NOVA PLATINUM NOVA HF

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025

Nova Klúbburinn hf.: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025

Áframhaldandi tekjuvöxtur skilar sér í sterkum EBITDA vexti og öflugu sjóðstreymi.

Rekstur Nova skilaði góðri afkomu á fyrsta ársfjórðungi ársins. Heildartekjur voru um 3,3 milljarðar og jukust um 4,0% milli ára. Þjónustutekjur hækkuðu um 6,7% og EBITDA jókst um 9,3%. Hagnaður fjórðungsins var 167 milljónir og eykst um 25,8% milli ára.

Margrét Tryggvadóttir kveður í lok árs

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova, hefur óskað eftir að láta af störfum eftir 18 ár í lykilhlutverki hjá félaginu. Hún hefur verið hluti af Nova frá stofnun og leitt félagið sem forstjóri síðastliðin 7 ár. Margrét mun gegna starfi sínu áfram til 1. desember 2025 og verður stjórn félagsins og arftaka sínum innan handar við forstjóraskiptin auk þess sem hún mun sinna ráðgjöf fyrir félagið eftir að hún lætur af störfum.

Margrét skilur við Nova í stöðugum og traustum vexti. Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2025 sýnir áframhaldandi tekjuvöxt, sterkan EBITDA vöxt og öflugt sjóðstreymi. Árangurinn endurspeglast ekki aðeins í fjárhagslegum niðurstöðum – heldur ennfremur í mælingum á trausti og ánægju þeirra sem skipta mestu máli, viðskiptavina og starfsfólks, ásamt sterku vörumerki. Framundan eru mikilvæg vaxtartækifæri fyrir Nova – þar á meðal með kaupum á Dineout. Samlegð félaganna mun styrkja bæði fyrirtækin til framtíðar og auka ánægju viðskiptavina á bæði einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.

Helstu niðurstöður á fyrsta ársfjórðungi:

  • Heildartekjur voru 3.324 m.kr. og vaxa um 4,0% á milli ára
  • Þjónustutekjur námu samtals 2.651 m.kr. og vaxa um 6,7% á milli ára.
  • EBITDA nam 989 m.kr. og vex um 9,3% á milli ára. EBITDA hlutfallið var 29,8% á fjórðungnum samanborið við 28,3% á fyrra ári.
  • Hrein fjármagnsgjöld á fjórðungnum nema 200 m.kr. og hækka um 2,3%
  • Hagnaður fjórðungsins eftir skatta var 167 m.kr. og hækkar um 25,8%
  • Handbært fé frá rekstri á tímabilinu er 854 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall var 40,5% í lok tímabilsins og eigið fé nam samtals 9.688 m.kr.

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova 

„Það hefur verið mér einstök gæfa að fá að taka þátt í þessari mögnuðu vegferð Nova – að fá að vaxa og dafna með frábæru fólki og eiga þátt í að gera Nova að því sem það er í dag. Það traust sem ég hef notið til að leiða félagið hefur verið mér heiður. Ég fyllist stolti þegar ég horfi til baka á allt það sem við höfum byggt upp saman – með hugrekki, gleði og óbilandi trú á því að hægt sé að gera hlutina öðruvísi, skemmtilegri og betur.  Allt hefur sinn tíma og nú tel ég réttan tíma til að hefja nýjan kafla – fyrir mig og fyrir Nova.

Margrét mun gegna starfi sínu til 1. desember 2025, þegar Nova fagnar 18 ára afmæli sínu. Hún mun fram að því styðja stjórn og arftaka sinn við forstjóraskiptin.

„Ákvörðunin var ekki auðveld – enda bý ég að ómetanlegum minningum og dýrmætum tengslum við Nova liðið, viðskiptavini og vini sem orðið hafa til á leiðinni. En maður þarf að þora, skora á sjálfan sig og halda áfram að vaxa. Ég er ótrúlega stolt af Nova og fólkinu sem heldur áfram að leiða félagið með eldmóði og trú á mikilvægi ánægju viðskiptavina, starfsfólks og sterku vörumerki sem er ein mikilvægasta eign Nova. Framtíð Nova er björt og titlarnir munu halda áfram að koma eftir mína tíð – alveg eins og hjá Liverpool. Ég er ekki farin, ég er virkur hluthafi, hækkum í tónlistinni, höfum gaman og sigrum leikinn!“

Sigríður Olgeirsdóttir, stjórnarformaður Nova þakkar fyrir ómetanlegt framlag og segir starf Margrétar hafa mótað fyrirtækið djúpt og varanlega:

„Margrét hefur verið drifkraftur í uppbyggingu og árangri Nova frá fyrsta degi. Leiðtogastíll hennar, áræðni og mannlegur tónn hefur skapað fyrirtækjamenningu sem við öll erum stolt af. Hún skilur við félagið í sterkri stöðu, með öfluga stefnu og frábært teymi til framtíðar. Við í stjórninni þökkum henni af einlægni fyrir ómetanlegt framlag og fögnum áframhaldandi samstarfi í nýju hlutverki.“

Viðhengi



EN
07/05/2025

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 30

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 30 Í 30. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.400.000 eigin hluti að kaupverði 11.700.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)21.7.202509:54600.0004,882.928.00022.7.202510:03600.0004,862.916.00023.7.202509:37600.0004,862.916.00025.7.202509:46600.0004,902.940.000Samtals2.400.000 11.700.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum ...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29 Í 29. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.628.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)14.7.202509:59600.0004,882.928.00015.7.202515:04600.0004,862.916.00016.7.202509:56600.0004,882.928.00017.7.202510:21600.0004,862.916.00018.7.202512:47600.0004,902.940.000Samtals3.000.000 14.628.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 28

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 28 Í 28. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.640.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)7.7.202514:23600.0004,892.934.0008.7.202509:48600.0004,882.928.0009.7.202510:50600.0004,872.922.00010.7.202510:30600.0004,872.922.00011.7.202514:45600.0004,892.934.000Samtals3.000.000 14.640.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - Íslandsbanki hf.

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - Íslandsbanki hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Sylvía Kristín Ólafsdóttir verður forstjóri Nova

Nova Klúbburinn hf.: Sylvía Kristín Ólafsdóttir verður forstjóri Nova Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Nova. Hún mun taka við starfinu af Margréti Tryggvadóttur sem tilkynnti í byrjun sumars að hún hygðist láta af störfum í lok árs. Sylvía hefur störf hjá Nova með haustinu.    Sylvía Kristín kemur til Nova frá Icelandair þar sem hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri rekstrar. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo. Sylvía starfaði einnig um árabil hjá Amazon, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle deild fyrirtæk...

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch