NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova klúbburinn hf: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samninga um framsal 4G/5G dreifikerfa í sameiginlegt félag, Sendafélagið ehf.

Nova klúbburinn hf: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samninga um framsal 4G/5G dreifikerfa í sameiginlegt félag, Sendafélagið ehf.

Mikilvægum áfanga náð varðandi framtíðarrekstrarfyrirkomulag Sendafélagsins

Nova hf. (kt. 531205-0810) og Sýn hf. (kt. 470905-1740) hafa í dag undirritað samstarfssamning og hluthafasamning sem kveða á um framsal 4G og 5G dreifikerfa (e. Radio Access Network eða RAN) félaganna til Sendafélagsins ehf. (kt. 440515-1850), í þeim tilgangi að ná fram enn meiri hagræðingu í rekstri þessara innviða og auka fjárfestingargetu. Með gildistöku samstarfssamningsins fellur niður samkomulag aðila um helstu skilmála þessa samstarfs, dags. 21. ágúst 2025.

                                                                    

Með samstarfssamningnum skuldbinda Nova og Sýn sig til að framselja allan 4G og 5G fjarskiptabúnað sinn sem tengist RAN-kerfinu, þar á meðal senda, loftnet og annan sérhæfðan búnað, til Sendafélagsins. Endurgjald fyrir framsalið verður tvíþætt; annars vegar í formi nýs hlutafjár í Sendafélaginu og hins vegar í formi hluthafalána frá Nova og Sýn. Verðmat á framlögum félaganna er nánar útfært í samningnum.

Hlutafé Sendafélagsins verður aukið og skipt í tvo flokka. Flokkur A verður 1.000 m.kr. að nafnvirði með fullum réttindum, þar með talið atkvæðisrétti, og skiptist jafnt milli Nova og Sýnar (500 m.kr. hvor). Flokkur B verður 818 m.kr. að nafnvirði, án atkvæðisréttar, en með öðrum sömu réttindum og fylgja A-flokki. Upphaflegt heildareignarhald (samanlagt úr A- og B-flokki) mun miðast við að Nova eigi 55% en Sýn 45%, í samræmi við væntingar um framlag hvors aðila til sjóðstreymis Sendafélagsins. Endanlegt eignarhald mun þó ráðast af raunverulegu framlagi hvors aðila til sjóðstreymis Sendafélagsins og verður endurskoðað í árslok 2026 miðað við hlutfall viðskipta aðila í desember það ár.

Framkvæmd samstarfsins er háð fyrirvörum, m.a. um samþykki stjórna félaganna á þeim samningum sem undirritaðir voru í dag, og gerð og samþykki annarra samninga sem unnið er að, þar á meðal kaup-, láns- og þjónustusamninga. Í þjónustusamningunum verður kveðið á um þá þjónustu sem Sendafélagið mun veita Nova og Sýn með afnotum af RAN kerfinu o.fl. og endurgjald aðila fyrir þá þjónustu. Þá er framkvæmdin háð samþykki hluthafafundar í Sendafélaginu fyrir hlutafjárhækkuninni og fyrrnefndum kaup- og lánssamningum. Stefnt er að því að ljúka gerð þessara samninga svo fljótt sem auðið er.

Gert er ráð fyrir að formlegu framsali fjarskiptabúnaðarins ljúki 31. desember 2025 og að starfsemi Sendafélagsins á nýjum rekstrargrundvelli hefjist 1. janúar 2026.

Áætluð fjárhagsleg áhrif á Nova hf.

Nova hf. áætlar að viðskiptin muni hafa eftirfarandi áhrif á rekstur og sjóðstreymi félagsins á ársgrundvelli:

  • EBITDA mun lækka um u.þ.b. 930 m.kr. þar sem kostnaður sem áður færðist sem afskriftir og fjármagnskostnaður færist yfir í rekstrarkostnað.
  • Áætluð áhrif á EBIT eru lækkun um u.þ.b. 190 m.kr.
  • Afborganir og vaxtagjöld leiguskuldbindinga í sjóðstreymi munu lækka um u.þ.b. 40 m.kr.
  • Árlegar fjárfestingar (CAPEX) munu lækka um u.þ.b. 600 m.kr.
  • Hreinar vaxtaberandi skuldir munu lækka um u.þ.b. 1.700 m.kr. eftir að Sendafélagið hefur endurfjármagnað sig og greitt upp hluthafalán.

