Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 32
Í 32. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 5.808.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
5.8.2025 | 15:21 | 600.000 | 4,82 | 2.892.000 |
8.8.2025 | 11:24 | 600.000 | 4,86 | 2.916.000 |
Samtals | 1.200.000 | 5.808.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 31.800.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 33.000.000 hluti, eða um 0,93% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 159.672.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
