NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025

Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025

Áfram stöðugur vöxtur hjá Nova

Rekstur Nova skilaði góðri afkomu á öðrum ársfjórðungi ársins. Heildartekjur voru um 3,4 milljarðar og jukust um 6,2% milli ára. Þjónustutekjur hækkuðu um 7,9% og EBITDA jókst um 9,7%. Hagnaður fjórðungsins var 149 milljónir og eykst um 38,2% milli ára.

Helstu niðurstöður á öðrum ársfjórðungi:

  • Heildartekjur voru 3.428 m.kr. og vaxa um 6,2% á milli ára
  • Þjónustutekjur námu samtals 2.718 m.kr. og vaxa um 7,9% á milli ára.
  • EBITDA nam 1.054 m.kr. og vex um 9,7% á milli ára. EBITDA hlutfallið var 30,7% á fjórðungnum samanborið við 29,8% á fyrra ári.
  • Hrein fjármagnsgjöld á fjórðungnum nema 255 m.kr. og lækka um 3,5%
  • Hagnaður fjórðungsins eftir skatta var 149 m.kr. og hækkar um 38,2%
  • Handbært fé frá rekstri á tímabilinu er 763 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall var 39,9% í lok tímabilsins og eigið fé nam samtals 9.456 m.kr.

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova

„Það er virkilega gott að sjá áfram sterkan rekstur byggðan á góðum grunni, með vöxt í öllum lykiltölum á öðrum ársfjórðungi. Þetta skiptir auðvitað máli á tíma þar sem við höfum sett stefnuna á enn frekari vöxt og ný tækifæri til að auka tekjur. Hver einasti áfangi skiptir máli og boðar þetta gott fyrir framtíðina. Það sem gleður mig mest er að finna þann mikla meðbyr og metnað sem knýr Nova áfram.

Við höfum stigið fyrstu skrefin í spennandi samstarfi með Dineout og kynnt fyrir viðskiptavinum okkar nýjungar sem gera þeim kleift að fá enn meira fyrir peninginn. Það er alltaf ánægjulegt og gerir dansgólfið enn betra þegar viðskiptavinir okkar finna virði og gleði í því að vera í viðskiptum hjá okkur og það er Nova í hnotskurn. Gott uppgjör er ekki síst staðfesting á því að viðskiptavinir okkar kunna að meta það sem við erum að gera og að stefnan er í rétta átt.

Á sama tíma er vegferðin sem við lögðum upp með í ársbyrjun, um stofnun Nova Innviða, á góðri leið. Með því stefnum við að betri nýtingu innviða og fjárfestinga, sem mun styrkja bæði rekstur og þjónustu til framtíðar.

Við fengum líka þann heiður að vera valin fyrirmyndarfyrirtæki VR í stærstu vinnustaðarannsókn landsins. Þetta eru kannski þær fréttir sem mér þykir vænst um á ársfjórðungnum. Þetta staðfestir að Nova liðið, er einfaldlega besta liðið, að fólkið okkar upplifir að það sé gaman í vinnunni. Og þegar fólki líður vel, þá líður viðskiptavinum okkar vel líka. Þetta er  hringrás gleði og árangurs sem hefur sannað sig aftur og aftur, hún skilar sér í metnaði, upplifun og að lokum í góðu uppgjöri annars ársfjórðungs sem við fögnum í dag”.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun, föstudaginn 15. ágúst, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9, á 4. hæð. 

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum.

Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast, ásamt kynningarefni, á .

Velkomið er að senda spurningar fyrir kynningarfundinn eða á meðan á honum stendur á netfangið 

Viðhengi



EN
14/08/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025

Nova Klúbburinn hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2025 Áfram stöðugur vöxtur hjá Nova Rekstur Nova skilaði góðri afkomu á öðrum ársfjórðungi ársins. Heildartekjur voru um 3,4 milljarðar og jukust um 6,2% milli ára. Þjónustutekjur hækkuðu um 7,9% og EBITDA jókst um 9,7%. Hagnaður fjórðungsins var 149 milljónir og eykst um 38,2% milli ára. Helstu niðurstöður á öðrum ársfjórðungi: Heildartekjur voru 3.428 m.kr. og vaxa um 6,2% á milli áraÞjónustutekjur námu samtals 2.718 m.kr. og vaxa um 7,9% á milli ára.EBITDA nam 1.054 m.kr. og vex um 9,7% á milli ára. EBITDA hlutfallið var 30,7% á...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2025 verður birt eftir l...

Nova Klúbburinn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2025 verður birt eftir lokun markaða á morgun, 14. ágúst Nova Klúbburinn hf. birtir árshlutauppgjör annars ársfjórðungs 2025 eftir lokun markaða á morgun, fimmtudaginn 14. ágúst. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn föstudaginn 15. ágúst, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9, á 4. hæð. Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum. Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast ásamt kynningarefni á...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 32

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 32 Í 32. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 5.808.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)5.8.202515:21600.0004,822.892.0008.8.202511:24600.0004,862.916.000Samtals1.200.000 5.808.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 31

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 31 Í 31. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.670.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)28.7.202513:34600.0004,902.940.00029.7.202511:23600.0004,902.940.00030.7.202510:49600.0004,892.934.00031.7.202512:08600.0004,882.928.0001.8.202509:34600.0004,882.928.000Samtals3.000.000 14.670.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætlunin...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 30

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 30 Í 30. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.700.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)21.7.202509:54600.0004,882.928.00022.7.202510:03600.0004,862.916.00023.7.202509:37600.0004,862.916.00025.7.202509:46600.0004,902.940.000Samtals2.400.000 11.700.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch