NOVA PLATINUM NOVA HF

Nýr liðsfélagi í skemmtana- & framkvæmdastjórn Nova

Nýr liðsfélagi í skemmtana- & framkvæmdastjórn Nova

Ólafur Magnússon hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Tækni & Nýsköpunar hjá Nova. Ólafur hefur starfað hjá Creditinfo Group frá árinu 2015, síðast sem framkvæmdastjóri Global Technology & Delivery. Áður starfaði Ólafur í fjarskiptageiranum, m.a. hjá Símanum og hjá alþjóðlega fjarskiptafyrirtækinu 3 í Svíþjóð. 3 var fyrsta fjarskiptafélagið í Evrópu til að bjóða upp á farsímaþjónustu yfir 3G farsímanet og var brautryðjandi í að lækka fjarskiptakostnað viðskiptavina sinna með ókeypis símtölum innan kerfis.



Ólafur er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Ólafur tekur við starfinu 1. mars og mun Benedikt Ragnarsson, sinna starfinu þangað til en hann mun svo taka við nýju hlutverki innan Nova og verða tækniþróunarstjóri.



Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri:

Við fögnum því að fá góðan liðstyrk og halda áfram að skora á okkur sjálf og markaðinn. Fjarskiptafyrirtæki eru í eðli sínu mikilvæg innviðafyrirtæki og er Nova á meðal stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækja landsins. Vel heppnuð markaðssetning, góð þjónusta og forysta í innleiðingu nýjustu tækni hefur skilað Nova sterkri markaðshlutdeild og ánægðum og tryggum viðskiptavinum. Allir þessir þættir ásamt einstökum hópi starfsfólks hefur skilað félaginu miklum ávinningi og tekjuvexti undanfarin ár og ég trúi því að Óli muni styrkja Nova liðið en frekar.



Ólafur Magnússon:

Fjarskiptageirinn er ákaflega spennandi, í stöðugri þróun þar sem ný tækni veitir viðskiptavinum sífellt betri þjónustu og notendaupplifun á hagkvæman hátt.  Ég hlakka til að kynnast þeim öfluga hópi liðsfélaga hjá Nova sem hafa allt frá kröftugr innkomu á íslenskan farsímamarkað verið í fararbroddi í nýsköpun. Nova er í kjörstöðu til að leiða áfram nýjungar á markaði og ég er spenntur að taka þátt í þeirri vegferð.



Um Nova

Nova var stofnað árið 2006 og er nú orðið eitt af stærstu og öflugustu fjarskiptafyrirtækjum landsins.  Fyrirtækið á og rekur sína eigin virku innviði vítt og breitt um landið. Hjá Nova starfa um 156 starfsmenn á á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og Selfossi. Í janúar var tilkynnt um að Nova hafi fengið hæstu einkunn fjarskiptafyrirtækja í Íslensku ánægjuvoginni þrettánda árið í röð.

Attachment



EN
19/12/2022

Underlying

To request access to management, click here to engage with our
partner Phoenix-IR's CorporateAccessNetwork.com

Reports on PLATINUM NOVA HF

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - Landsbankinn hf.

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - Landsbankinn hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun. Viðhengi

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 40

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 40 Í 40. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.502.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)29.9.202512:42600.0004,882.928.00030.9.202509:47600.0004,832.898.0001.10.202509:49600.0004,822.892.0002.10.202509:59600.0004,822.892.0003.10.202509:34600.0004,822.892.000Samtals3.000.000 14.502.000 Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætlunin...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Sylvía tekin við sem forstjóri Nova

Nova Klúbburinn hf.: Sylvía tekin við sem forstjóri Nova Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur tekið við störfum sem forstjóri Nova frá og með deginum í dag. Sylvía tekur við af Margréti Tryggvadóttur. Sylvía kemur til Nova frá Icelandair þar sem hún hefur starfað síðustu ár sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Áður hefur hún m.a. starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo og hjá Amazon við rekstur og áætlanagerð, og síðar Kindle deild fyrirtækisins þar sem hún sá m.a. um viðskiptagreind og vöruþróun, auk þess að leiða greiningar- og stefnumótunarvinnu.„Það er mikill h...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 39 Í 39. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.718.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)22.9.202510:24600.0004,922.952.00023.9.202509:57600.0004,902.940.00024.9.202509:43600.0004,902.940.00025.9.202512:51600.0004,912.946.00026.9.202513:20600.0004,902.940.000Samtals3.000.000 14.718.000  Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluni...

 PRESS RELEASE

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - Stefnir hf.

Nova Klúbburinn hf.: Flöggun - Stefnir hf. Sjá meðfylgjandi tilkynningu um flöggun. Viðhengi

ResearchPool Subscriptions

Get the most out of your insights

Get in touch