Afkoma Sendafélagsins ehf. mun færast undir liðinn „áhrif hlutdeildarfélaga“ í rekstrarreikningi Nova hf. Samkvæmt núverandi áætlunum er gert ráð fyrir að heildarafkoma Sendafélagsins verði um 130 m.kr. á fyrsta rekstrarári.

Nova mun upplýsa markaðinn um framvindu málsins í samræmi við upplýsingaskyldu skráðra félaga.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl félagsins í gegnum netfangið .



EN
30/10/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Nova Klúbburinn birtir uppgjör þriðja ársfjórðung...

Nova klúbburinn hf.: Nova Klúbburinn birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2025 Góð afkoma og mikil tækifæri til vaxtar Rekstur Nova skilaði góðri afkomu á þriðja ársfjórðungi ársins. Heildartekjur voru um 3,5 milljarðar og jukust um 3,7% milli ára, þjónustutekjur námu 2,8 milljörðum og hækkuðu um 1,8%. EBITDA var 1,1 milljarður og lækkaði um 7,4%, EBITDA hlutfallið var 31,6%. Hagnaður fjórðungsins var 228 milljónir og lækkaði um 29,3% milli ára. Helstu niðurstöður á þriðja ársfjórðungi: Heildartekjur voru 3.514 m.kr. og vaxa um 3,7% á milli áraÞjónustutekjur námu samtals 2.761 m.kr. og va...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samninga um framsal ...

Nova klúbburinn hf: Nova hf. og Sýn hf. undirrita samninga um framsal 4G/5G dreifikerfa í sameiginlegt félag, Sendafélagið ehf. Mikilvægum áfanga náð varðandi framtíðarrekstrarfyrirkomulag SendafélagsinsNova hf. (kt. 531205-0810) og Sýn hf. (kt. 470905-1740) hafa í dag undirritað samstarfssamning og hluthafasamning sem kveða á um framsal 4G og 5G dreifikerfa (e. Radio Access Network eða RAN) félaganna til Sendafélagsins ehf. (kt. 440515-1850), í þeim tilgangi að ná fram enn meiri hagræðingu í rekstri þessara innviða og auka fjárfestingargetu. Með gildistöku samstarfssamningsins fellur niður...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43 Í 43. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.886.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)20.10.202513:20600.0004,972.982.00021.10.202515:29600.0004,962.976.00023.10.202514:18600.0004,962.976.00024.10.202514:53600.0004,922.952.000Samtals2.400.000 11.886.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljó...

 PRESS RELEASE

Nova klúbburinn hf.: Þuríður Björg lætur af störfum hjá Nova

Nova klúbburinn hf.: Þuríður Björg lætur af störfum hjá Nova Þuríður Björg Guðnadóttir, framkvæmdastjóri markaðssóknar hjá Nova, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu. Hún hefur starfað hjá Nova frá stofnun og setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2017. Þuríður lætur af störfum um næstu mánaðarmót en mun áfram veita félaginu ráðgjöf og styðja við yfirstandandi verkefni. Þuríður er með B.Sc. í Rekstrarverkfræði og er stjórnendamarkþjálfi frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hóf störf 18 ára gömul í þjónustuveri Nova, við stofnun félagsins, og hefur sinnt margvíslegum verkefnum, m.a....

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 42

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 42 Í 42. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.200.000 eigin hluti að kaupverði 5.856.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)14.10.202513:27600.0004,842.904.00015.10.202510:13600.0004,922.952.000Samtals1.200.000 5.856.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch