Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 27
Í 27. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.604.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
30.6.2025 | 09:57 | 600.000 | 4,76 | 2.856.000 |
1.7.2025 | 10:49 | 600.000 | 4,84 | 2.904.000 |
2.7.2025 | 10:47 | 600.000 | 4,86 | 2.916.000 |
4.7.2025 | 15:23 | 600.000 | 4,88 | 2.928.000 |
Samtals | 2.400.000 | 11.604.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 18.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 20.400.000 hluti, eða um 0,57% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 98.226.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
