NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova klúbburinn hf: Nova flytur á Broadway

Nova klúbburinn hf: Nova flytur á Broadway

Nova breytti íslenskum fjarskiptamarkaði með því að opna dyrnar að stærsta skemmtistað í heimi 1. desember 2007.  Stemmningin heldur áfram og Nova undirbýr nú að kveðja Lágmúla þar sem fyrirtækið hefur verið til húsa frá upphafi og flytja í Álfabakka – þar sem stærsti skemmtistaður Íslands, Broadway, var um tíma. Nova kúltúrinn mun skína á vinnustað framtíðarinnar, auk þess sem þar mun opna glæsileg verslun á besta stað með enn betra aðgengi að vörum og þjónustu Nova.

Nova hefur gengið frá leigusamningi við Eignabyggð hf. um leigu á Álfabakka 8. Eignabyggð vinnur nú að heildar endurskipulagningu fasteignarinnar og gert er að ráð fyrir afhendingu til Nova á fyrri hluta ársins 2027. Húsnæðið verður sérhannað með þarfir Nova í huga, og mun öll starfsemi félagsins, sem nú er í Lágmúla -  skrifstofur, verslun og lager - flytjast í nýja húsnæðið.



„Við hlökkum til að setja diskókúluna aftur upp í loft á Broadway þegar Nova flytur þangað 2027. Broadway verður ekki bara nýtt heimilisfang heldur vinnustaður inn í framtíðina, með fullt af þeirri gleði, samvinnu og krafti sem árangur Nova hefur byggst á.“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova.

Við ætlum að vera fyrst inn í framtíðina með snjallari lausnir á nýjum stað sem mótast af óskum og þörfum viðskiptavina og starfsfólks. Þannig verðum við áfram besta liðið, sterkasta vörumerkið, með ánægðustu viðskiptavinina og löðum um leið að okkur framúrskarandi hæfileikafólk sem virkjar gleðina og gróskuna sem hefur alltaf einkennt Nova.

Það eru spennandi tímar framundan, við ætlum okkur stóra hluti og þess vegna skiptir máli að allt Nova liðið sé hluti af vegferðinni og taki þátt í henni saman. Við kynntum kaupréttaráætlun fyrir allt starfsfólk Nova í gær. Nú hækkum við í græjunum og hlökkum til að stíga út á glænýtt dansgólf stærsta skemmtistaðar í heimi.“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova.

Samskipti við leigusala um leigulok núverandi húsnæðis í Lágmúla eru þegar hafin.

Gert er ráð fyrir að fjárhagsleg áhrif af flutningunum verði minniháttar.



EN
07/11/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 26. mars 2026

Nova klúbburinn hf.: Niðurstöður aðalfundar 26. mars 2026 Aðalfundur Nova klúbbsins hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 26. mars 2026. Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi: Í stjórn félagsins voru endurkjörin þau: Hrund Rudolfsdóttir  Jón Óttar Birgisson  Jóhannes Þorsteinsson  Sigríður Olgeirsdóttir Steinunn Hlíf Sigurðardóttir Stjórn hefur skipt með sér verkum og var Jón Óttar Birgisson kjörinn formaður stjórnar, og tekur því við af Sigríði Olgeirsdóttur, sem gegnt hefur stjórnarformennsku undanfarin þrjú ár. Í tilnefningarnefnd félagsins voru endurkjörin þau:   Thelma Kri...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova og Rafal sameina krafta sína með stofnun nýs...

Nova klúbburinn hf.: Nova og Rafal sameina krafta sína með stofnun nýs hátæknifélags Nova og Rafal stefna að því að stofna nýtt félag sem mun sameina reynslu Rafal í stafrænni þróun og öflugt fjarskiptakerfi Nova með það að markmiði að bjóða fyrirtækjum og stórnotendum framúrskarandi lausnir sem byggja á nýjustu fjarskiptatækni. Nova klúbburinn hf. og Rafal ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um stofnun nýs sameiginlegs félags sem mun sérhæfa sig í IoT-lausnum (Internet of Things), eins og snjallvöktun, orkustjórnun og gagnastýrðri þjónustu. Með fyrirvara um endanlegan frágang samninga v...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Framboð til stjórnar o...

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars, kl. 16. Eftirtalin framboð bárust til setu í stjórn félagsins: Erla Ósk ÁsgeirsdóttirHaukur SkúlasonHjördís Elsa ÁsgeirsdóttirHrund RudolfsdóttirJóhannes ÞorsteinssonJón Óttar BirgissonSigríður OlgeirsdóttirSteinunn Hlíf Sigurðardóttir Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Nova klúbbsins hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og fer því fram stjórnarkjör á aðalf...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Endanleg dagskrá og ti...

Nova klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 – Endanleg dagskrá og tillögur Aðalfundur Nova klúbbsins hf. verður haldinn rafrænt og á skrifstofu félagsins að Lágmúla 9, Reykjavík, fimmtudaginn 26. mars 2026, kl. 16:00.Meðfylgjandi er endanleg dagskrá fundarins og tillögur stjórnar, sem er óbreytt frá fundarboðun.Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru hvattir til að skrá sig á  fyrir kl. 16:00 þann 25. mars, eða degi fyrir fundardag. Skráningu á fundinn þarf að fylgja afrit af skilríkjum og umboð, ef við á. Framboðsfrestur ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026

Nova Klúbburinn hf.: Aðalfundur 26. mars 2026 Aðalfundur Nova Klúbbsins hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026, klukkan 16:00, að Lágmúla 9, 108 Reykjavík. Meðfylgjandi er fundarboð, sem tiltekur dagskrá fundarins, og tillögur stjórnar sem lagðar verða fyrir fundinn. Fundargögn og allar frekari upplýsingar vegna fundarins er að finna á vef félagsins,  Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch