, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.



EN
16/03/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on Marel hf.

Martijn Den Drijver
  • Martijn Den Drijver

MAREL HF : A solid quarter, 2024 guidance to be met, slight delay in J...

>Beats on order intake and EBIT (margin), sales a miss, ND/EBITDA down - MAREL beat css on order intake which is encouraging, also because order intake is up both QoQ and YoY (+3%). Sales of €387m missed css by 4%, primarily because of 1/ weak ad-hoc orders as order intake has been weak for a few quarters now and 2/weak sales in Poultry and Fish. Adjusted EBIT came in at €36.2m or a margin of 9.4% versus css of €33.4m or a margin of 8.3%. That is a beat of 8% on adj....

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch