NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf.: Margrét skemmtana- og forstjóri kveður í lok árs

Nova Klúbburinn hf.: Margrét skemmtana- og forstjóri kveður í lok árs

Margrét Tryggvadóttir kveður í lok árs

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova, hefur óskað eftir að láta af störfum eftir 18 ár í lykilhlutverki hjá félaginu. Hún hefur verið hluti af Nova frá stofnun og leitt félagið sem forstjóri síðastliðin 7 ár. Margrét mun gegna starfi sínu áfram til 1. desember 2025 og verður stjórn félagsins og arftaka sínum innan handar við forstjóraskiptin auk þess sem hún mun sinna ráðgjöf fyrir félagið eftir að hún lætur af störfum.

Margrét skilur við Nova í stöðugum og traustum vexti. Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2025 sýnir áframhaldandi tekjuvöxt, sterkan EBITDA vöxt og öflugt sjóðstreymi. Árangurinn endurspeglast ekki aðeins í fjárhagslegum niðurstöðum – heldur ennfremur í mælingum á trausti og ánægju þeirra sem skipta mestu máli, viðskiptavina og starfsfólks, ásamt sterku vörumerki. Framundan eru mikilvæg vaxtartækifæri fyrir Nova – þar á meðal með kaupum á Dineout. Samlegð félaganna mun styrkja bæði fyrirtækin til framtíðar og auka ánægju viðskiptavina á bæði einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova

„Það hefur verið mér einstök gæfa að fá að taka þátt í þessari mögnuðu vegferð Nova – að fá að vaxa og dafna með frábæru fólki og eiga þátt í að gera Nova að því sem það er í dag. Það traust sem ég hef notið til að leiða félagið hefur verið mér heiður. Ég fyllist stolti þegar ég horfi til baka á allt það sem við höfum byggt upp saman – með hugrekki, gleði og óbilandi trú á því að hægt sé að gera hlutina öðruvísi, skemmtilegri og betur.  Allt hefur sinn tíma og nú tel ég réttan tíma til að hefja nýjan kafla – fyrir mig og fyrir Nova.

Margrét mun gegna starfi sínu til 1. desember 2025, þegar Nova fagnar 18 ára afmæli sínu. Hún mun fram að því styðja stjórn og arftaka sinn við forstjóraskiptin.

„Ákvörðunin var ekki auðveld – enda bý ég að ómetanlegum minningum og dýrmætum tengslum við Nova liðið, viðskiptavini og vini sem orðið hafa til á leiðinni. En maður þarf að þora, skora á sjálfan sig og halda áfram að vaxa. Ég er ótrúlega stolt af Nova og fólkinu sem heldur áfram að leiða félagið með eldmóði og trú á mikilvægi ánægju viðskiptavina, starfsfólks og sterku vörumerki sem er ein mikilvægasta eign Nova. Framtíð Nova er björt og titlarnir munu halda áfram að koma eftir mína tíð – alveg eins og hjá Liverpool. Ég er ekki farin, ég er virkur hluthafi, hækkum í tónlistinni, höfum gaman og sigrum leikinn!“

Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarformaður Nova þakkar fyrir ómetanlegt framlag og segir starf Margrétar hafa mótað fyrirtækið djúpt og varanlega:

„Margrét hefur verið drifkraftur í uppbyggingu og árangri Nova frá fyrsta degi. Leiðtogastíll hennar, áræðni og mannlegur tónn hefur skapað fyrirtækjamenningu sem við öll erum stolt af. Hún skilur við félagið í sterkri stöðu, með öfluga stefnu og frábært teymi til framtíðar. Við í stjórninni þökkum henni af einlægni fyrir ómetanlegt framlag og fögnum áframhaldandi samstarfi í nýju hlutverki“

 



EN
07/05/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Leiðrétting - Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025

Nova Klúbburinn hf.: Leiðrétting - Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 Í yfirliti yfir helstu niðurstöður í rekstri Nova Klúbbsins á fyrsta ársfjórðungi 2025 í tilkynningu sem birt var í gær reyndist handbært fé frá rekstri rangt tilgreint. En handbært fé frá rekstri í lok tímabilsins nemur 779 m.kr.  Helstu niðurstöður á fyrsta ársfjórðungi eru því eftirfarandi: Heildartekjur voru 3.324 m.kr. og vaxa um 4,0% á milli áraÞjónustutekjur námu samtals 2.651 m.kr. og vaxa um 6,7% á milli ára.EBITDA nam 989 m.kr. og vex um 9,3% á milli ára. EBITDA hlutfallið var 29,8% á fjórðungnum samanborið við ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 Áframhaldandi tekjuvöxtur skilar sér í sterkum EBITDA vexti og öflugu sjóðstreymi. Rekstur Nova skilaði góðri afkomu á fyrsta ársfjórðungi ársins. Heildartekjur voru um 3,3 milljarðar og jukust um 4,0% milli ára. Þjónustutekjur hækkuðu um 6,7% og EBITDA jókst um 9,3%. Hagnaður fjórðungsins var 167 milljónir og eykst um 25,8% milli ára. Margrét Tryggvadóttir kveður í lok ársMargrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova, hefur óskað eftir að láta af störfum eftir 18 ár í lykilhlutverki hjá félaginu. Hún hefur verið hluti af Nova fr...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Margrét skemmtana- og forstjóri kveður í lok árs

Nova Klúbburinn hf.: Margrét skemmtana- og forstjóri kveður í lok árs Margrét Tryggvadóttir kveður í lok ársMargrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova, hefur óskað eftir að láta af störfum eftir 18 ár í lykilhlutverki hjá félaginu. Hún hefur verið hluti af Nova frá stofnun og leitt félagið sem forstjóri síðastliðin 7 ár. Margrét mun gegna starfi sínu áfram til 1. desember 2025 og verður stjórn félagsins og arftaka sínum innan handar við forstjóraskiptin auk þess sem hún mun sinna ráðgjöf fyrir félagið eftir að hún lætur af störfum. Margrét skilur við Nova í stöðugum og traustum v...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - LSR

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - LSR Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Lækkun hlutafjár

Nova Klúbburinn hf.: Lækkun hlutafjár Skráð hefur verið hjá Fyrirtækjaskrá lækkun hlutafjár Nova Klúbbsins hf. að nafnverði kr. 130.091.708 í kjölfar þess að samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 27. mars 2025 tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár félagsins úr kr. 3.683.966.464 í kr. 3.553.874.756 að nafnverði, með ógildingu eigin hluta félagsins. Lagaskilyrðum fyrir lækkun hlutafjárins hefur nú verið fullnægt og lækkunin framkvæmd. Einnig hefur verið óskað eftir því við Nasdaq að lækka skráð hlutafé til samræmis og mun lækkunin verða framkvæmd 6. maí 2025. Skráð hlutafé félagsins eftir ...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch