Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 10
Í 10. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.945.000 eigin hluti að kaupverði 12.737.980 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
03/03/2025 | 09:47:21 | 994.000 | 4.37 | 4.343.780 |
04/03/2025 | 09:32:41 | 507.000 | 4.34 | 2.200.380 |
04/03/2025 | 14:10:09 | 450.000 | 4.31 | 1.939.500 |
05/03/2025 | 10:40:10 | 994.000 | 4.28 | 4.254.320 |
Samtals | 2.945.000 | 12.737.980 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 121.955.708 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 124.900.708 hluti, eða um 3,39% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 496.802.035 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
