Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 9
Í 9. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 4.970.000 eigin hluti að kaupverði 21.500.220 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
24/02/2025 | 10:29:19 | 994,000 | 4.26 | 4,234,440 |
25/02/2025 | 09:44:30 | 994,000 | 4.24 | 4,214,560 |
26/02/2025 | 09:32:12 | 994,000 | 4.36 | 4,333,840 |
27/02/2025 | 09:35:53 | 994,000 | 4.35 | 4,323,900 |
28/02/2025 | 09:31:50 | 994,000 | 4.42 | 4,393,480 |
Samtals | 4.970.000 | 21.500.220 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 116.985.708 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 121.955.708 hluti, eða um 3,31% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 484.064.055 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á
